Alþýðublaðið - 23.07.1997, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
skoðanir
Stríðiö gegn skynseminni
Neyslukönnun sem Hagstofan
gerði sýnir að 20 prósent íslenskra
heimila eru rekin í leiguíbúðum. Það
er dæmigert fyrir fáfræðina og skiln-
ingsleysið að embættismenn Hag-
stofunnar trúðu ekki niðurstöðum
sínum og endurtóku könnunina, en
endurtekningin breytti vitaskuld
engu. Það er líka til marks um við-
horf sældarliðsins að jafnvel Stefán
Ingólfsson verkfræðingur, sem oft
hefur skrifað um húsnæðiskerfið,
segir frá þessu í DT með skelfingar-
svip likt og meiriháttar ótíðindum.
Hér er þó ekki um nýjar fréttir að
ræða eins og undirskrifaður hefur
margítrekað í ræðu og riti. Til dæmis
var fyrir fáeinum árum birt niður-
staða svipaðrar könnunar sem sýndi
að 15 prósent fólks 18-75 ára bjó í
leiguíbúð og 11 prósent til viðbótar í
ættingjaíbúð eða alls 26 prósent í
íbúð sem aðrir töldust eiga. Margar
skýrslur aðrar hafa sýnt þessa þróun,
meðal annars skýrslur um skulda-
stöðu- og greiðsluvanda heimila og
er skemmst að minnast óðagotsins
fyrir síðustu þingkosningar. Þá er
einnig til skýrsla frá SINE um erfið-
leika ungs fólks við íbúðakaup og
sérlega vönduð skýrsla frá SUS sama
efnis. Niðurstaða beggja er sú að
ungt fólk getur ekki keypt íbúðir. Þá
er nýleg skýrsla útgefin af félags-
málaráðuneytinu þar sem lögð er
áhersla á eflingu leigumarkaðar og
tillögur Sambands íslenskra sveitar-
félaga um afnám félagslegra eignarí-
búða í núverandi formi og upptöku
húsaleigubóta.
Svo hellast yfir menn skýrslumar
um skólamenntun og uppeldi ungu
kynslóðarinnar. Nú er það ekki
Helga Sigurjónsdóttir sem segir til
syndanna eins og hún hefur hressi-
lega gert, nú koma skýrslurnar „utan-
úr hinum stóra heimi'‘ og þá dugar
ekki að stinga hausnum í vasann eins
og strákurinn sagði. Eða skýrslumar
um drykkjuskap og aðra eitumeyslu
bama og unglinga og jafnvel tóbaks-
reykingar smábama. Sem ég er að
skrifa þetta koma í póstinum Fréttir
SAA og þar segir meðal annars:
„Þeir sem leita sér meðferðar í fyrsta
skipti hafa aldrei verið fleiri í sögu
SAA og um leið hafa aldrei jafn
margir unglingar komið í meðferð".
Og þeim sem sprauta sig fjölgar
stöðugt. Við hverju er svo sem að bú-
ast í þjóðfélagi þar sem ráðamenn
telja hjónabandið helsta úthugsaða
glæpafélagið, samanber skattalög og
lög um tryggingabætur? Og heimilið
vera eðlilegustu gróðrarstíu braskar-
artna, samanber húsnæðisstefnuna og
framkvæmd hennar? Og þessir sömu
ráðamenn tönnlast sífellt á einhverju
veiðimannaþjóðfélagi, þótt
langstærstur hluti þjóðarinnar hafi
aldrei kynnst öðmm veiðum en at-
kvæðaveiðum.
Ástæða þessarar þróunar er einföld
og ætti að liggja í augum uppi. Þann
10. apríl 1979 varð bylting í íslensku
efnahagslífi er Alþingi samþykkti
vísitölubindingu lána. Þessa stað-
reynd hafa ráðamenn alltaf neitað að
viðurkenna og láta jafnvel enn eins
og ekkert hafi gerst. Árið 1988 voru
stofnuð Samtök fólks í greiðsluerfið-
leikum, enda urðu þúsundir heimila
gjaldþrota á árunum 1987-1990.
Upplýsingar um það ástand eru svo
vel faldar að starfsmenn Seðlabank-
ans hafa ekki aðgang að þeim. Fyrir
þennan tíma vom bankamir ónýtir og
gjaldmiðillinn líka. Húsin urðu hinn
raunverulegi gjaldmiðill sem allt var
miðað við. Sá sem ekki átti hús gat
ekkert og var stimplaður aumingi og
drykkjuræfill. Húsið var því ekki að-
eins afkomugmndvöllur heldur eins-
konar manndómsmerki líka.
Þótt þessum tíma hafi lokið fyrir
tuttugu ámm halda húseigendur og
veðhafar dauðahaldi í óbreytta hugs-
un hvað sem hún kostar. Uppeldi
nokkurra kynslóða hefur verið eyði-
lagt, spamaðar þjóðarinnar sömu-
leiðis og fólkið eins og reyttar hænur
á vergangi. Stjómvöld eru enn að
þjóna sama sældarliðinu. Þaðan
kemur skelfingarsvipurinn á andlit
embættismanna eins og Stefáns Ing-
ólfssonar.
En það er ekki aðeins að foreldrar
og kennarar séu fómardýr húsnæðis-
og skuldaþrældóms, því nú hefur
prófessor Oswald við Warwickhá-
skólann í Bretlandi kannað tengslin
milli húseignar og atvinnuleysis.
Niðurstaðan er sú að bein tengsl em
þar á milli. Þar sem húseign er al-
gengust er atvinnuleysi mest og öf-
ugt. Þar sem húseign hefur aukist
hefur atvinnuleysi vaxið að sama
skapi. I Sviss þar sem 70 prósent
íbúa býr í leiguíbúðum mælist ekkert
atvinnuleysi. Rökin em einföld, hús-
eigendur flytja ekki vegna kostnaðar
og umstangs, þiggja atvinnuleysis-
bætur og bíða þess að atvinnan komi
til þeirra. Leigjendur flytja þangað
sem vinnan er. Ráð prófessors
Oswalds er: Eflið leigumarkaðinn til
að útrýma atvinnuleysinu, það er
ódýrasta aðferðin.
Undirskrifaður hefur alltaf verið
stuðningsmaður verðtryggingar, þótt
deila megi um aðferðina. Án verð-
tryggingar myndast engir sjóðir og
enginn spamaður verður til. Án
spamaðar og sjóða verða ekki til fjár-
munir til að efla atvinnulíf og greiða
velferðarþjónustu. Húsnæðið er
löngu hætt að vera spamaðarform
sem betur fer, og leigumarkaðurinn
hefði þegar náð til yfir 50 prósent
þjóðarinnar ef hann hefði mátt þróast
eðlilega.
Höfundur er formaður
Leigjendasamtakanna.
Nú hefur prófessor Oswald við
Warwickháskólann í Bretlandi kannað
tengslin milli húseignar og atvinnu-
leysis. Niðurstaðan er sú að bein
tengsl eru þar á milli. Þar sem hús-
eign er algengust er atvinnuleysi
mest og öfugt.
Háskóli íslands hefur hætt að
nota nafnið Sæmundur á
selnum á tímarit sitt. Það var
Sveinbjörn Björnsson rektor
sem nánast bannaði notkun
nafnsins. Ástæðan er sú að SINE
hefur gefið út blað sem kallað er
Sæmundur og töldu SÍNE-félagar
að nöfnin væru það lík að blöðun-
um væri ruglað saman. Það var
ekki fyrr en SÍNE hafði hótað
málssókn að háskólamenn sáu að
sér og sviptu tímaritið sitt heitinu,
Sæmundur á selnum. Blaðið kall-
ast nú Tímarit Háskóla íslands.
Nú er leitað að nýju nafni...
Tímaritið Mannlíf er komið út en
þar er meðal annars að finna
grein um skipulagt vændi i
Reykjavík, stúlku sem starfaði á
vændishúsi við Túngötu sem lengi
hefur verið á allra vitorði. Frásögn-
in er svo óhugguleg að það er
ekki fyrir viðkvæmar sálir að lesa
hana en hún á væntanlega eftir
að hræra upp í mörgum ekki sist
nákvæmar lýsingar á viðskiptavin-
um stúlkunnar...
r
Islendingar eru sérstakir. Það
varð allt vitlaust þegar landsliðið
gerði jafnefli undir stjórn Loga
Ólafssonar, en nú virðast allir í
skýjunum eftir að þetta sama
landslið tapaði undir stjórn Guð-
jóns Þórðarsonar. Það var
baulað á þetta sama lið hjá Loga,
eftir jafntefli, en það er klappað
eftir tap hjá Guðjóni. Kannski er
skýringin sú að munurinn var fyrst
og fremst að í tapleiknum börðust
leikmennimir og haft hefur verið á
orði að nú, í fyrsta sinn í nokkum
tíma, hafi þurft að þvo búningana
að leik loknum...
Siglfirðingum brá í brún þegar
Ólöf Krlstjánsdóttir, bæjar-
fulltrúi krata, var dag eftir dag í
herbúðum Alþýðubandalagsins.
Menn töldu víst að sameining á
vinstri vængnun væri langt komin,
en svo var alls ekki. Ólöf er fram-
kvæmdastjóri Síldarævintýrsins
og það hefur aðsetur á skrifstofu
allaballa...
r
Ijúní var haldin Norræn bók-
menntahátíð í Madrid á Spáni
þar sem meðal annars komu fram
þær Kristín Ómarsdóttir og
Fríða Á. Sígurðardóttir auk
fjölda annarra norræna skáld-
kvenna. Lourdes Ortiz, spænsk-
ur bókmenntafræðingur hélt erindi
á þinginu og talaði meðal annars
um að norræni skáldskapurinn
væri fullur af nöldri, kvarti og
kveini sem væri ekki í neinum
takti við góð lífskjör í þessum
löndum...
hinumcgin
"FarSide" eftir Gary Larson
Margir höfundar eru nú að skila
inn handritum sem eiga að
fara á jólabókamarkaðinn, þeirra á
meðal eru Fríða Á. Sigurðardótt-
ir, Hallgrímur Helgason mun
einnig vera að leggja síðustu
hönd á bók auk þess sem Kristín
Ómarsdóttir með skáldsögu,
Gerður Kristný sem er með
smásagnasafn og Bjarni Bjarna-
son með skáldsögu...
Gunnar Smári Egilsson rit-
stjóri kvartar undan innihalds-
leysi Ijóðsins í Alþýðublaðinu í
gær, en í framhaldi að því rifjast
upp fyrirlestur þegar Elísabet
Þorgeirsdóttir kvartaði undan
inninhaldsleysi Ijóðsins í lok ní-
unda áratugarins á ráðstefnu hjá
Félagi áhugamanna um bók-
menntir. Það má segja að Elísa-
bet Þorgeirsdóttir sé hinn týndi
Fjölnismaður þó ekki hafi hún far-
ið í kanalinn í Köben heldur ritstýri
hinu eina sanna félagsriti, Veru.
Sléttuhundarnir - Rannsóknarstofa byggingariðnaðarins.
Er rétt að byrja framhaldsskólana viku fyrr eins og áætlað er?
Þór Þorsteinsson:
Ekki að mínu mati.
Margrét Ragnarsdóttir:
Æ, nei, þetta er svo stutt
sumar.
Jón Viðar Arnþórsson:
Já, já.
Sólrún Einarsdótti.
Nei, það er hræðilegt.
Þorsteinn Sæmundsson:
Nei, það er ekki rétt. Þetta
er svo stutt sumar. Þeim veit-
ir ekki af aurunum.
v i t i m q n n
Það er andstætt öflugri kjara-
baráttu að formönnum banda-
laga sé ætlað að tyfta stjórnir
aðildarafélganna, stundi þau
kraftmikið starf og leiti sókn-
arfæra sem þau sjá því til
framdráttar.
Skýrt og skorinort hjá Mörthu Á. Hjálmars-
dóttur, í BHMR- tíðindum.
Mér finnst að það eigi að vera
alvarlegur söngvari. Það er
mín skoðun.
Eggert Magnússon, formaður fótbolta-
manna, að tjá sig um söng, í DT.
Ég fagna því alltaf þegar fólk
nær árangri í kjarabaráttu.
Þannig að ég er algjörlega
ósammála þessum verkalýðs-
foringjum sem hafa tjáð sig
um málið.
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam-
bandslns, um Kjaradóm, í DT.
Ég var íhald og líka í flokknum
en ég var rekinn fyrir að trú-
lofast framsóknarkonu.
Viggó Nathanaelsson 94 ára, í DT.
Ég er ekki matvandur maður,
ég borða yfirleitt allt nema
makkarónumjólk. Hana borða
ég ekki, hún er óæt. Annars
hef ég ekkert út á matseðilinn
að setja.
Jón Theódór Lárusson, fastagestur hjá
Samhjálp, í DT.
íslenska liðið er mjög lélegt
og það náði að eyðileggja
leikinn, sérstaklega í fyrri
hálfleik.
Fréttamaður NTB, í DV.
Það er stærsti sigurinn að
enginn slasaðist.
Norska Dagblaðið um landsleikinn, í DV.
Það sýður í mér reiðin. ís-
lendingar hefðu getað slegið
okkar menn niður án þess að
fá rautt spjald.
Erik Mykland, leikmaður Norðmanna, eftir
landsleikinn, í DV.
Ég teldi það alveg út í hött að
afnema úrskurð kjaradóms.
Einar Oddur Kristjánsson í DV.
Taktu ekki níðróginn nærri þér.
Það næsta gömul er saga,
að lakasti gróðurinn ekki það er,
sem ormamir helst vilja naga.
Hannes Hafstein.