Alþýðublaðið - 24.07.1997, Qupperneq 1
■ Bullandi óánægja innan Fiskistofu. Starfsandinn hrikalegur og vonleysi um úr-
bætur. Yfirmaður veiðieftirlits gerður nánast óvirkur. Pólitískur þrýstingur á lög-
fræðinginn
Blöndal blandaði sér í
málið og beitti þrýstingi
- sem varð til þess að gripið var til óvæntra skipulagsbreytinga til að losna við mann sem vildi ekki
láta rannsókn falla niður
„Það vita allir að það var vegna af-
skipta Halldórs Blöndal sem málið fór
í þennan farveg,“ sagði einn af heim-
ildamönnum Alþýðublaðsins, vegna
fréttar í blaðinu í gær, þar sem greint
var ifá óvæntum skipulagsbreytingum
innan Fiskistofu vegna rannsóknar og
eftirmeðferðar kvótamisferlis á Ólafs-
firði. Sjómaðurinn sem átti hlut að
máli er flokksbróðir ráðherrans. Hall-
dór Blöndal reyndi allt sem hann gat
til að málið yrði látið niður falla.
Fiskistofustjóri tók vel í það mál, en
lögfræðingur Fiskistofu alls ekki.
Heimildamenn blaðsins segja að
Hilmar Baldursson, lögfræðingur
veiðieftirlits, sé fylginn sér og sættist
ekki á að taka tillit til vinskapar eða
stjómmálaskoðanna þeirra sem upp-
vísir verða að kvótamisferli. Afstaða
Hilmars hefur orðið til þess að öllum
að óvörum var ákveðið að leggja starf
hans niður og stofna til annars, aðeins
breytt frá því starfi sem hann gegnir í
dag.
Búið er að ganga frá starfslokum
Hallvarðar Einvarðssonar ríkissak-
sóknara. Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins, á aðeins eftir að
Fleiri breytingar hafa verið gerðar
innan Fiskistofu. Fyrir nokkm var
Guðmundur Karlsson, sem verið
hafði forstöðumaður veiðieftirlitsins
gerður nánast óvirkur, með því að
starfi hans var skipt upp. Frá honum
var tekið eftirlit í landi og búið til nýtt
ákveða hvaða dag Hallvarður lætur
af starfi ríkissaksóknara.
Mjög leynt er farið með hvemig
umsamdist með starfslokin.
starf, en Guðmundur heldur aðeins
starfi sem yfirmaður veiðieftirlits á
sjó. Þessar breytingar vom gerðar
mjög óvænt og komu starfsmönnum í
opna skjöldu, þar sem góður rómur
hafði verið gerður af starfi Guðmund-
Með þessari ákvörðun er ljóst að
auglýst verður eftir nýjum ríkissak-
sóknara innan skamms.
Bryndís Schram
um innan-
flokksátökin
„Það var aldrei tekið á þessu
vandamáli, því þetta er vanda-
mál sem verður að uppræta, af-
greiða strax, láta það ekki koma
upp á yfirborðið. Eins og gert er
í öðmm flokkum. Flokkur sem
étur sig innan frá er ekki sigur-
stranglegur," segir Bryndís
Schram um innanflokksátök
síðustu ára í Alþýðuflokknum.
Bryndís er í opnuviðtali í blað-
inu í dag og þar ber margt á
góma. Sjá miðopnu.
Hrafn um ís
lenskt dómskerfi
„íslenska dómskerfið er orðið
að höfuðbóli óréttlætis í land-
inu,“ segir Hrafn Jökulsson rit-
stjóri. Sjá bls. 7
Barnaverndarmál
Bamavemdin á greinilega
undir högg að sækja og er
sums staðar rúin trausti.
Sjá nánar bls. 3
■ Mál ríkissaksóknara taka nýju stefnu
Hallvarður hættir í haust
Ætlar þú út í haust?
SAS Jackpot
SAS „Super Jackpot“ fargjöldin frá 13. september til 24. október eru
auðveld leið til að upplifa litríka haustdaga í Evrópu. Flogið er frá íslandi á
laugardögum og heim á föstudögum.
Hámarkstími er 1 mánuður og lágmarkstími 6 dagar. Barnaafsláttur er 50%.
Fáðu nánari upplýsingar á næstu ferðaskrifstofu eða söluskrifstofu SAS.
Kaupmannahöfn
Amsterdam
Brussel
París
Zurich
Flugvallarskattar eru innifaldir í verði.
21.030
29.300
29.380
30.630
30.590
M/SU
Laugavegi 172 Sími 562 2211