Alþýðublaðið - 31.10.1997, Blaðsíða 5
OKTÓBER 1997
ALÞYÐUBLAÐIÐ
NY FLOKKSMIÐSTOÐ
Gestur Páll Reynisson.
Þegar ný stjóm flokksins tók við
haustið 1996 setti hún sér það
markmið, að endurreisa miðstöð
flokksins að Hverfisgötu 8-10 í
Reykjavík. Þegar var hafist
handa við endurbætur á því
húsnæði, sem flokkurinn hafði
afnot af á 2. hæð. Því verki lauk
upp úr áramótum. Innréttað var
fundarherbergi, skrifstofa fram-
kvæmdastjóra máluð og útbúið
viðtalsherbergi.
Það húsnæði, sem Alþýðu-
blaðið hafði afnot af losnaði s.l.
vor. Framkvæmdastjórn ákvað
þegar að taka það húsnæði í
notkun enda ljóst, að það
húsnæði, sem fýrir var dugði
langt í frá til þess að hýsa alla
starfsemi flokksins. Mikið verk
var að taka saman og sortera
allan þann aragrúa skjala og
muna, sem í húsnæðinu var.
Þegar skipulag var á það komið
hófst hin eiginlega framkvæmd.
Skemmst er frá að segja, að
þessa síðustu daga í október
erum við taka í notkun fundar-
sal, sem rúma mun 50-60
manns í sæti auk annarar
aðstöðu. Það þýðir að halda má
venjulega flokksstjórnarfundi í
húsnæði ílokksins, standa fyrir
ráðstefnum og auðvitað Krata-
kaffi og öðru því, sem henta
þykir hverju sinni. Lögnum er
þannig fyrir komíð, að þessum
sal má með lítilli fyrirhöfn
breyta í kosningamiðstöð. Nauð-
synlegra húsgagna hefur verið
aflað. Endanleg notkun hús-
næðisins hefur ekki verið
ákveðin þ.e. hver fær hvað, hve
mikið og hvort eitthvað af
húsnæðinu verður komið í aðra
notkun. Hins vegar er ljóst að
komið verður upp aðstöðu fyrir
félögin í og utan við Reykjavík
sem og landssamböndin ( SUJ
og SA ). Þetta verður því
miðstöð flokksins á landsvísu.
Allt í allt þýðir þetta, að ný
flokksmiðstöð er að komast í
gagnið og það ekki í fyrsta sinn í
sama húsi. Ekki var örgrannt
um, að margur léti þá skoðun í
Ijósi, að brotthvarf Alþýðu-
blaðsins myndi þýða auðn á
skrífstofum flokksins. Sú varð
ekki raunin. Þegar eftir að
fyrstu endurbótum var lokið
tóku stjórnir og nefndir að nota
þá aðstöðu, sem til var orðin.
Segja má, að nú sé stöðugur
straumur fólks í flokksmið-
stöðina og sú litla fundar-
aðstaða, sem til var um s.l.
áramót sé vel nýtt. Skrifstofan
er fullmönnuð og vakt aila daga.
Stór hópur fólks hefur komið
við sögu þessara endurbóta og
lagt fram ómælda sjálfboða-
vinnu. SUJ hefur séð okkur fyrir
góðum mannskap og sama má
segja um Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur og SA. Hef ég
komist að því, að Rúnar
formaður er jafnvígur á sleggjur,
pensla og hin fínlegustu tilbrigði
raffræðinnar.
Okkar ágæti Tómas Waage
hefur haft vakandi auga á öllum
hópnum ( neitar þó nafnbótinni
yfirverkstjóri ) að ógleymdum
þeim Þorsteini Jakobssyni, Ella
smið, Ollu og Asu sem lagt hafa
að mörkum mikla vinnu. Þeir
meðlimir framkvæmdastjórnar,
sem í kallfæri hafa verið og
framkvæmdastjóri flokksins hafa
og lagt sitt af mörkum.
Rúnar Geirmundsson, Magnús Norðdal, Sigrún Benediktsdóttir, Ásta Þorsteinsdóttir og Tómas Waage.
Þorsteinn Jakobsson.
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson.
Kristinn Asgeirsson.
Salurinn að taka á sig mynd.