Vísir - 06.01.1976, Blaðsíða 20

Vísir - 06.01.1976, Blaðsíða 20
-*>-r 0 >(n-r -□□mmi -uo-§ DZO; mmuDZ> BCrroai ti-J___Z>N30>h 20 Þriöjudagur 6. janúar 1976. VISIR Hlustaðu á bréfadálkinn i kvennablaðinu: Kæra Gunna. Konan min segir að ég sé klikkaður af þvi ég vil ganga i kvenmannsfötum. Tommi. Spáin gildir 7. janúar: miðvikudaginn Hrúturinn 21. mars—20. apríl: Þú gætir tekist á óvenjulega að- ferð sem gæti hjálpað þér að leysa verkefni eða persónuleg vandamál. Leggðu saman atburði gærdagsins og niðurstöður i dag, þá sérðu að út kemur rétt tala. Nautiö 21. aprfl—21. mai: Vinur þinn leggur fyrir þig óvenjulega bón. Meðai starfsfé- laga kemur fram ný kenning sem þú átt bágt með að samþykkja. Reynsla getur verið góð en vill þó oft hefta framfarir. Vertu sam- vinnulipur. Tviburarnir 22. mai—21. júni: Þú færir sönnur á mál sem þú hefur lengi haldið fram en fáir tekið undir. Hafðu þolinmæði með efasömum sálum. Notfærðu þér hugmyndaflugið sem þér var gefið. Krabbinn 21K jún i—23. júlí: Þetta er tilvalinn timi til að leggja á ráðin um framtiðina. Einhver sem þú berð mikla virð- ingu fyrir gerir allt sem hægt er til að hæfileikar þinir fái að njóta sin. I.jónið 24. júlí—23. ágústr Málin ættu að snúast þér i hag á næstunni. Ef til vill finnst þér mælirinn fullur en það rofar til bráðlega. Vertu ekki of mikið úti við, kvefið sækir óvenjulega að þér. Mcyj-n 24. ágúsí—23. sept.: Það tekst ánægjulegt samstarf meðal vina þinna. Þið færið meira fjör i daglegt lif bæði heima og á vinnustað. Hjónalifið verður mjög ánægjulegt. Það er tilvalið að gera eitthvað sér til upplyftingar. Vertu viðsýn(n) i umræðum og ályktun- um. Forðastu strembinn mat næstu daga, það er nóg af svo komnu i biii. Drekinn 24. okt.—22. nóv.: Dagurinn nýtist þér vel þar sem þú veist að hvaða marki skal stefnt. Hrintu i framkvæmd þvi sem þig hefur lengi langað til að ..gera. Taktu eftir spaugilegu hliðum hvers málefnis. Hogniaöurinn 23. nóv.—21. des.: Það er ótrúlegt hvað má gera til að gera umhverfi sitt fallegt og þægilegt. Kvöldinu ættirðu að verja til að kynna þér betur áhugamál fjölskyldunnar. Steingeitin 22. des.—20. jan.: Övæntur fundur við fólk sem þú heíur ekki séð i ár og daga breytir fyrirætlunum þinum og varpar nýju ljósi á það sem er að brjótast um i þér. Notaðu heilbrigða skyn- semi til að lagfæra það sem út af ber i kvöld. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Reyndu að vera rökvis i hugsun þegar þú fæst við viðskipti eða önnur fjármál, láttu ekki liðna atburði villa þér sýn. — Horfðu framá við, þú leitar einveru i kvöld. Vegna áhrifa stjarnanna ertu óvenju einbeitt(ur). Þú ert full(ur) sannfæringar og þorir að fara þinar eigin leiðir. Hresstu enn frekar upp á sjálfstraustið i kvöld.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.