Alþýðublaðið - 30.07.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 30.07.1997, Side 1
■ Halldór Asgnmsson ver embætti sitt Tekur forsetann á teppið Ráðherrann hefur sætt gagnrýni fyrir frammistöðu sína og snuprar forsetann með óvæntum hætti Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra hefur gripið til þess að kalla forseta lýðveldisins á sinn fund, þeg- ar forsetinn kemur til landsins. Þetta eru viðbrögð ráðherrans vegna þess sem forseti sagði á blaðamannafundi í Bandaríkjunum. Davíð Oddsson forsætisráðherra hafði áður sagt að hann væri fullsáttur með það sem Ólafur Ragnar Grímsson sagði á fundinum, og forsetinn hefði haft fullt samráð við sig. Mikil ólga er innan utanríkisráðu- neytisins vegna þess að þar þykir mönnum sem forsetinn haft ítrekað gengið framhjá ráðuneytinu með því að hafa til dæmis beint samband við ■ Súöarvíkurhreppur Minningareitur verður gerður - aðstandendur ráða hvort nöfn ættingja þeirra verður minnst eða ekki „Einstakir aðstandendur verði, eins og kostur, er í samráði varðandi hvað verður um rúst þess húss sem ástvinir þeirra fórust í. Einstakir að- standendur ráði því hvort nöfn lát- inna ástvina verði rituð á minningar- skjöld." Þetta eru orðréttar tilvitnanir í fundargerð sveitarstjómar Súðavík- urhrepps, en hreppsstjóm hefur ákveðið að gerður verði minningar- reitur vegna snjóflóðsins sem féll á Súðavík 16. janúar 1995. Ágúst Kr. Bjömsson sveitarstjóri segir að sér þyki þessi háttur vera skynsamur, en vitað er að aðstand- endur em ekki á eitt sáttir um að sendiráðin í því landi sem hann heimsækir, varðandi skipulagningu einstakra viðburða. Þá em nefnd dæmi á borð við yfnlýsingu forset- ans í Noregi, þegar hann hvatti til samninga milli þjóðanna hið fyrsta. Heimildir Alþýðublaðsins segja að innan Framsóknarflokksins hafi ver- ið þrýstingur á Halldór um að bregð- ast við því sem heimildarmenn blaðsins nefndu tangarsókn forsetans og forsætisráðherrans inn á starfssvið utanríkisráðherra. Þingmenn Sjálf- stæðiflokksins, sem talað var við í gær, vom undrandi á viðbrögðum ut- anríkisráðherra, og einn kvað þau jafngilda því að ráðherrann væri að snupra forsetann opinberlega. Ann- ars hefði hann einfaldlega rætt við hann án þess að láta það leka til fjöl- miðla. Sjálfur slær Halldór Ásgrímsson í og úr í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann segir meðal annars: „En það er svör hans eins og okkar hinna, að þau þurfa að vera vönduð". Einnig sagði ráðherrann: „Ég tel að forsetinn hafi ekki farið út fyrir sitt hlutverk". I því ljósi eiga margir erfitt með að skilja, hví ráðherrann hyggst taka forsetann á teppið. Sjá leiðara: Forsetinn og ráð- herrann. ■ Lára Margrét Ragn- arsdóttir Spurning hver á að tala , „Ég heyrði ekki það sem forset- inn sagði, en hef heyrt úrdrátt af því. Ég hef séð ummæli Halldórs og Davíðs og ég held að ég geti verið sammála báðum. Það er spuming, þegar menn komast í svona viðtöl, hvemig hlutimir æxlast," sagði Lára Margrét Ragn- arsdóttir, alþingismaður Sjálfstæð- isflokks og fulltrúi í utanríkis- málanefnd Alþingis, vegna þeirra stöðu sem komin er upp eftir Bandaríkjaför Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. - Þykir þér ástœða til að gera athugusemdir við það sem forset- inn sagði? ,JEf ég á að segja eins og er þá sýnist mér að Ólafur Ragnar sé að mynda einhveija nýja stefnu sem forseti. Ég held að þá línu verði að dansa mjög vandlega. Af þeim fregnum sem ég hef, þá virðist það sem hann sagði hafa fallið Banda- ríkjamönnum vel í geð, en hitt er annað að það er spuming hver á að tala fyrir hönd lands og þjóðar. Við sjáum að Ólafur Ragnar er með aðrar áherslur en Vigdís var með. Hann er að marka sér sinn völl í embættinu,“ sagði Lára Margrét Ragnarsdóttir. Flokkstjórnin og blaoið Flokkstjóm Alþýðuflokksins kemur saman í kvöld og þar verð- ur tekin endaleg ákvörðun um með hvaða hætti útgáfumál flokksins verða í nánustu framtíð. Allt bendir til þess að gengið verði til samstarfs við Dagsprent og útgáfu Alþýðublaðsins verði hætt. Síðasta tölublað í núverandi mynd kemur samkvæmt því út næsta föstudag. í þessu húsi, Sóleyjargötu 1, mun Halldór Ásgrímsson væntanlega hitta forseta íslands til að láta hann gera grein fyrir orðum sínum. í Morgunblaðinu sagði Haildór hins vegar: “Ég tel að forsetinn hafi ekki farið út fyrir verkssvið sitt.” gerður verði minningarreitur. ,Jvleð þessu verður hlustað á að- standendur og tekið tillit til vilja þeirra. Þetta er erfitt mál og það má ekki gleymast að líf heldur áfram hér í Súðavík og það verður að taka af- stöðu til hvað á að verða um svæðið. Þetta er opin gata og um hana er mik- iljpmferð, fólk stoppar og gengur um svæðið og það verður að ákveða hvemig þetta verður til framtíðar." í söfnuninni Samhugur í verki söfnuðust nærri 290 milljónir króna. Nú em eftir rétt rúmar 10 milljónir, en búið er að lofa meirihluta þeirra til byggingastyrkja. Búist er við að á milli tvær og þijár milljónir verði eft- ir, og hefur sjóðsstjómin ákveðið að þeim peningum verði varið í gerð minningarreitsins. Sveitarstjórinn segir að nokkuð mikið sé spurt um þær 64 eignir sem Súðarvíkurhreppur hefur auglýst til sölu, en ekkert tilboð hefur komið. Ágúst segir óvíst hvert sölverðið muni vera og hann á alls ekki von á að allar eignimar seljist, ástand þeirra er misgott, allt ffá því að vera mjög gott og sumar eignimar em þannig að best er að þær verði fjar- lægðar. Hreppurinn eignaðist allar þessar eignir með styrkjum frá Ofan- flóðasjóði. Mun Súðarvíkurhreppur þá ekki hagnast vemlega takist að selja margar þessara eigna. „Við verðum ekki rík af þessu,“ segir Ágúst Kr. Bjömsson. G ^ARÐARBER. • JARÐARBER • BLANDAÐIR ÁVEXHR • HNETUR OG KARAMELLA • SLJKKULAÐIOG JARÐAR£, ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Mjólkursamlag /V Saubárkróki "^57

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.