Vísir - 06.01.1976, Síða 7

Vísir - 06.01.1976, Síða 7
Blóöflekkirnir lita vegginn hjá áætlunarbifreiöinni eftir fjöldaaftökuna, þar sem hryöjuverkamenn IRA myrtu tiu verkamenn f gær. Mennirnir voru á leiö heimfrá vinnu sinni og höföu ekki annaö til saka unniö en vcra mótmælendatrúar, en irski lýöveldisherinn(IRA) er hryöjuverkasamtök kaþólskra. Krefjost 594 milljón króno lausnorgjolds Vopnaðir ræningjar námu á brott forstjóra, þar sem hann var á fundi með stjórn fyrir- tækis sins i Paris á gamlársdaga. Þeir hafa nú krafiát 15 milljón franka (594 milljónir islenskar að- eins) lausnargjalds eftir þvi sem Parisarlög- reglan upplýsir núna loks. Úr Statfjarðargrunni i Norður- sjó telja Norðmenn sig mega vænta 520 milljón smálesta af oliu, sem mundi vera að verö- mæti miðað við núverandi oliu- verð um 11,5 billjarðar króna. Forstjóri Statoil Company, sem er eign norska rikisins og vinnur um 50% þessa olfusvæðis, sagöi blaðamönnum að þetta mundi vera einhver auðugasta oliulind heims. Lausnargjaldið hefur verið til reiðu siðan á föstudag, en enginn mun hafa borið sig eftir þvi. Forstjórinn, Louis Hazan, stýrir fyrirtækinu „Phonogram France”, en það framleiðir Philips-hljómskifur. Siöasti stjórnarfundur fyrir- tækisins 1975 stóð yfir þegar hálf tylft manna vopnaöir skamm- byssum og vélbyssum ruddist inn fundarherbergið. Allir voru mennirnir með falsskegg og hár- kollur fyrir dulbúning. Hazan forstjóra var troðið niður i koffort, en meðstjórnar- menn hans bundnir áður enræn/ ingjarnir yfirgáfu fundarher- Hann spáir þvi, að hámarks- framleiðslu (900,000 tunnum á dag) veröi náð 1984, en það jafn- gildi 45 milljón smálesta árs- framleiðslu af oliu. Menn velta nú fyrir sér tveim aðferðum aðallega til þess að ná oliunni á land. önnur felur I sér að leggja fastaleiðslur til eyjarinnar Sotra vestur af Björgyn, en hin er einskonar keðja af stórum bauj- um, þar sem oliuskipin mundu taka farma sina. Rœndu forstjóra „Phonogram France" ó gaml- ársdag á stjórnar- fundi í fyrir- tœkinu bergið. Til vara tóku þeir meö sér ritara fundarins fyrir glsl. — Ritaranum slepptu þeir þó strax, þegar þeir voru komnir með ránsfeng sinn út i flóttabilana, sendibifreið og fólksbifreið. Daginn eftir höfðu ræningjarnir samband við eiginkonu Hazans forstjóra og kröfðust þess að lausnargjaldið yrði haft til reiðu i gistihúsi einu á föstudaginn. Föstudagurinn leiö þó án þess aö nokkur kæmi til að hirða lausnar- féð. A laugardaginn munu ræningjamir hafa komið tveim orðsendingum til aöstandenda Hazans, þar sem sagði Hazan liði vel og að honum yrði sleppt, ef fyrirmælum ræningjanna yrði fylgt út i æsar. Seint i gærkvöldi gáfu ræningjarnir sig svo fram við fyrirtæki Házans og sögðust mundu ákveða annað stefnumót til að veita lausnargjaldinu viðtöku. Frönsku blöðin höfðu vitneskju um mannránið strax, en það eru samtök um það I franska blaöa- mannaheiminum, að birta ekkert um slik mál fyrr en fórnardýrinu hefur verið skilað heilu og höldnu og lögreglan telur öllu óhætt. Þetta óheyriíega háa lausnar- gjald sem ræningjarnir krefjast, erþóekki hæsta krafan, sem gerö hefúr veriö i kjölfar mannráns. Metiö var sett, þegar 200 milljón frankar voru greiddir I lausnar- gjaldfyrir jól i skiptum fyrir hinn niu ára gamla Christopher Merieux, en afar hans báðir eru tveir auðugustu iðjuhöldar Frakklands. Fjórar milljónir franka náðust aftur af lausnar- gjaldinu, þegar ræningjarnir skildu eina töskuna eftir i óöa- gotinu um leið og þeir tóku lausnargjaldiö. Norðmenn eiga eltt auðugasta olíu- svœði heimsins Dýrt er það Framfærsiukostnaður i Argentinu hækkaði svo á árinu 1975, aö þaö hlýtur að slá flest met. Hækkunin nam nefnilega 334,5%!! Seðlabanki Argentinumanna skýrði frá þessu i gærkvöldi um leið og tilkynnt var; að aflétt yrði takmörkunum á gjald- eyrisskiptum fyrir ferðamenn. En ferðamenn hafa neyðst til að kaupa pesóinn á alltof háu gengi. Hér eftir verður gengi hans látið fljóta I gjaldeyris- skiptum erlendra feröamanna. Rótari bítlanna skotinn Malcoim Evans sem fyrrum var umboösmaöur, framkvæmda- stjóri, rótari og Hfvöröur Bitianna þegar þeir voru á feröalögum, var skotinn til bana af lögreglunni I Los Angeles I gær. Ilann haföi miöaö riffli á lögregluþjónana og myndaö sig til aö skjóta á þá. Eigandi hússins, þar sem Evans bjó, hafði hringt i lögregluna og sagt, að Evans heföi læst sig inni i svefnherbergi með riffil og pilluglas og hótaði að fyrirfara sér. Lögreglan, sem ruddist inn til Evans, sagöi aö hann hefði miöaö riflinum á þá. Sex skotum var hleypt af og Evans létlifiö. Evans, sem var fertugur orðinn, hefur verið atvinnulaus um nokkra hrið. Rússneski Atta nýjar geröir sovéskra bifreiöa veröa sýndar á bíla- sýningunni I Brussel, sem opnuö veröur á föstudaginn. — Tass-fréttastofan skýrir frá þvi, að þar verði Lada Saloon i broddi fylkingar, en sá bill er FÍAT-inn smiöaöur i samvinnu viö FIAT- verksmiðjurnar itölsku. — Lada-verksmiðjan, sem reist var á bökkum Volgu, er nú stærst bilaverksmiðja Sovét- rikjanna og framleiðir 660,000 bila á ári. Framleiddar eru fimm gerðir af Lada. Rœningjaflokkur í ísrael Lögreglan i Jerúsalem tilkynnti I gær, aö hún heföi haft hendur i hári heils þjófaflokks, þar sem arabar og gyöingar i sameiningu létu greipar sópa um eigur náungans. Glæpaflokkur þessi hefur á samviskunni fjölda vopnaðra rána, sem framin hafa verið aðallega I byggðarlögum á vesturbakka Jórdan. Sumir gyðinganna I flokknum klæddust einkennisbúningum hersins og notuðu stolin hergögn frá tsraelsher viö ránin. Arabarnir geröu þaö helst aö benda ræningjunum á fórnarlömb, en sumir tóku lika virkan þátt i ránunum. Ekki er upplýst, hvort ræningjarnir voru fjörutiu eða fleiri. Krefst skaðabóta af Brando Einn af borgurum Los Ange- leshefur höföaöskaöabótamál á hendur leikaranum Marlon Brando fyrir hönd sonar sins sextán ára. Þeir krefjast 50 þúsund dala bóta fyrir meiðsli, sem drengurinn hlaut, þegar bfll þeirra feðga lenti i árekstri við jeppa Brandos i mars á fjallvegunum i Holly- wood-hæðum. William Gerber segist hafa verið ekki skammt frá húsi Brandos, þegar jeppinn ók beint framan á bifreið hans á mikilli ferð. — Ósagt er, hver úr fjöl- skyldu Brandos hafi ekið jeppanum. Marlon Branda og sonur hans: Einhver úr fjölsky Idunni ók jeppa leikarans, sem lenti i höröum árekstri i fyrravor. Mólhreinsun í Frakklandi Notkun erlendra oröa veröur frá og meö byrjun árs 1977 bönnuð i öllum auglýsingum i Frakklandi, þar sem auglýstur er varningur til sölu. Þetta var tilkynnt I dag um ný lög, sem taka eiga gildi um næstu áramót og varða auglýsingar, talaðar skrifaðar eða myndrænar. Þetta nær einnig til leiöarvisa, sem fylgja vélum og reikninga eða ábyrgðarbréfa, sem fylgja söluvarningi. Nema auðvitað aö viðkomandi sé skrifaö hvort eð er á erlenda tungu til útflutnings. En i frönskuná má hinsvegar ekki'slétt'a út- lenskunni. Svo er talaö um öfgarnar i málhreinsunarmönnum á Islandi! 7. HEFTI KOMIÐ V LA l 1 N 1 < GA l J IÐ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.