Vísir


Vísir - 06.01.1976, Qupperneq 8

Vísir - 06.01.1976, Qupperneq 8
8 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson 1 Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson i Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44^Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. simi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands. i lausasöliu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf. „Sjá göturnar fyllast af Ástum og Tótum" „Hver skilur öll þessi hús, sem i röðum liggja,” spurði borgarskáldið Tómas Guðmundsson á sinni tið. Og vister borgin skritin með öllum sinum bunu- stokkum, malbikuðu strætum og misjafnlega háum steinkössum. Sumum finnst borgarsamfélagið ómennskt, en aðrir sjá þar fegurð mannlifsins. Það er gæfa Reykjavikur að hafa eignast skáld, sem hefur komið auga á mannlifið sjálft i öllu þessu mikla múrverki. Meðan aðrir sjá aðeins malbikuð strætin hefur Tómas fyllt þau af Ástum og Tótum, hann hefur gætt húsin lifi og jafnvel Vatnsmýrina, sem i flestra augum er bara mýri, hefur hann gert að konsertsal, þar sem lóan æfir lög morgundags- ins. Svo er Tómasi fyrir að þakka, að Austurstræti er ekki bara gata. Þar „gripur þúsund hjörtu gömul kæti”, og þar „lærðist oss að skrópa úr lifsins skóla.” Jafnvel bankarnir og búðargluggarnir hafa fengið mannlegt yfirbragð. Þetta hefur Tómas gert fyrir Reykjavik. í inngangi að Ljóðasafni Tómasar segir Kristján Karlsson: „Tómas Guðmundsson er ástsælt skáld. Ljóðrænir töfrar kvæða hans bjóða heim hlýjustu lofsyrðum málsins. Svo hugþekkur er maðurinn bak við kvæðin, og svo persónulegur er andi þeirra sjálfra, að mannlegt viðhorf lesenda þeirra verður skilmerkilegast táknað með orðum eins og ástúð og vinarhug.” Það eru ekki einvörðungu Reykvikingar, sem eiga Tómasi þakkir að gjalda. Hann hefur ekki að- eins fyllt götur Reykjavikur af Ástum og Tótum, hann hefur lika sagt söguna af hversdagsmönnun- um tólf, sem fordildarlaust stóðu vörð um rétt sinn- ar þjóðar. Fyrir allt þetta, ástúðina og vinarhuginn, eru Tómasi færðar þakkir á þessum timamótum, þegar hann er 75 ára. Athyglisverðar hækkanir Fyrir skömmu var gefin út reglugerð um hækkun á ýmsum svonefndum dómsmálagjöldum, sem menn greiða fyrir þjónustu dómsmála og ýmiss konar leyfi. Gjöld þessi hafa lengi.verið i hróplegu ósamræmi við veruleikann. Dómsmálaráðuneytið hefur nú gert á nokkra bragarbót i þessum efnum þannig að menn greiða nær sannvirði fyrir ýmsa dómsmálaþjónustu og leyfi. Það hefur lengi verið tregða hjá opinberum aðilum að láta menn greiða rétt verð fyrir þjónustu, sem menn að réttu lagi ættu að greiða hver fyrir sig. Þess vegna er hér um framfaraspor að ræða, sem vert er að vekja athygli á. Sem dæmi má nefna að fram til þessa hafa menn ekki þurft að greiða nema fimm þúsund krónur fyr- ir leyfi til smásöluverslunar. Hér er sannast sagna um broslega upphæð að ræða, og þvi fer fjarri að of harkalega sé fram gengið, þótt gjald þetta hafi nú verið tifaldað. Sömu sögu má segja um veðbókar- vottorðin, sem áður kostuðu aðeins fimmtiu krónur. Það er næsta furðulegt, að menn skuli gagnrýna skynsamlegar aðgerðir af þessu tagi. Þvert á móti á að hvetja stjórnvöld til þess að halda áfram á þess- ari braut. í flestum tilvikum er réttmætt að þeir gjaldi fyrir þjónustuna, sem hennar njóta. Þessar hækkanir eru þvi bæði réttmætar og eðlilegar. y^5wrrtf¥ív Þriöjudagur 6. janúar 1976. VISIR Umsjón: Guömundur Pétursson. HAKARLAÆÐIÐ Hræðsla við hákarla er mikil við baðstrendur Ástralíu og á þessu ári gæti hættan orðið hvað mest. Strandgæslan hefur látið f rá sér fara aðvörun þess efnis að hákarla- hættan við baðstrendurn- ar hjá Sidney sé sú mesta i 20 ár. Þyrluflugmaður einn sem eftirlithefur með hákörlum, Ian Badham, tilkynnti sig hafa séð yfir 500 hákarla i einu, og voru sumir þeirra yfir 20 fet á lengd (sex metrar). Þeir taka að venja komur sinar meðfram ströndunum þegar hlýir haf- straumar færast nær landi. Hákarlaárásirnar hófust snemma þegar tvítugum veiði- manni Peter Cole, var þeytt upp úr sjónum af tveggja metra löngum hákarli úti fyrir Queensscliffe strönd hjá Sydney. Hákarlinn beit hann illilega i fótinn. Cole var þó svo heppinn að geta kraflað sig i land i tæka tið. Hinn ellefu ára gamli Wade Shipard var ekki eins heppinn, og er hann siðasta banatilfellið sem vitað er um. Móðir hans sá sér til mikillar skelfingar hvar hann hvarf i blóðugu löðri, þar sem hann var að tina krabba hjá Point Sinclair ströndinni i Suður- Ástraliu. En sögurnar af hákörlunum ganga samt eins og heitar lummur i almenning, og ekkert er dagblaðalesendum kær- komnara en sögur af hákarls- árásum, þar sem blóðugar lýs- ingar eru ekki sparaðar. Fyrirsagnirnar eru þær sömu áreftirár: ..Hákarlar klippa fót af kafara,”,,Hroðaiegur dauðdagi i hákarlskjafti” „Fótur bitinn af manni við Remote-strönd” eru nokkur dæmi um þau æsifréttaskrif sem almenningur drakk i sig i fyrra. Þótt árásir séu tiðar hafa aðeinsorðið 102 banaslys frá þvi árið 1791 (Sem eru tæp 3% af banaslysafjölda i umferðinni árið 1974) En yfirvöld trúa þvi að mikill fjöldi þess fólks, sem opin- berlega er sagt hafa drukknað, hafi i raun og veru verið étið af hákörlum. Margir eru á þeirri skoðun, að hákarl hafi étið Harold Holt fyrrum forsætisráðherra, sem hvarf i sjóinn nálægt Melbourne árið 1967. Lik hans fannst aldrei. Hákarlar Ástraliu eru stór- hættulegir mönnum, um það deila fæstir. Frægur hákarlasérfræðingur, Dr. Hans Haas, kom til Ástraliu ásamt hópi kvikmyndatöku- manna i þeim tilgangi að sýna fram á, að hákarlarnir væru i raun og veru meinlausir og hægt að hræða þá burt með þvi að kalla. Hann hafði ekki erindi sem erfiði. „Þessir hákarlar ykkar eru þeir verstu i heimi. Þeir eru allsendis óhræddir” sagði hann við fréttamenn þegar hinni skammvinnu dvöl hans lauk. Sérfræðingur i haflifsvisind- um, Dr. Victor Coppleson, hefur gert umfangsmiklar rannsóknir á atferli hákarla. Hann segir að þau afbrigði sem hættulegust séu mönnum séu tigrishákarl- inn, hviti broddhákarlinn, hval- hákarlar, gráir hákarlar, mocóar og sleggjuhákarlinn. Én öll afbrigði hákarla séu að meira eða minna leyti hættuleg. Einnig sagði hann að dýpi það sem hákarlar réðust helst á fólk i væri allt frá ótakmörkuðu til 60 centimetra. Veðrið skipti einnig engu máli. Dr. Coppleson sagði, að flestar mannæturnar færu ein- förum og héldu sig á þvi svæði, þar sem þær hefðu gert fyrstu árás sina. Annar sérfræðingur, Nicholas Gorshenin er þessu samþykkur, og segir að flestir mannætu- hákarlar mörkuðu sér ákveðið afmarkað svæði, og liðu engum samkeppni. „f mörgum tilvikum hefur hákarlinn elt fórnarlambið alveg upp að ströndinni, án þess að gera fleiri árásartilraunir. Björgunarmenn verða heldur aldrei fyrir árás er þeir hjálpa fórnarlambinu upp á þurrt land, sagði Gorshenin. Þessu til stuðnings nefndi hann árásina á hinn 21 árs gamla Gary Grace, en þar átti i hlut 3,6 metra langur tigrishákarl. „Hann skall á mér eins og múrbrjótur, og ég fann tennurn- ar stingast inni mig likt og rakhnifar” sagði Gary við fréttamenn, þar sem hann lá á sjúkrahúsi fölur af blóðmissi og losti. Um 95 spor voru saumuð i fótlegg hans allt frá vinstri þjóhnapp, niður læri og fótlegg. „Ég sá ekkert nema svartan skugga, sem reyndi að draga mig niður. Skoltarnir voru læstir um mig og sundbrettið mitt, en gegnum borðið gat hann ekki bitið, og það varjrvist lifi minu til bjargar.” „Eftir nokkur andartök skyrpti hann mér út úr sér, og ég buslaði upp á yfirborðið. v Þá greip hann aftur og dró hann niður. „Það hefur þó liklega aðeins verið smáhúðpjatla, sem hann beit i, þvi að ég gat losað mig. Ég sá blóð alls staðar og hélt ég mundi deyja af hræðslu.” Aðrir sundmenn komu honum til hjálpar, en á meðan hringsól- aði hákarlinn kringum björg- unarmennina, þar til þeir kom- ust að ströndinni, en þá synti hann i burtu. Gorshensin og Dr. Coppleson halda þvi báðir fram, að ef hákarl ræðst einu sinni á mann, verði að elta hann og drepa, þvi annars muni hann án efa endurtaka árásina. Þeir segja að soltinn hákarl ráðist á og gleypi næstum hvað sem er. 1 maga hákarla hafa fundust trommur, bútar af harðviði, kolasekkir, stórir járnbútar, heilir dýraskrokkar og útlimir manna. Sérfræðingarnir tveir eru einnig á þvi máli, að svokölluð fælilyf gegn hákörlum komi að litlu sem engu haldi. Eitt besta ráðið gegn hákörl- um, sem reynt hefur verið, segja þeir, hefur reynst vera netakerfið. Það er nú notað i og hjá Sidney, sem er fjölmennasta borg Ástraliu. Eftir að hryðja hákarlaárása hafði gengið yfir, fyrirskipaði stjórn Nýja Suður-Wales að þrjú stór net skyldu sett upp hornrétt við fjölsóttar baðstrendur, rétt utan við brimbrjótslinuna. Hvert net er 152 metrar á lengd og sex metrar á breidd. Á þennan hátt eru um 1.000 hákarlar veiddir á ári hverju úti fyrir Sydney, og þótt sumir komist i gegn og skjóti baðgest- um skelk i bringu, hefur ekkert dauðaslys orðið úti fyrir þessum ströndum frá þvi netin voru fyrst sett upp árið 1937.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.