Vísir - 06.01.1976, Side 2
Hvernig fagnaðir þú nýju
ári?
Gu&björg Eggertsdóttir, hús-
móðir: — Ég fór á nýársball. Það
er i annað skiptið sem ég fer á
slikt ball. Ég skemmti mér alveg'
ljómandi vel, og er staðráðin i að
fara aftur ef ég mögulega get.
Sigurjón Böðvarsson, bifreiða-
stjóri:— Ég fagnaöi þvi vel. Ég
var bara heima i rólegheitum og
naut þess vel — það er alltaf gott
að vera heima. Samt skaut ég
fáum rakettum.
lnga Maria Hannesson,
afgreiðslustúlka — Ég notaði
áramótin til þess að hvila mig
rækilega. Þess vegna sat ég
heima en fór ekkert út.
Gunnar Birgisson, iagermaður —
Ég slappaði af i heimahúsi. Skaut
nokkrum rakettum um miðnætt-
ið. Svo fékk ég mér lika einn sopa
eða tvo og skálaði við kunn-
ingjana.
Óskar Pavið Gústafsson, niu ára:
— Til dæmis með þvi að borða
mat heima hjá ömmu. Svo fór ég
heim og horfði þar á sjónvarp. Þá
fór ég aö skjóta rakettum. Mér
fannst vera svaka mikið skotið og
skaut sjálfur nærri þvi úr pakka.
Þorvaldur Þorsteinsson, húsa-
smiöur: — Ég fagnaði þeirti litið
enda varla ástæða til. Ég gerði
mér engan dagamun var bara
heima og naut heimilisfriðarins.
Hvert var markmið kvennaórs?
Hugrún óladóttir skrifar:
,,t lok kvennaársins ættum við
konur kannski að leggja þá
spurningu fyrir sjálfar okkur,
hvort við höfum skilið markmið
þess.
Markmiðið var að auka tæki-
færi konunnar til alhliða mennt-
unar og jafnframt auka vitund
hennar um réttindi sin og skyld-
ur.
Þessiauknuréttindi og tækifæri
leggja konunni þær skyldur á
herðarað menntabörn sin i bestu
merkingu þess orðs. Baháitrúin
leggur sérstaka áherslu á mennt-
un og uppeldi, þvi uppfræðslan
getur ein skapað ný og farsæl
viðhorf með einstaklingum og
þjóðfélagi.
Uppfræðsla barnanna er
höfuðskylda móðurinnar og föð-
urins, og þar sem móðirin er
fyrsti uppalandi barnanna eru
skyldur hennar meiri og mennt-
unarréttur hennr ætti þvi að vera
meiri.
Húsmóðurhlutverkið er ekki
verðugasta verkefnið, sem konan
getur valið sér, en konan verður
að taka þátt i mótun heimilis, sem
er griðastaður allrar fjölskyld-
unnar og þar sem börnin eru elsk-
uð og uppfrædd.
Ekki er siður mikilvægt að
konan varðveiti sjálfstæði sitt og
hún verður umfram allt að var-
ast að likja eftir karlmönnum.
Fram á þessa öld var karlmaður-
inn einn um að heyja eyðingar-
styrjaldir.
Það eyðingarstrið, sem háð
er gagnvart ófullburða lifi á okk-
ar dögum, getur aðeins orðið til
þess að tefja konuna á leið hennar
til aukinnar vitundar um sjálfa
sig og möguleika sina.”
Auglýsinga-
plágan er
yfirgengileg
Lesandi skrifar:
,,Ég er aldeilis orðinn snar-
gáttaður yfir öllu þessu
auglýsingaflóði sem dynur yfir
mann i tima og ótima. Auglýs-
ingalesturinn i útvarpinu og
sjónvarpinu hefur þó aldrei
verið eins yfirgengilegur og
núna fyrir jólin.
A ég að trúa þvi að þetta til-
stand borgi sig? Hver er það
sem ekki slekkur á útvarpinu
sinu þegar auglýsingalesturinn
byrjar, eða a.m.k. hættir að
leggja eyrun við?
Og á ég að trúa þvi að það sé
jákvætt fyrir söluna að hafa
sömu sjónvarpsauglýsinguna
viku eftir viku á skerminum
löngu eftir að allir hljóta að vera
orðnir hundleiðir á henni?
Ég segi fyrir mig að sumar
auglýsingar eru farnar að fara
svo I taugarnar á mér að þæi
einar mundu nægja til þess aö
ég keypti aldrei varning þann
sem verið er að auglýsa i þeim
Það má vel vera að ég sé eitt
hvað sérstakl. sinnaður gagn-
vart þessum áróðri en þó er mér
nær að halda að svipað sé ástatt
með fleiri.
Ég held að raunin sé sú að
kaupmenn og aðrir þeir sem
auglýsa sinn varning sem mest
séukomniri kapphlaup hver við
annan að auglýsa ekki minna en
hinir, en öll þessi peningasóun
þeirra beri harla lítinn árangur.
Og nú ætlar strætó að fara að
aka með allskyns auglýsingar
utan a sér. Hvað verður það
næst, endar þetta með þvi að
hvergi verður hægt að vera i
friði fyrir þessari auglýsinga-
plágu?”
Guðmundur Halisson hringdi:
„Við erum hér nokkrir vinnu-
félagar að sperúkera I skiptingu
i hægri og vinstri öfl.
Þeir menn sem telja sig
vinstri menn og tala um sig sem
slika, ásaka aðra um að vera
hægrisinna, fylgjandi afturhaldi
og Ihaldi.
En mér er bara spurn, hvað er
vinstri og hvað er hægri?
Eru það vinstri menn sem
ráða núna t.d. i Rússlandi? Eru
það ekki fremur hægri menn en
vinstri, afturhaldsm enn af
hörðustu gráðu, sem gangasl
fyrir ritskoðunum og bönnum
við flestum hlutum.
Svo eru áhangendur þessara
aðila, bæði hér á landi og annars
staðar að tala um sig sem
frjálslynda og vinstrisinna. Vif
viljum meina að svo sé ekki, þvi
undir flaggi þessara aðila kom
ast hörðustu afturhaldsmenn
irnir til valda.
Það er e.t.v. timabært af
endurskoða hvað sé hægri og
hvað vinstri?”
Hvoð er
hvað er
vinstri,
hœgri?
Utanáskriftin: VISIR,
e/o „Lesendabréf”,
Siðumúla 14 — Rvik.
Hringið i sima:
86611 miili
kl. 13 og 15.