Vísir - 14.06.1976, Side 9

Vísir - 14.06.1976, Side 9
VISIR Mánudagur 14. júnl 1976. Glasakvæðin fjalla um innihald glasanna. skrifuö I ýmsu formi margra glasaferða. Dunganon var öriátari á riddarskjöi en myndir. „Myndir Dunganons bera sterkan keim af draumi hans um heim- inn eins og honum fannst að hann ætti að vera,” sagði Steinþór Sigurðsson listmálari, þegar hann gekk með blaðamanni Visis um sýningu Dunganons i Bogasalnum. Á meðan við skoðuð- um myndirnar hljóm- aði um hátalarakerfið dagskrá, þar sem lista- maðurinn les úr ljóðum sinum, og syngur þjóð- söng St. Kilda sem hann samdi. Á milli er leikin tónlist eftir hann. Dagskrá þessi setur skemmtilega stemmn- ingu á sýninguna og veitir sýningargestum innsýn i sérkennilegan hugarheim lista- mannsins. Fastheldnari á mynd- irnar en riddaraskjölin „Dunganon fór ekki að mála fyrr en hann var kominn á sextugsaldur,” sagði Steinþór. „Hann var afar fastheldinn á myndirnar og vildi hvorki gefa þær né selja. Til dæmis verð- lagöi hann þannig myndirnar sem hann sýndi hér á landi fyrir 15 árum, að augsýnilega vildi hann ekki að nein þeirra seldist. Lágmarksveröið var $50.000. Vinum hans veittist auðveld- ara að fá hjá honum riddara- skjal en mynd. Sló hann marga landa sina til riddara og skipaði Ileyndarembætti á St. Kilda. Þó gerði hann einstaka sinnum myndir fyrir stórvini sina. Hér á sýningunni eru 3-4 myndir i einkaeign. r „Arla tað var um morgunin”. Taiið er að listamaðurinn sé þarna að lýsa sjálfum sér sem barni. Að hlátri varð I hálfri stöku öll heimsins frægö. Margar myndir listamanns- ' ins eru málaðar við ljóö hans. Myndirnar eru mikiö i serium og er ein serian sérstaklega tengd sjónum. Þær myndir eru málaðar við þetta ljóð: Úr öidugangs voða veittist mér björg á þöngla dranga. Rataði ég aftur að raulandi læk og litlu strái ljúfrar æsku, (Úr Draumförinni til St. Kilda) Um tima orti hann myndræn ljóð, glasakvæöin. Dunganon safnaöi einnig áhrifum i myndirnar viðs vegar að. Lét hann eftir sig nokkrar töskur fullar af margs konar myndum og fróðleik, úrklippum úr blöðum, timaritum og bók- um, sem vöktu áhuga hans. Ellilaunin fyrstu föstu tekjurnar Dunganon fékkst við hin margvislegustu störf um ævina. Meðal annars rak hann spá- dómsskrifstofu i Brussel, „astro-erótiskan ektaskapskon- tór” i Kaupmannahöfn og hús- næðismiðlun. Um tima var hann fréttaþulur hjá þýska útvarp- inu. Eitt af fyrirtækjum hans var framleiðsla og sala á St. Kilda dropum. En fyrstu föstu tekjur hans voru ellilaunin sem hann þáði af danska ríkinu siöustu 10 æviár- in. „Margir, sem þekktu hann litið, héldu hann ruglaðan,” sagði Steinþór. „En þeir sem kynntust honum betur fullyrða að hann hafi verið mjög greind- ur maður. Hann talaði t.d. fjöl- mörg tungumál og orti á mörg- um þeirra. Meðal þeirra tungu- mála sem hann hafði gott vald á voru íslenska, færeyska, franska, spánska, auk eigin tungumáls, A-Máhla Máhnu, hinnar glötuðu tungu Atlantis. En hann var aðeins viðurkennd- ur af ákaflega þröngum hópi manna.” Árskort i dýragarðinn i Kaupmannahöfn „Myndir Dunganons eru aö mörgu leyti ákaflega athyglis- verðar,” sagöi Steinþór. „Þær eru einlægar og i þeim er sterk persónukennd. Myndirnar eru flestar málað- ar með oliu á pappir, en stund- um notaði Dunganon jafnframt þekjulitieða túss. Siðan lakkaöi hann yfir myndirnar, sennilega með sabonlakki. Þær eru mikiö i serium, meöal annars eru i safninu Is- landsmyndir, mannamyndir og dýramyndir. Dunganon athug- aöi mikiö dýr og hafði hann árs- kort að dýragarðinum i Kaupmannahöfn. Sagðist hann vera að læra apamál. Eins og ég sagði áðan, hélt Dunganon myndum sinum vel saman. Hann arfleiddi Lista- safn Islands að safninu, en i þvi eru um 250 myndir. Skjöl sin og pappira gaf hann Þjóöskjala- safninu eftir sinn dag, en hann lést I Kaupmannahöfn 25. febr. 1972.” —SJ Úr myndröðinni „Úr öldugangsins voða...” Ljósm. Loftur Dunganon safnaði öllum myndum sinum 1 möppur, stimplaði þær og númeraöi. Við vitum ekki hver merking núm- eranna er, en liklega hefur hann haft þau i ákveönu kerfi. A hverri möppu er titilsiöa, méð skjaldarmerki Dunganons og orðunum: MUSEO DUNGANON —• unico en el mundo — Ultima Thule, sem útleggst eitthvað á þennan veg: Safn Dungaons — einstætt I heiminum — frú land- inu lengst I norðri.” Draumurinn um St. Kilda Karl Kerúlf Einarsson fæddist á Seyðisfirði áriö 1897, en fluttist ungur með foreldrum sinum til Færeyja. Þar tók hann upp nafniö Dunganon. Auk þess gekk hann undir mörgum öðr- um nöfnum, s.s. Carolus Africanus gandakallur og próf. Emarson. Liðlega tvitugur strauk hann frá verslunarnámi til Spánar. Þar hóf hann landshornaflakk þaö sem hann hélt áfram alla ævi. Um þetta leyti fer hann að búa sér til sinn eigin heim. Þennan heim gerði hann eins raunverulegan og unnt var. Hann tók upp titilinn greifinn af St. Kilda. Þann titil fékk hann viðurkenndan 1946. St. Kilda er litil eyja fyrir noröan Skotland, sem Dunganon geröi að miöstöð draumaheims sins. Aldrei kom hann þó til greifadæmisins. Hann hafði sitt eigið vegabréf frá St. Kilda og var það tekið gilt. Einnig gerði hann sér skjaldarmerki og notaði það mikiö. Að hlátri varð... Dunganon skrifaði mikið af ljóðum. Kjörorð hans, sem viöa kemur fyrir i ritum hans, er haft sem kjörorð sýningarinnar: FRA LISTAHATIÐ Litast um á sýningu á verkum Dunganons Hann gerði drauma- heiminn raunverulegan Cormorant XII Imperator av Atlantis, Hertogi af Sankta Kilda, „vanliga nevndur Carolus Africanus Einarsson Dunganon, Lord of Hecla”. Sýnishorn af minnisbókum Dunganons. I þær safnaði hann úrklipp- um úr bókum, blöðum og tfmaritum. riddara-skjal St Kilda ÍWVÍH.M ogii rou. t) hC; 'bUtxí ÍVv ic tílulái Goitit Mtn Liii.cc. tt u(ic tcttc a*! taá et itero öj< íiKcc.CKkt Ui kun Pi«<- cikt h»rk b«|»pe wcr Sjiwctwn- ' og Ví»lKfic léhoUe *k Hiroff»e:c;gc aíí thc <k;g *ii Tkfer vcd íodul vi orotídcr eídci acxkt cn<i »i *ort ftngr dc Vrtmme. <kt ct ú tpnt \

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.