Vísir - 10.06.1976, Síða 6
Fimmtudagur 10.
júnl 1976 visir
Guðmundur Péfursson
Hersveit á veginum aö alþjóöaflugvellinum I Beirút.
Palestínuarabar
mótmœla
innrásinni
í Líbanon
Kanada treystir á
samninga til að
verja 200 mílurnar
Kanadamenn ætla frekar aö
treysta á alþjóölega samninga
en eftirlit til aö koma i veg fyrir
ágang fiskiskipa innan fyrir-
hugaörar 200 mOna efnahags-
lögsögu, sagöi Allan Maceachen
utanrikisráöherra Kanada á
þingi í gær.
Utanrikisráöherrann var aö
svara spurningu neðri málstofu
þingsins um hvernig vörn 200
milnanna væri fyrirhuguð.
Hann sagði að unnið væri að
gerð reglugerðar um það að er-
lend skip yrðu að fá leyfi til
veiða innan efnahagslögsögunn-
ar. Kanadamenn ætla að færa út
i 200 milur 1. janúar á næsta ári.
Við teljum að visu að mikil-
vægt sé að hafa varðskip til eft-
irlits og varnar, en við teljum
það ekki jafn mikilvægtog að ná
samningum við aðrar þjóðir um
veiðar”, sagði Maceachen.
„Mér virðist að það ætti að
veita fiskiskipum mest aðhald
að þau eigi á hættu að, missa
veiðileyfi ef þau virða ekki
samninga. A þennan hátt tel ég
að best takist að verja landhelg-
ina”, sagði ráðherrann.
Hryðju verkamenn
dœmdir til dauða
Ung hjön veröa hengd á
irlandi 9. júli, fyrir aö myröa
lögreglumann I Dublin i fyrra.
Sérstakur dómstóll sem fjallar
um málefni hryöjuverkamanna
kvaö upp þennan úrskurö i gær.
Poel Murray, 25 ára gamall
iðnverkamaður og 27 ára gömul
eiginkona hans Marie, voru i
hópi sem rændi banka i Dublin i
íyrra. Hópurinn náði 2,3
milljónum króna út úr bankan-
um, og var að flýja á brott,
þegar lögreglumaðurinn
Micheal Reynolds kom að. Hann
var ekki á vakt, heldur ók hann
framhjá bankanum af tilviljun.
Kona hans og barn voru með
honum.
Reynolds elti bankaræningj-
ana i bil sinum, inn i garð i
grenndinni./Þar var hann skot-
inn tU bana. Þriðji maðurinn i
hópnum biðurdóms, en sá fjórði
hefur ekki náðst.
Þrir dómarar kváðu upp þann
úrskurð að Murray hjónin
skyldu hengd fyrir morðið. Þau
fá ekki aðáfrýja dómnum. Þau
fá þó að áfrýja þeim úrskurði að
fá ekki að áfrýja, til áfrýjunar-
dómstóls i afbrotamálum.
Murray hjónin voru ekki i
réttarsalnum þegar dómurinn
var kveðinn upp. Þau hafa ekki
sótt réttarhöldin, enda hafa þau
lýst yfir að þau séu stjórnleys-
ingjar. Poel Murray sagði að ef
það ætti að hengja þau, þá
skyldi bara gera það, en hann
sagðist ekki vilja að þau yröu
brotin niður andlega.
Afbrotamaður var sfðast
hengdur á Irlandi 1954, einnig
fvrir morð.
Ilinir herskáu palestinuarabar
á vesturbakka Jórdanárinnar
kveiktu elda og æptu i mótmæla
skyni við innrás sýrlendinga i
Libanon i gærkveldi, að þvi er út-
varpiö i israel skýröi frá.
Sérstakar sveitir israelsmanna
til að bæla niður óeirðir köstuðu
táragassprengjum á hóp mót-
mælenda i borginni Ablus. Ekki
kom samt til átaka.
Óeirðir á vesturbakka
Jórdanárinnar hafa undanfarnar
vikur aðallega beinst gegn
israelsmönnum, en nokkurt hlé
hefur verið á þeim.
Mikill viðbúnaður er nú i israel
vegna atburðanna i Libanon.
tsrelskar herþotur fljúga þétt upp
að landamærunum, og varðbátar
eru á sveimi undan strönd
Libanon. Allt er þó meö kyrrum
kjörum.ogferðamenn svömluðu i
gær við baðstrendur i ísrael, að-
eins, rúman kilómetra frá landa-
mærunum.
Karen Anne Quinlan flutt með
leynd af sjókrahúsi á hjúkrun
arheimili
Kvartmíluklúbburinn
/íí/BBUÍÚ^
sunnudaginn 20. júní mun
K vartmíluklúbburinn standa fyrir j
Sandspyrnukeppni
við Hraun í Ölfusi
Keppt verður í fimm flokkum:
1. flokkur 8 strokka jeppar
2. flokkur 6 strokka jeppar
3. flokkur 4 strokka jeppar
4. flokkur mótorhjól
5. flokkur fólksbílar
Vœntanlegir þótttakendur tilkynni þótttöku í síma 50619
fyrir 15. Júní.
GÓÐ VERÐLAUN - ENGIN KEPPNISGJÖLD.
Stjórnin.
Karen Anne Quinlan var
flutt í gærkvöldi frá
sjúkrahúsinu sem hún
hefur dvalist á i New
Jersey, til hjúkrunar-
heimilis i grenndinni.
Karen Anne hefur óbætanlegar
heilaskemmdir og liggur i dái.
Hún hefur andað með aðstoð
öndunarvélar, en fósturforeldrar
hennar höfðu fengiö dómsúrskurð
fyrir þvi að taka mætti vélina úr
sambandi. Þau vildu að Karen
Anne fengi að deyja með sæmd.
En við tilraunir fyrir nokkrum
vikum kom i 'ljós að Karen Anne
gat andað án aðstoðar vélarinnar.
Karen Anne var flutt með leynd
út úr sjúkrahúsinu, og tveir
lögreglubilar fylgdu sjúkrabiln-
um að hjúkrunarheimilinu.
Fósturforeldrar Karen Anne
komu nokkru siðar, og voru öll
ljós slökkt i hjúkrunarheimilinu
þegar þau voru komin inn.
Karen hafði legið um nokkurt
skeið á einkasjúkrastofu i sjúkra-
húsinu, en áður lá hún á gjör-
gæsludeild. Engin batavon er
talin fyrirhana. Hún skaddaðist á
heila eftir aö hafa drukkið áfengi
og tekið inn taugapillur með.