Vísir - 27.03.1976, Síða 10

Vísir - 27.03.1976, Síða 10
10 Umsjón: ólafur Hauksson Fyrrum nosisti í framboði sem forseti alþjóða- samtaka Rotary Míklar deilur hafa oröið um útnefningu fyrrum nasista sem forseta alþjóöasamtaka Rotaryklúbba. Maður heitir Wolfgang Wick, og er austurrlskur kaupsýslu- maöur. Hann var nasisti i siðari heimsstyrjöldinni. Þessi fyrrverandi nasisti var útnefndur til embættisins af ellefu manna nefnd. Venjan hef- ur verið sú að alþjóðaþing rot- arymanna hafa kosiö þann mann forseta sem nefndin hafði útnefnt. Talsmaður alþjóðasamtak- anna segir þaö óliklegt að ein- hver hinna 16.705 Rotaryklúbba tilnefni frambjóðendur á móti Wick. O Laugardagur 27. mars 1976 vtsm Sjálfsmorðsflugmaðurinn var leikarí í klámmyndum Atriöi úr klámmyndinni ..Einkakennari”. Þar lék Maeno flugmann- inn. Flugmaðurinn sem flaug á hús auðjöfursins Kodama í Japan, var litt þekktur leikari, Mitsuy- asu Maeno að nafni, 29 ára gamall. Almennt er talið að hann hafi flogið viljandi á hús Kodama, að hætti kamikaze-sjálfs- morðsf lugsveitanna í seinni heimsstyrjöldinni. Nafn Kodama er tengt Lock- heed mútuhneykslinu. Samtök öfgasinna höfðu hótað að láta sjálfsmorðsflugmenn steypa sér yfir þá sem tengdir voru mútu- hneykslinu. Maeno hafði aðallega leikið i klámmyndum og birtist hér mynd úr einni þeirra. Sú heitir „Einkakennari” og fjallar um „ástarævintýri” flugkennara i háloftunum. Mitsuyasu Maeno — taliö er aö hann hafi gengiö i sjálfsmorös- flugsveitir þær sem áttu aö granda aðiium i Lockheed mútuhneykslinu. Hann flaug á hús auöjöfursins Kodama, en skaöaöi engan nema sjálfan sig. aö 1 íYíXX aV yv'ótð- _-ÚóstlíY' HAUKAPLATAN: íslenskir eða enskir textar? í siðustu viku hófu Haukar fyrst islenskra hljómsveita að leika i Sesar. í tilefni þessa var blaðamönnum boð- ið að kynna sér þessa og aðra nýbreytni stað- arins i skemmtana- haldi. Hljómsveitin Hauk- ar, lifseigasta dans- hljómsveitin hérlendis er annars að æfa undir langþráða breiðskifu. Haukar fara utan til Mallorca I vor, liklega seinni hluta mai eða i júni að skemmta landan- um þar. Aöspurðir kváðust þeir ekki fara utan vegna pening- anna! Fram kom að hljómlist nýtur litils skilnings sem at- vinnugrein. Þetta væri hörku- vinna og þeir, sem legðu- harð- ast aö sér kæmust lengst. Platan sem Haukarnir stefna að hefur fengið góðan hljóm-. grunn meðal útgáfufyrirtækja hér heima. Ýmir Gunnars Þórð- arsonar, Geimsteinn Rúnars Júliussonar og Steinar hf. hafa sýnt áhuga á aö gefa plötuna út. Þessiþrjú fyrirtæki bjóða upp á jafnmörg mismunandi stúdió. Steinarhf. bjóöa Hljóðrita, Ým- ir stúdió i Englandi og Geim- steinn stúdió i Bandarikjunum. Enn hefur þeim félögum ekki gefist timi til þess aö Ihuga til- boöin nógu rækilega. Beinast liggur við að taka skifuna upp i London á leiðinni til og frá Mall- orca. Það þýðiraö Ýmir sé heit- astur. Hvað efni plötunnar snertir verða á henni lög eftir Jóhann Helgason (sem sjálfur er að gera breiðskífu) og Einar Vil- berg (en breiðskifa hans „Star- light” kom út i gær, föstudag), auk þeirra eigin tónsmiða (aöallega Kristjáns Guðmunds- sonar). Möguleiki er á, að með fljóti nokkrir hinna kunnu „Hauka-slagara”. Ekki voru þeir félagar á einu máli um það, hvort textarnir yrðu islenskir eöa enskir. Þó voru þeir sam- mála um það, að islenskir text- ar seldust betur. Seinustu 2 árin hafa Haukar verið atvinnuhljómsveit og gengið bærilega enda þótt fjár- hagslegur afrakstur sé sjaldn- ast I samræmi viö hina miklu vinnu sem tónlistin krefst. En eins og áður sagði ku yfirvöld oft skilningslitil gagnvart þvi, að erfitt er að reka fyrirtæki eins og hljómsveit. Við skulum bara vona að Mallorcaferðin og plötuupptak- an gangi vel og óskum Haukum hins besta i framtiðinni. Umsjón: Halldór Andrésson

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.