Vísir - 06.01.1976, Page 4
Þriðjudagur 6. janúar 1976.
4
Deilon milli sjúkroþjálfora og heilbrigðisráðuneytisins
„Vil að mínir sjúkl-
ingar njóti sömu
hjunninda og aðrír"
— segir Eðvald Hinriksson, bitbeinið í deilunni
— segir Sigríður
Gísladóttir, for-
maður félags
íslenskra
sjúkraþjálfara
frá viðurkenndum skólum. Ef
Eðvald fær inngöngu, þá getur
alþjóðasambandið neitað að
viðurkenna okkar félag, og
strikað okkur út af félagaskrá
sinni.”
Margir nuddarar hafa
meiri menntun en Eð-
vald.
„Það sakar ekki heldur að
geta þess, að allmargir nuddar-
ar hafa meiri menntun við
sjúkranudd eh Eðvald. Ef við
viðurkennum hann sem sjúkra-
þjáifara, má búast við fleirum
sem æsktu inngöngu i félagið.
Nú er ekki svo að félag okkar
sé svo rammlega lokað, að þar
þýði ekki að freista inngöngu.
Félag sjúkraþjálfara er aðeins
fagfélag þeirra sem hafa lokið
viðurkenndu prófi frá sjúkra-
þjálfaraskólum. Nafnbótin
sjúkraþjálfari er löggild. Það
eina sem við sættum okkur ekki
við i þessu tilfelli er það að með
þvi aö neita samningum við
okkur, skuli vera reynt að
þvinga okkur til að taka Eðvald
inn i félagið.
Það er verið að þvinga okkur
til að brjóta okkar eigin félags-
lög. Það getum við aldrei sam-
þykkt,” sagði Sigriður Gisla-
dóttir.
Vegna þess að ekkert varð af
samningum við Trygginga-
stofnunina, verða sjúkraþjálf-
arar nú að útbúa nýjan taxta til
að vinna eftir. Félagsfundur
þeirra tekur ákvörðun um það
um miöjan þennan mánuð.
,,En ég vona að ráðherra
standi við þá yfirlýsingu sina að
sjúklingar skaðist ekkert á
þessu, og Tryggingastofnunin
haldi áfram að greiða sinn
hluta,” sagði Sigriður. —OH
,,Ég vil bara að fólkið
sem læknar senda til
min njóti sömu hlunn-
inda og fólk sem lækn-
ar senda til annarra
sjúkraþjálfara. Hjá
sjúkraþjálfurum i fé-
laginu þarf fólk ekki að
borga nema 40 prósent
af kostnaðinum, en hjá
mér verður það að
borga fullt”.
Þetta segir Eðvald Hinriks-
son, bitbeinið i deilu sjukra-
þjálfara og heilbrigðisráðu-
neytis. Eðvald hefur starfsrétt-
indi sem sjúkraþjálfari. En
sjúkraþjálfarafélagið vill ekki
viðurkenna hann sem slikan. Og
þar sem Tryggingastofnunin
semur aðeins við sjúkraþjálfara
sem eru I félaginu, fellur Eðvald
utan kerfisins. Þótt hann hafi
starfsleyfi, fá sjúklingar sem til
hans eru sendir enga hjálp frá
Tryggingastofnuninni. 1 ofaná-
lag þarf meira að segja að
borga söluskatt, 166krónur fyrir
hvern klukkutíma.
„Eg kæri mig ekkert um að
fara i félagið. En til að sjúkling-
ar minir njóti sömu hlunninda
og sjúklingar annarra sjukra-
þjálfara, verð ég að vera i þvi.”
Til marks um þá viðurkenn-
ingu sem Eðvald hefur notið
fyrir störf sin hér á landi i 28 ár,
má nefna að læknar hafa sent
þúsundir sjúklinga til hans.
„Mörg sjúkrasamlög úti á
landi endurgreiða meira að
segja þeim sjúklingum sem
læknar senda til min”, segir
Eðvald, „án þess að þau séu
skyldug til þess”.
Sjúkraþjálfarar hafa m.a.
gagnrýnt i félagsblaði sinu, að
Eðvald skyldi fyrst sækja um að
gerast sjúkraþjálfari eftir að
Tryggingarnar voru farnar að
greiða hluta á móti sjúklingi.
Varðandi þetta sagði Eðvald:
„Ég get haft nóg að gera, og
ég hef unnið mjög mikið um æv-
ina. Það eru engin persónuleg
hlunnindi fyrir mig að
tryggingarnar taki þátt i kostn-
aði sjúklinganna. Ég fæ ekkert
meira. Það eru sjúklingarnir
sem njóta þessa. Hvers vegna
skyldu þeir ekki gera það, eins
og sjúklingar annars staðar”?
Vísir spurði Eðvald um próf-
töku í sjúkraþjálfaraskóla.
„Ef formaður félags sjúkra-
þjálfara, og aðrir sjúkraþjálfar-
ar i félaginu sem hvað elstir eru
i hettunni, treysta sér umsvifa-
laust i próf, þá get ég það.
En þegar ég hef á 28 ára
starfsferli minum gert ein-
hverjum eitthvað gott, og hjálp-
að með starfi minu, þá hefur
viss hópuralltaf risiðá móti þvi.
Ég er vanur þessu. En hvers
vegna þetta er gert, veit ég
ekki”.
— ÓH
„Prinsipástœður, en við
látum ekki þvinga okkur"
Eðvald Ilinriksson, liklega betur þekktur undir nafninu Mixon, I
nuddstofu sinni Sauna. Eðvald stendur þarna viö eitt af tveimur
tækjum sinnar tegundar hér á landi, vatnsnuddtæki. Hann var
fyrstur tii að koma með þetta tæki hingað, en fjöldi manna þarf á
þvi að halda. Ljósm. Visis: BG
„Það eru fyrst og
fremst prinsipástæður
fyrir þvi að við viljum
ekki viðurkenna Eðvald
inn í félag sjúkraþjálf-
ara. Það er alveg sama
hver á hlut að máli, af-
staða okkar væri sú sama
gagnvart öðrum í sporum
Eðvalds."
Þetta sagði Sigriður Gisla-
dóttir, formaður félags sjúkra-
þjálfara, um hitamál það sem
hefur leitt til þess að heilbrigð-
isráðherra vill ekki viðurkenna
samning Tryggingastofnunar-
innar við sjúkraþjálfara.
Deila félags sjúkraþjálfara og
heilbrigðisráðuneytisins um
veitingu sjúkraþjálfaranafnbót-
ar til Eðvalds Hinrikssonar ætti
að vera nokkuð kunn, miðað við
þau blaöaskrif sem urðu um
málið I aprfl i fyrra.
Rétt fyrir áramótin nú kom
upp sú staða i málinu, að heil-
brigðisráðherra neitaði að sam-
þykkja samninga sjúkraþjálf-
ara, nema I þeim væri klausa
sem segði að allir með réttindi
til að starfa sem sjúkraþjálfar-
ar hefðu inngöngurétt i félag
sjúkraþjálfara. Þetta ákvæði er
nauðsynlegt til að Eövald fái
aðild að samningunum, þvi að
Tryggingastofnunin semur að
eins við þá sjúkraþjálfara sem
eru i félagi sjúkraþjálfara.
Eðvald hefur ekki próf
frá viðurkenndum skóla
„Aðalástæðan til að við setj-
um okkur á móti þvi að Eðvald
fái inngöngu i félagið er sú að
hann hefur ekki próf frá viður-
kenndum sjúkraþjálfaraskóla.
Hann hefur aldrei starfað sem
sjúkraþjálfari, heldur sem
nuddari. Hann sótti um leyfi til
að starfa sem nuddari 1962,
sama ár og félag sjúkraþjálfara
var stofnað. En hann sótti þá
ekki um inngöngu i félagið.
Samt var um þriðjungur stofn-
félaga ekki með tilskilin próf.
En alþjóðasamband sjúkra-
þjálfara veitti sérstaka undan-
þágu, vegna þess að þetta fólk
hafði allt starfað að sjúkraþjálf-
un i mörg ár.
Þegar félag sjúkraþjálfara
var stofnað auglýsti Eðvald sig
einmitt hvað mest sem nudd-
ara. Hann sótti ekki um inn-
göngu I félag sjúkraþjálfara
fyrr en heilbrigðisráðherra
veitti honum löggildingu á sið-
asta ári, samkyæmt meðmæl-
um landlæknis.
Einfaldasta lausnin að
Eðvald taki sjúkraþjálf-
arapróf
Félag sjúkraþjálfara fór fram
á þaö við landlækni að Eðvald
tæki próf sem sjúkraþjálfari.
Landlæknir sagði að engar
reglur ákvæðu að það þyrfti. Og
þar við sat.
En einfaldasta lausnin hlýtur
auðvitað að vera sú að Eðvald
taki próf frá viðurkenndum
sjúkraþjálfaraskóla. Ef slikur
skóli getur viðurkennt hann sem
sjúkraþjálfara, þá er lika skil-
yröum fyrir inngöngu i félag
sjúkraþjálfara fullnægt,” sagði
Sigriður.
Hún benti einnig á, að félag
sjúkraþjálfara hefði skyldum að
gegna við alþjóðasamtök
sjúkraþjálfara.
„Félag okkar má ekki hafa
neina félaga sem ekki hafa próf
Sigrlður Glsladóttir, formaöur félags Islenskra sjúkraþjálfara á
vinnustað slnum, Endurhæfingastöö Kópavogs. Ljósm. VIsis: BG