Alþýðublaðið - 25.07.1997, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.07.1997, Blaðsíða 1
■ Halldór Blöndal samgönguráðherra hefur nýverið opnað brúna yfir Gilsfjörð. Brúaráhugi hans er ekki til skiptanna Grafarvogsbúar gjalda þess - vegaáætlun var gerð til tveggja ára, en ekki til fjögurra eins og venja er til. Reykjavíkurborg bauðst til að lána ríkinu, en Ríkisendurskoðun sagði nei. Jafnaðarmenn mótmæltu framgöngu ráðherrans Samgöngunefnd Alþingis sam- þykkti, þrátt fyrir gagmýni stjómar- andstöðunnar, að vegaáætlun yrði að- eins samþykkt til tveggja ára í stað fjögurra eins og skylt er samkvæmt lögum. Þar með urðu endurbætur á Gullinbrú utan vegaáætlunar. Meirihluti borgarstjómar hefur lagt áherslu á að bætur verði gerðar á veg- ■ Ríkisendurskoðun um flugvallaframkvæmdir Unnlð fyrir 58 milf- ónránhmmihla „Hin umtalsverðu frávik, sem em á milli kostnaðaráætlana og hönnuða og raunkostnaður verictaka í mörgum framkvæmda eða verkþáttum, vekja upp spumingar um hvort grundvöllur kosmaðaráætlana Flugmálastjómar uppíylh að öllu leyti þær kröfur, sem gerðar em til slíkra áætlana við opin- berar framkvæmdir." Þetta segir meðal annars í skýrslu Ríkisendurskoðunar um flugvallaframkvæmdir á árunum 1992 til 1995. Það einstaka verk sem fór hlutfalls- lega mest fram úr áætlun er endurbæt- ur á burðarlagi á flugvellinum í Norð- firði, en það reyndist 87,9 prósent hærra en kostnaðaráætlun, kostaði 4,9 milljónir en átti að kosta 2,6 milljónir. Fyrsti áfangi tækjugeymslu á Höfn reyndist hins vegar kosta 38,5 prósent- um minna en gert var ráð fyrir. f skýrslu Ríkisendurskoðunar segir meðal annars: „Verkliðimir hönnun og tæknilegt eftirht vom aldrei boðnir út í þeim flugvallarframkvæmdum sem lentu í úrtakinu." Og síðar: „Könnun Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós að taf- arbótaákvæðum verksamninga í flug- vallarframkvæmdum var ekki beitt þí svo að verktaki skilaði ekki verki á réttum tíma.“ um að og frá Grafarvogi, en mikið öngþveiti myndast þar á álagstímum. Astæða þess að vegaáætlun var af- greidd til tveggja ára að þessu sinni, er sú að ekki náðist sátt meðal þingmanna Sjálfstæðisflokks um framkvæmdir næstu ára. Borgarstjómarmeirihlutinn, sem leggur áherslu á vegabætumar, bauðst þegar svo var komið að lána ríkissjóði 45 milljónir króna svo unnt yrði að hefja framkvæmdir hið fyrsta. Ríkisendurskoðun mat það svo að ekki væri heimild til að þiggja lánið. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir segir að hún telji jafnvel að Halldór Blöndal og sjálfstæðismenn í Reykja- vík, með samgönguráðherrann í fara- broddi séu með þessu að leggja stein í götu Reykjavíkurlistans sem hefur lagt áherslu á að ráða bót á þessari umferð- aræð hið fyrsta. Asta telur nauðsynlegt að máhð verði tekið fyrir strrx á haust- þinginu og komi inn á vegaáætlun til samþykktar svo unnt verði að hefjast handa við ffamkvæmdir og takaað láni þá peninga sem Reykjavíkurorg hefur boðið til framkvæmdanna. ■ Allan V. Magnús- son héraðsdómari Löngu fall- inn á tíma - hefur verið á fjórða mánuð að kveða upp dóm, sem hann á að gera á fjórum vikum Mál Stefáns Einarssonar gegn ríkinu var flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í bytjun apríl. Lögum samkvæmt hefur dómarinn fjórar vikur til að kveða upp dóminn. Nú er liðið á fjórða mánuð frá því málið var flutt, samt örlar ekki á dóminum. Hvorki náðist í Allan V. Magnússon né Friðgeir Bjömsson dómstjóra vegna málsins. Mál Stefáns snýr að dagpening- um sem hann vill að ríkið greiði sér dagpeninga fyrir hluta þeirra daga sem hann var á Litla-Hrauni. Fangelsisyfirvöld hafa hafnað kröfu Stefáns og segja hann hafa verið með sjálfstæðan atvinnu- rekstur í klefa sínum. Krafan er upp á 120 þúsund krónur. Fangelsisyfirvöld eiga að út- vega föngum vinnu, vilji þeir á annað borð vinna. Þá er og heim- ilt að leyfa föngum að vinna sjálf- stætt. Stefán var með tölvu í klef- anum og er það mál fangelsisyfir- valda að hann hafi starfað sem verktaki, en Stefán neitar því og segist hafa unnið sjálfboðavinnu. Ekkert finnst í bókum Litla- Hrauns um að Stefán hafi fengið heimild til að starfa sjálfstætt og á því byggist krafa hans, það er að honum hafi ekki verið útveguð vinna, en yfirvöld segja að hann hafi fengið munnlegt leyfi til at- vinnureksturs. Styrkir menn- ingarmálanefnd- ar hafa lækkað um sjö milljónir Sjá nánar blaðsíðu 6. HAFNARFJÖRÐUR • LAUGALÆKUR • SELFOSS • YESTURLANDSVEGUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.