Vísir - 25.06.1976, Page 3
VTSIR Föstudagur 25. júnl 1976
3
Hafrannsóknarstofnun og Þjóðhagsstofnun:
Samvinna varðandi sam-
drátt í þorskveiðum
Þjóöhagsstofnun og Hafrann-
sóknarstofnun munu hefja sam-
vinnu i sambandi við samdrátt i
þorskveiðum. „Við höfum iengi
haft samvinnu, en eins og nú er
ástatt er sérstök ástæöa til þess”,
sagði Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar við Visi i gær.
1 nýútkominni skýrslu
Þjóðhagsstofnunar segir að
brýna nauðsyn beri til að semja
áætlun um aflamöguleika okkar.
Bæði hvað varðar árið i ár og eins
þyrfti að gera slika áætlun til
Iengri tima.
Segir þar ennfremur að könnun
á aflamöguleikum og á eöiahags-
legum afleiðingum sé bæði undir-
staða fyrir skynsamlega stjórnun
á fiskveiðum og ennfremur gerð
þjóðhagsáætlunar.
I skýrslu Þjóðhagsstofnunar
segir að þorskafli hér við land
verði 290 til 320 þúsund tonn á
þessu ári. Er þar meðal annars
gert ráð fyrir að afli útlendinga
verði um 60 þúsund tonn.
,,Ég vil taka það fram sérstak-
lega”, sagði Jón Sigurðsson,” að
áætlunin fyrir afla útlendinga er
byggð á skoðunum Hafrann-
sóknarstofnunarinnar.”
—EKG
Garnaveiki vart í Borgarfirði
Garnaveikitilfelli
fannst nýlega i
Deildartungu i Borgar-
fírði, en þar hefur áður
komið upp garnaveiki i
sauðfé fyrir nokkrum
árum.
„Okkur þykir þetta nú ekkert
nýmæli þvi að við erum alltaf að
finna tilfelli á svæöum þar sem
garnaveiki er landlæg” sagði
Sigurður Sigurðsson, dýra-
læknir og forstöðumaður Sauð-
fjárveikivarna, er Visir hafði
samband við hann vegna þessa
máls. Að sögn Sigurðar er sala á
sauðfé og nautgripum til llfs
bönnuð frá bæjum þar sem
garnaveiki hefur fundist á
ósýkta bæi, en engar hömlur eru
á sölu fjár til slátrunar.
Löngum hefur verið mikið um
garnaveiki i Mýrarsýslu i
Borgarfirði og I haust kom upp
garnaveiki i kúm i fyrsta sinn i
þeirri sýslu. Nýlega fannst sýkt
kú i Biskupstungum i Arnes-
sýslu, en hingað til hefur lítið
boriö á þessum sjúkdómi þar.
„Bændur virðast ekki lita
þennan sjúkdóm mjög alvar-
legum augum og er full ástæða
til aö benda þeim á að vera vel á
verði gegn honum” sagði
Sigurður. „Garnaveiki getur
loöaö við á bæjum árum saman,
án þess að menn verði hennar
varir. Það virðist vera útilokað
að útrýma sjúkdómnum nema
bændur séu þvi þrifnari og
gætnari og bólusetning rækt til
fullrar hlitar. Ef lömb undan
smitberum eru tekin frá að
hausti er mikil hætta á að þau
hafi smitast, en það kemur ekki
i ljós fyrr en að minnsta kosti
ári siðar” sagði Sigurður að
lokum.
—AHO.
Friðrik Sophusson afhendir Sjólfstæðisflokknum Armannsstofu.
Viðstaddir voru ættingjar og vinir Armanns heitins auk nokkurra
forystumanna Sjálfstæðisflokksins.
Ármanns-
stofa opnuð
Armannsstofa hefur verið mun skapast aðstaða fyrir sjálf-
formlega tekin i notkun I nýja stæðisfólk til að vinna að
Sjálfsstæðishúsinu við Bolholt. hugðarefnum sinum meö hjálp
Stofan er til minningar um blaða og bókakosts flokksins.
Armann Sveinsson sem iést Minningarsjóður Ármanns
fyrir nokkrum árum, en hann Sveinssonan gaf allar inn-
var einn af forystumönnum réttingar i stofuna, og flutti for-
stúdenta við Háskólann og maður sjóðsins, Friðrik Sophus-
ungra sjálfstæðismanna og um son stutt ávarp og afhenti
skeið framkvæmdastjóri Sam- gjöfina, en Geir Hallgrimsson
bands ungra sjálfstæðismanna. formaður Sjálfsstæðisflokksins
Armannsstofa er rannsóknar- veitti henni viðtöku fyrir hönd
og bókasafnsherbergi, og þar flokksins. —AH
SELTIRNINGAR STOFNA „OFNAVINAFÉLAG"
23 húseigendur á Seltjarnar-
nesi, sem orðið hafa fyrir bil-
unum I ofnakerfi húsa sinna, hafa
stofnað með sér félag. Félag
þetta hefur manna á milli gengið
undir nafninu „Ofnavinafélagið”
og er tilgangur þess að gæta
hagsmuna þeirra sem eiga yfir
höfði sér bilanir i ofnum sinum.
A undanförnum mánuðum
hefur orðiö vart við leka i vissum
tegundum ofna á Seltjarnamesi.
Hefur þetta valdið nokkru óhag-
ræði og kostnaði fyrir þá húseig-
endur sem fyrir hafa oröið.
„Ofnavinafélagið” hefur farið
þess á leit við Hitaveitu Sel-
tjarnarness, að rannsóknum á or-
sökum bilananna verði hraðað og
þær hafðar itarlegrien hingað til.
Þá hefur komið fram sú hug-
mynd, aö hitaveitan komi á fót
viðgerðarþjónustu fyrir bæjar-
búa.
Að sögn Sigurgeirs Sigurðs-
sonar bæjarstjóra eru bilanir
þessar ekki mjög viöa. 1 athugun
sem gerð var i vetur komu i ljós
69 bilanir i um 2000 ofnum. Voru
aðeins athuguð þau hús sem
byggð voru eftir 1967, en bilanir
hafa ekki komið fram i oftia-
kerfum eldri húsa.
Sigurgeir sagði, að rannsókn
hefði farið fram á efna-
samsetningu hitaveituvatnsins og
áhrifum þess á ofnana á vegum
Rannsóknarstofnunar iðnaðarins
og verkfræðifyrirtækinu Vermi
h/f. Ekki hefði tekist aö komast
að óyggjandi niðurstöðu um orsök
tæringarinnar. Hins vegar væri
nú gerð tilraun með meiri sýru-
blöndun. Væri sýruinnihald
vatnsins hækkað úr 8.5 gráðum í
9.5 gráöur.
Sagði hann að vonast væri til
þess að þessar aðgerðir dragi það
mikið úr skemmdunum, aö þær
verði innan eðlilegra marka.-sj.
Ófremdarástand í
kennslumálum vangefinna
lagafyrirmæli er þessi minni-
hlutahópur ennþá utangarðs i
menntakerfi þjóðarinnar, án
skóla og námsskipuiags, og
engin sýnileg merki þess að úr-
bóta sé að vænta.
Þetta kom m.a. fram á
fulltrúaþingi Sambands
islenskra barnakennara sem
handið var i Reykjavik nýlega.
Þingið sátu 72 fulltrúar frá tiu
svæðafélögum SIB. Skorað var
á menntamálaráðherra að gefa
þegar i stað út þá reglugerð um
sérkennslu vangefinna og
annarra afbrigðilegra nemenda
sem legið hefur i drögum i
menntamálaráðuneytinu i hart
nær ár og láta hana koma til
framkvæmda þegar i haust. Þá
átaldi þingið harðlega þá
ráðstöfun menntamála-
ráðuneytisins að stööva áform
Kennaraháskóla íslands um
framhaldsnám fyrir kennara
vangefinna og annarra af-
brigðilegra barna næsta starfs-
ár, en gifurlegur skortur er á
hæfum kennurum á þessu sviði.
Einsetinn skóli og samfelld
stundaskrá hefur verið baráttu-
mál Sambands islenskra barna-
kennara i áraraðir. Að þess
aliti er enginn hópur i þjóð-
félaginu jafn hart leikinn af
sundurslitnum vinnudegi og
grunnskólanemendur og eru
þeir einu nemendur i norðurálfu
sem búa við tvi- og þrisetningu.
Þingið harmaði þær deilur um
stafsetningarreglur sem áttu
sér stað á siðasta Alþingi og
benti á hættuna sem af þvi
stafar að meiri hluti Alþingis á
hver jum tima geti breytt
þessum reglum að vild og
skapað með þvi glundroða.
Þá var lýst yfir fyllsta stuðn-
ingi við það framtak krabba-
meinssamtakanna á íslandi, að
kynna skólanemendum þær
hættur, sem heilsu manna stafar
af völdum reykinga.
Mikla umræður uröu um
launa- og kjaramál og stöðu
kennarastéttarinnar og var
samþykkt að vekja athygli á
hinum lélegu launakjörum
kennara og vanmati
þjóðarinnar á störfum þeirra
sem vinna að uppeldis- og
kennslumálum.
—AHO.
Mikið ófremdarastand rikir i
kennslumálum vangefinna hér
á landi, en á þessu sviði hefur
viðgengist svo langvarandi mis-
rétti að lengur verður ekki við
slikt unað. Þrátt fyrir skýlaus
Nokkrir fulltrúar Reykvikinga á 24. fulltrúaþingi Sambands isienskra barnakennara ræöa vandamál
nemenda og kennarastéttarinnar.