Vísir - 06.01.1976, Page 24

Vísir - 06.01.1976, Page 24
VÍSIR Þriðjudagur 6. janúar 1976. GEÐILLUR FYLLIRAFTUR skemmir bíla Eitthvað hefur vinið farið ilia í einn bæjarbúa Akureyrar i gærkvöldi. Köðst hann á nokkra bila og svipti upp á þeini hurðunum svo að öry ggisfestingin slitnaði. Skuilu hurðirnar á brettunum og eru þeir nokkuð skemmdir eftir. Kkki tókst honum að slita festinguna á einum þeirra og hefur manninum greinilega mislikað það, þvi að hann sparkaði þá i hann.. Slóð mannsins var rakin af Geislagötu upp Oddeyrargötu i Þórunnarstræti þar sem lög- reglan tapaði henni. Af þessu ættu menn aö læra að skilja ekki bfla sina eftir ólæsta, en það virðist plága á Akureyringum að skilja þann- ig við þá þegar þeir fara að gamlast. — VS Fárviðri í Eyjum í nótt Fárviðri var i Vestmannaeyj- um i nótt en i morgun var aðeins l'arið að lægja, að sögn lög- reglunnar. Ekkert verulegt tjón hlaust af óveðrinu. en talsvert fauk af járni. óvanalega mikillsnjór er i Eyjum, og hefur verið mjög annasamt hjá lögreglunni. Lögreglan hefur þurft að að- stoða fólk við að komast leiðar sinnar, ýta bilum og annað slikt. Spáð var rigningu sem enn hefur ekki látið á sér kræla. Kannski sem betur fer, þvi ef rignt hefði i nótt hefði skapast vandræðaástand vegna flóðs á götum. Hætt er t.d. við að flætt heföi inn i kjallara. Snjóruðningar eru allt að 2 metrum við götur. -EA. Hafnarfjörður og Kópa- vogur ó kafi í snjó ibúar Kópavogs og Hafnar- fjarðar hafa ekki farið varhluta af fannfergi og umferðaröng- þveiti i kjölfar þcss. Ilefur verið nær ómögulegt að komast leiðar sinnar um götur bæjanna i gær- kvöldi og nótt. Kópavogslögreglan hefur haft meira en nóg að gera við að að- stoða menn i umferðinni. Hafa þeir haft jeppa i stöðugri notkun við að draga bila úr verstu sköflunum. Umferð er engan veg- inn komin i eðlilegt horf, en byrj- að er að ryðja götur. Hafnarfjarðarlögreglan hafði sömu sögu að segja. Þar hefur lögreglan haft mjög mikið að gera við að aðstoða vegfarendur. Má heita að bærinn hafi verið á kafi i snjó. Til aðstoðar við sig fékk lögregla hjálparsveit skáta með alla sina bila. Hafa þeir unn- ið stanslaust við að grafa bila úr fönn i gærkvöldi og nótt. Byrjað er að ryðja götur. —VS Loðnubátar leggja upp Loðnubátarnir eru nú að búa sig til veiða, en ekki eru nema tveir lagðir upp cnnþá, að sögn tilkynningaskyldunnar. Það eru Eldborgin og Pétur Jónsson, en þeir voru þó ekki búnir að bleyta næturnar i morgun. Loðnuverðsins er nú beðið ineð nokkurri eftirvæningu enda hyggjast bátarnir snúa til hafn- ar ef það verður ekki komið fyrir 18. þessa mánaðar. Bragi tók myndina um borð i Gisla Árna i gær. Einn skipverja var að ganga úr skugga um að allt væri vel bundið sem bundið átti að vera. —ÓT Neyðaróstand ó göt- um borgarínnar... Björgunarsveitir kallaðar út og annasamt mikinn hluta nœtur „Þetta er með mciri skafbylj um sem liafa komið, en annars er slikt nokkuð árvisst rétt til þess að minna okkur aðeins á tilveruna uppi á islandi”, varð Magnúsi Einarssyni aðal- varðstjóra hjá lögreglunni að orði, þegar við ræddum við hann i morgun um annasama nótt lögreglunnar. „Seinni bluta dags var færðin farin að þvngjast.og þá sérstak- lega i austari hluta horgarinnar og úthverfum. Við kölluðum til aðstoðar Flugbjörgunar- sveitina, IIjálparsveit skáta og björgunarsveit Slysavarna- félagsins Ingólfs, þvi við hefð- um aldrei getað þetta einir,” sagði Magnús. ,,Þessar sveitir komu með rúma 20bila. Við mönnuðum þá siðan og menn frá okkur voru með talstöðvar i öllum bilum. Þessir bilar voru allir til að- stoðar til miðnættis, og fjórir af þeim héldu áfram til klukkan fjögur i nótt.” Ómetanleg aðstoð björgunarsveitanna Uppi i Breiðholti var staðsettur snjóbill skáta mannaður af slökkviliðinu. Biliinnn var sannarlega þarfur, og Magnús sagði að lögreglan væri mjög þakklát björgunar- sveitunum þar sem þær hefðu veitt ómetanlega þjónustu og það ekki i fyrsta sinn. Björgunarsveitirnar að- stoðuðu læknavakt og neyðar- þjónustu. Strætisvagnakerfið gekk úr lagi en björgunar- sveitirnar komu fólki á biðstöðum til sins heima svo og öðrum sem voru i vandræðum með bila sina eða heimferðir á annan hátt. Aðal gatnakerfið var komið i þokkalegt lag i morgun, en það verður samt ekki i fullkomnu lagi fyrr en liður á daginn. Lög- reglan hvetur fólk sérstaklega til þess að fara ekki á vanbúnum bilum. Keðjur og vatnsvarið rafkerfi er fyrsta skilyrðið til þess að hægt sé að treysta á bilana. Engin stór óhöpp eöa tjón Marga þurfti að aðstoða i gærkvöldi og i nótt, og margir urðu að skilja bila sina eftir. Þá kom margt fólk á lögreglu- stöðvarnar og til kasta lög- reglunnar og hjálparsveitanna kom þegar þurfti að skipta um vaktir t.d. á sjúkrahúsum. Auk aðstoðar hjálpar- sveitanna má geta þess að jeppaeigendur komu möTgum til hjálpar. Jeppar voru viða á ferð i gærkvöldi, drógu bila út úr sköflum og kipptu bilum til hliðar sem drepist hafði á. Ekki er vitað til þess að nokkur'óhöpp hafi átt sér stað sem orðer á gerandi eða tjón. Þó var eitthvað um rúðubroten árekstrar voru engir verulegir, aðeins nudd. t Árbænum bjóst lögreglan við þvi að mannlifið yrði komið i eðlilegt horf um hádegið. en þangað upp eftir lokaðist alveg i gærkvöldi, frá þvi um 5 og fram eftir kvöldi. Nú er verið að ryðja götur vtðast hvar, og ætti þvi að rætast úr þessu öllu rrTeð deginum, en viða eru skaflar allt að 3 metrar. -EA. Vegir rudd- ir ó Suður- landi í dag og einnig leiðin til Akureyrar Töluverður snjór féll á veginn til Hafnarfjaröar og fyrir ofan Hafnarfjörð i gær ogstöövuðust marglr bilar þar. i morgun var orðið fært til Keflavikur, sam- kvsemt upplýsingum vega- gerðarinnar. Einnig var snjólaust að mestu austur á Selfoss, nema innan borgarmarkanna og voru aðalvandkvæðin á að komasl upp fyrir Bæjarhálsinn. Á Suðurlandsundirlcndi er viða ófært, en víöast hvar er liafin vinna við að opna vegina, neina i Vik i Mýrdal, þar er enn versta veður. Ekki voru fregnir um færö lengra austur. Ofært var i morgun viö Leir- vogstungu i Mosfellssveit, en verið var að ryðja og er þess vænstaöidag verðifært vestur um allt i Keykhólasveit og einnig um Snæfellsnes. Leiðin til Akureyrar verður fær i dag, en ekki höfðu borist fregnir af færð þar fyrir^iustan né heldur af Vestfjörðum. -EB.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.