Vísir - 06.01.1976, Blaðsíða 11
ar. Svo æxlast málin, áð Larson
deyr, Jim missir minnið en gull-
grafarinn fer i þorpið, sem risið
hefur við fætur fjallsins i gullæð-
inu. bar verður hann ástfanginn
að Georgiu. Hún er ung og létt-
úðug stúlka og er vart ástfangin i
bláfátækum gullgrafaranum.
Gullgrafarinn hyggst halda
matarboð handa Georgiu og vin-
um hennar á gamlaárskvöld en
hún svikur loforðið um að koma.
bá dreymir manninn draum þar
sem hann skemmtir stúlkunum.
bað er eitt frábærasta atriði
myndarinnar.
f lokin auðgast gullgrafarinn
skyndilega og hittir hann Georgiu
af tilviljun. Ástir takast með
þeim, þvi það er svo margt sem
breytist þegar peningarnir eru
komnir i spilið.
HUNDALIF
Aukamyndin sem sýnd er með
gullgrafaranum er ekki siður á-
hrifarik en Gullgrafarinn, en það
er Hundalif, gerð 1917. Hún fjallar
um umrenninginn sem finnur sér
sálufélag með hundi sem er i
orðsins fyllstu merkingu hundelt-
ur.
Hún gengur út á baráttu þess-
ara tveggja vesalinga og það
hvernig lifið er þegar draumar
rætast.
bað skyldi enginn láta Chaplin
fara fram hjá sér núna i skamm-
deginu, þvi með honum leiðist
engum, og engin ástæða að láta
skafrenning aftra sér að fara i
Hafnarbió.
EINS OG ÞAÐ RAUN-
VERULEGA GERÐIST...
Gamla bió
Hrói höttur -k-k-K-K
Gerð af Walt Pisney fyrirtækinu.
Það er eins og fyrri uag-
inn þegar maður fer i
Gamla bíó, að sjá teikni-
mynd frá Walt Disney.
Þegar sýningu er lokið er
maður allur nýr og endur-
nærður. Teiknimyndirnar
eru fyrir alla, konur og
karla, unga sem aldna.
beir sem sáu Jungle Book
hérna um árið minnast sumra
persónanna sem fram koma i
þessari mynd, s.s. eins og Sir Hiss
og Litla Jóns. bessar persónur
eru frábærar i máli og látæði,
enda var það svo, þegar ég sá
þessa mynd, þá veltust menn um
af hlátri, og a.m.k. einn maður
hreinlega grét allan timann.
1 auglýsingu segir að þarna
komi sagan af Hróa hetti eins og
hún raunverulega var. Sú sögu-
skoðun kemur fram að Sir Hiss
hafi dáleitt Rikharð ljónshjarta
og látið hann fara i krossferð til
fyrirheitna landsins, en siðan hafi
þeir félagar, Jón prins og Sir Hiss
tekið völdin. beirra markmið er
að skattpina þegnana eins og
framast er kostur. bá er það að til
kasta Hróa hattar kemur. Hann
rænir hina riku og útdeilir fénu
meðal þeirra fátæku.
betta likar Jóni prins að vonum
ekki, og i hvert sinn sem hann
minnist Hróa segir hann að hann
fái ekki frið i sálu sina fyrr en
honum hafi tekist að handsama
hann. Svo sygur hann á sér þum-
alinn og Sir Hiss biður hann að
hafa ekki svona hátt.
Að lokum sigrar réttlætið, Jón
prins og Hiss þurfa að hverfa frá
völdum, Rikharður fær þau aftur
og Hrói höttur kvænist unnustu
sinni.
Eiginlega er ekki til neins að
lýsa myndinni nánar, þvi sjón er
sögu rikari.
bess má geta hér að lokum að
þetta er i siðasta sinn, sem skrif-
að verður um myndir i Gamla
biói hér i Visi að sinni, þar sem
framkoma forstjóra biósins viö
blaðið hefur verið með slikum
eindæmum siðan i sumar.
bá var skrifað i blaðið um ein-
hverja mynd og likaði forstjóran-
um ekki ummælin, hætti að aug-
lýsa i blaðinu og tók kuldalega á
móti blaðamönnum Visis sem
fóru þar i bió. bað er ákaflega
einkennileg sú pólitik sem þarna
kemur fram og sem betur fer
gætir hennar ekki i öðrum kvik-
myndahúsum.
NU
RÆÐUR
Ekkí áttu nu allir von á því
aö Kina ætti eftir aö hafa mikil
áhrif á tiskuklæðnaö fólks i
öðrum löndum. En á þvi
sviðinu er tekið upp á öllu, og
fæst verður útundan.
Og i Kina-fötum skaltu vera,
ef þú vilt fylgjast með tisk-
unni. Allt er dregið fram i
dagsljósiö, og reyndar er þeg-
ar fariö að bjóða upp á þennan
fatnað hérlendis.
Það er þó ekki þar meö sagt
að öðrum tiskuklæðnaöi sé
kastað til hliðar. Þó nú ekki
væri . Þaðyrði harla dýrt fyrir
þá sem vilja fylgjast alveg
meö, að fleygja hinum fötun-
um.
Nei, þvert á móti. Kina-fötin
eru notuð með öðrum, svo sem
gallabuxum, kúrekastigvélun-
um vinsælu og ýmsu öðru sem
notaö er dagsdaglega.
,, KlNA'' A BoLL
OG HVERSDAGS
i þessum ágæta klæðnaöi
fara menn svo i samkvæmi, a
boll og spoka sig um hvers-
dags. Þaö er til dæmis einkar
vinsælt að klæðast kimono, og
þá til dæmis með gallabuxum.
Enn sem komið er, sér mað-
ur þó þennan fatnað ekki boð-
aðan fyrír karla, heldur ein-
göngu konum. Og þaö er vist
ekki i fyrsta skipti sem reikn-
að er meó að eingöngu konur
vilji klæðast þvi sem kallast
,,tiskufatnaður".
En hvað um það, á myndinni
lengst til vinstri er kimono sem
nota má hversdags eöa i sam
kvæmi. Þvi næst er hlíðar-
hneppíur ullarjakki frá Tibet
með þröngum flannelbuxum.
A þriöju myndinni er kin
verskur kjóll meö síðbuxum
innanundir. Loks er svo kvöld-
kjóll með svörtum crepe bux-
um. Því næst vatteraður
kimono með blómamunstruöu
fóðri og blússu innanundir.
Siðast er svo frjálslegur
klæðnaður, blússa úr smá-
röndóttu bómullarefni, og við
hana eru þröngar gailabuxur.
En hvað skyldi Kina svo
ráða lengi?
— EA