Alþýðublaðið - 15.07.1997, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
■ Jónum Jónssonum fer óðum fækkandi
Eina vanda
málið er í
bönkunum
- segir Jón Jónsson þjóðfræðingur
„Ég er virkilega stoltur af nafninu
mínu,“ segir Jón Jónsson sem er síður
en svo óánægður með nafhið sitt en
þeim fer óðum fækkandi sem bera
þetta áður algengasta nafn landsins.
AUs eru 40 manns í þjóðskrá með
þessu nafni, tveir þeirra elstu eru
fæddir 1908 en sá yngsti er fæddur
1982.
„Allir í fjölskyldunni minni heita
Jón, nema konumar, þær heita eitthvað
annað,“ segir Jón Jónsson sem reynd-
ar er þjóðfræðingur og starfar að
ferðaþjónustu á Ströndum.
„Eldn bróðir minn heitir Jón Gísli,
ég heiti Jón, og er þessvegna stundum
kaUaður Barajón, bróðir okkar sem dó
áður en við fæddumst hét Jón. Yngsti
bróðirinn heitir síðan Amar, því for-
eldrar mínir vom ekki nægilega hug-
myndaríkir til að skíra hann Jón. Pabbi
minn hét Jón, afi minn hét Jón, og
þannig er um alla forfeður mína. En
ástæðan fyrir því að við bræðumir
heitum báðir Jón er að við heitum í
höfuðið á sitthvomm manninum. Ég
heiti í höfuðið á Jóni sem að ég er ekk-
ert skyldur, en bróðir minn heitir eftir
afa mínum. Mömmu mína dreymdi
fyrir nafninu, en Jón besti vinur föður
míns dó sumarið áður en ég fæddist,
og hann vitjaði nalhs í draumi. í fjöl-
skyldunni var þetta aldrei vandamál,
við vissum alltaf við hvaða Jón var átt.
Það fór eftir tóntegundinni.
Eina vandamálið sem kemur upp er
í bönkum. Fyrir tvítugt var mér iðu-
lega hent út úr bönkum og oít var neit-
að að skipta fyrir mig ávísun. Þá var
ég með ávísanir sem faðir minn Jón
Jónsson gaf út og ég þurfti að fram-
vísa.
Úr alfaraleið
Forstjóri kvikmynda-
húss fær reisupassann
frá Hægri öfgamönnum
í Vitrolles í Frakklandi
Hin 43 ára gamla Regine Juin
fékk reisupassann í starfi sínu sem
forstjóri kvikmyndahúss bænum
Vitrolles í Suður Frakklandi enda
neitaði hún að breyta áætlunum
kvikmyndahússins um sýningar á
kvikmynd um samkynhneigða og
annarri um ástir tveggja alnæmis-
smitaðra einstaklinga. Borgarstjór-
inn Catherine Megret og meirihluti
hennar í öfgasamtökum hægri
manna, Þjóðemisfylkingunni kröfð-
ust þess að myndir úr kvikmyndun-
um á auglýsingaplakati hússins
væru teknar út en hún neitaði og var
gert að fara úr starfi sínu. Frönsk yf-
irvöld em slegin yfir uppsögninni og
bæði heilbrigðisráðherrann og
menningarmálaráðherrann hafa
kallað uppsögnina „óréttláta" en
enginn getur gripið fram fyrir hend-
umar á bæjarstjóminni.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. júlí 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 22. útdráttur
3. flokki 1991 - 19. útdráttur
1. flokki 1992 - 18. útdráttur
2. flokki 1992 - 17. útdráttur
1. flokki 1993 - 13. útdráttur
3. flokki 1993 - 11. útdráttur
1. flokki 1994 - 10. útdráttur
1. flokki 1995 - 7. útdráttur
1. flokki 1996 - 4. útdráttur
2. flokki 1996 - 4. útdráttur
3. flokki 1996 - 4. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu,
þriðjudaginn 15. júlí.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEIID • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • Sltíl 569 6900
F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
eftirtarandi verk vegna byggingu 132 kV háspennulínu,
Nesjavallalínu 1, frá Nesjavöllum yfir Mosfellsheiði og að
Bringum í Mosfellsdal.
Gerð vegaslóöar, áætluð lengd 16 km og fyllingarefnismagn
37.000 m3. Verkið felst í að hefla eldri slóðir, jafna undir nýja
slóð, aka möl í slóðina og framkvæma tengda verk^ætti, svo
sem losun efnis, ámokstur á bíla, útjöfnun í vegastæði, lagningu
jarðvegsdúks, koma fyrir ræsum o.fl.
Jarðvinna og gerð undirstaða fyrir 51 háspennumastur þar af 41
stagað mastur meö forsteyptum undirstöðum og 10 frístandandi
möstur með staðsteyptum undirstööum. Verkið felst í að flytja
forsteyptar einingar og stálhluti í mastursstæöi og aö koma
þeim fyrir. Einnig að grafa fyrir og steypa undirstöður á
staðnum, grafa og bora fyrir bergboltum og steypa þá niður.
Ganga skal frá stagteinum og fylla að öllum einingum og
undirstöðum, plægja eða grafa niður jarðskautsboröa í slóð og
leggja jarðskaut að undirstöðum mastra.
Verkið skal hefja 6. ágúst 1997 og skal þvi vera lokið 28.
nóvember 1997.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 23. júlí 1997, kl. 11.00 á sama
staö.
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í gerö
gangstétta, malbikunar, gerð gróðurbeða o.fl. tengt
umhvefisbótum í Vesturhöfninni (við Grandagarð, Grunnslóð
og Fiskislóö).
Helstu magntölur eru:
- Hellulögn (ýmsar stærðir): 1.200 m2
- Kantsteinar og jaðarsteinar: 350 m
- Malbikun: 330 m2
- Malar- og gróðurbeð: 2.000 m2
- o.fl.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 1997.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboöa: fimmtudaginn 24. júlí 1997, kl. 11.00 á sama
stað.
rvh 107/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJA VÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Netfang: isr@rvk.is
7CT T'