Vísir - 06.01.1976, Síða 3

Vísir - 06.01.1976, Síða 3
3 VISIR Þriðjudagur 6. janúar 1976. Verður veitt leyfi til þess að leigja Norglobal hingað til lands? Sjávarútvegsráöherra hefur gefið grænt ljós. Ef svo verður eykst afkastageta loðnubræðslnanna verulega. SJÁVARÚTVEGSRÁÐ- HERRA HLYNNTUR LEIGU Á NORGLOBAL „Það er ekki búið að taka neina lokaákvörðun i þessu máli, en við i þessu ráðuneyti erum þvi hlynntir að Norglobai verði tekið á leigu,” sagði Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráðherra, i samtali við Visi. Eins og kunnugt er fóru eig- endur isbjarnarins hf i Reykja- vik og Hafsíldar á Seyðisfirði fram á það við Sjávarútvegs- ráðuneytið að fyrirtækin fengju að taka norska bræðsluskipið Norglobal á leigu til loðnu- bræðslu á sama hátt og i fyrra. Matthias sagði: „Ég legg á- herslu á að loðnuveiðin verði meiri en i fyrra. Allir vilja minnka sóknina i þorskinn vegna hins slæma ástands stofnsins. Til þess að slikt sé framkvæmanlegt er nauðsyn- legt að hafa sem mestan verk- smiðjukost til loðnubræðslu.” í fyrra voru tvær afkasta- miklar loðnubræðslur óstarf- hæfar. Verksmiðja Hafsildar á Siglufirði og bræðsla Sildar- vinnslunar á Neskaupstað. Ef Norglobal verður við tslands- strendur á loðnuvertiðinni mun afkastageta loðnuverksmiðj- anna aukast um 1200 til 1300 tonn. Það kom fram i samtalinu við Matthias að Landssamband is- lenskra útgerðarmanna, Far- manna- og fiskimannasam- bandið og samtök sjómanna eru mjög jákvæð i þvi að leyfi fáist til leigu á Norglobal. —EKG SÍS neitar ásök- unum um bruðl í umbúðakaupum ,,Þaö væri fróölegt að fá að vita hvaðan þeir sem fréttina skrifuðu höfðu upplýsingar sínar eða hvort þeir einungis sjálfir settu sig í dómara- sætið," sagði Ólafur Jónsson hjá Sjávaraf- urðadeild SlS um frétt í Þeir voru Að gefnu tilefni vegna mis- skilnings sem fram hefur komið á frétt frá verðlagsráði sjávar- útvegsins um ákvörðun fisk- verðs i janúar, vill verðlagsráð taka fram að fullt samkomulag utan um vörur sem fari til mötuneyta og annarra stórra aðila en ekki beint til neytenda, jafnvel að kaupendur telji verð það sem þeir greiði fyrir fiskinn sé of hátt vegna hinna dýru umbúða. Ölafur sagði jafnframt: „Það var gerð breyting á um- búðunum fyrir tveimur árum. Ný mynd er á umbúðunum sem sammála var i yfirnefnd verðlagsráðs um fiskverðið, bæði þær breytingar sem gerðar voru á stærðar- flokkun fisks, svo og um aðra þætti fiskverðsins. . síðasta tölublaði Sjávar- frétta þar sem f jallað er um hvort SÍS haf i bruðlað í kaupum sínum á um- búðum utan um frystan f isk. 1 fréttinni segir að það sé talið að keyptar hafi verið umbúðir eftir breytinguna eru fallegri en áður. Gæði pappirsins eru þau sömu, og teljum við að ekki sé um of i borið. Þvi álitum við afar hæpið að slá þessu fram að óathuguðu máli, að þvi er virðist. Og varla takandi að skrifa frétt um jafn ómerkilega fullyrðingu.” —EKG Helmingi fleiri bresk verndarskip en íslensk varðskip á Nú eru tiu bresk herskip, verndarskip og dráttarbátar á miðunum umhverfis tsland. Það er helmingi fleiri en islensku varðskipin. Af þessum skipum breta eru fjórar freigátur, þrir dráttarbát- ar og þrjú birgða- og eftirlitsskip. Eitthvað hefur bretunum þótt gæsla sin ganga illa þvi þeir hafa fjölgað verndarskipum sinum. Nýtt herskip bættist i hópinn i gær og dráttarbáturinn Roysterer sem er eign breska flotans kom miðunum fyrir tveim eða þremur dögum. Þessar upplýsingar fengust i gæsluflugi flugvélar landhelgis- gæslunnar i gær. 1 gæslufluginu töldust 32 bresk- ir togarar á veiðisvæðinu frá Mel- rakkasléttu að Glettinganesi. Gæsluflugvélin Sýr flaug einnig yfir Kröflusvæðið og sagði skip- herra flugvélarinnar að nú legði minni gufu frá gossvæðinu en seinast þegar flogið var yfir. —EKG Erindi um hafréttar- ráðstefnuna og stefnu Bandaríkjastjórnar Bandariski prófessorinn dr. John J. Louge flytur erindi um störf Hafréttarráðstefnu Samein- uðu þjóðanna og stefnu Banda- rikjanna á morgun (miðvikudag) kl. 5.30 i Lögbergi, húsi lagadeild- ar Iláskólans, stofu 102. öllum cr heimill aögangur að fyrirlestrin- um. Prófessor Logue hefur setið alla fundi Hafréttarráðstefnunn- ar og fylgst náið með störfum hennar. Hefur hann ritað mikið um hafréttarmál, m.a. gefið út bókina „The Fate of the Oceans”. Dr. Logue er prófessor við Villa- nova University i Pennsylvania og forstjóri sérstakrar stofnunar háskólans, World Order Research Institute. 1 erindi sinu mun prófessor Logue ræða um útlit og horfur á samkomulagi á næstu fundum hafréttarráðstefnunnar og fjalla sérstaklega um sjónarmið og til- lögur Bandarikjanna i auðlinda- lögsögu og landhelgismálum. Algeng sjón á götum borgarinnar þessa dagana. Ljósm. Jim. Vilja koma í veg fyrir fleiri skemmdarverk Stjórn Framfarafélags Breið- holts III hefur farið þess á leit við borgarráð, að það hlutist til um að opið svæði við leikskól- ann Fellaborg verði hreinsað. A svæði þessu er heil náma grjóts, naglaspýtna og járnbúta. Tvivegis á siðasta ári voru unnin skemmdarverk á leik- skólanum og voru þá þessi auð- fengnu efni notuð til þess að brjóta með rúður. Auk þess voru rifin upp tré og gangstéttarhell- ur og húsið atað for, sem er i ó- mældu magni á opna svæðinu. Að sögn forstöðukonu Fella- borgar. Gvðu Sigvaldadóttir hefur tjón af völdum rúðubrot- anna verið gevsimikið, en borg- aryfirvöld hafa þó verið treg til að koma svæðinu i viðunandi horf. —SJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.