Vísir - 25.06.1976, Side 24

Vísir - 25.06.1976, Side 24
VÍSIR Föstudagur 25. júnl 1976 60 þúsund- um stolið úr íbúð í Hafnarfirði Brotist var inn i ibúö i blokk viö Hjallabraut I Hafnarfiröi fyrr i vikunni og stoliö þar sextiu þúsundum krónum i reiöufé. Enginn var heima i ibúöinni er innbrotið var framiö. Málið er i rannsókn. ______________—AH Eldur í Smó- löndum Eldur varö laus I bDskúr I Smá- löndunum snemma i nótt. Slökkviliöiö var kvatt á staöinn, ogtókstaöslökkva eldinn áöur en verulegar skemmdir uröu. Eldurinn mun hafa kviknaö út frá gassuöutækjum er menn voru aö dytta aö bfl. —AH Ekki sœmandi að hafa fé úf úr varnar- samstarfi — segja ungir sjólfstœðismenn „tslensku þjóöinni er ekki sæmandi aö reyna að hafa fé út úr þátttöku i varnarsamstarfi. Gildir þar einu livort rætt er um beinar leigugrciöslur eöa fjár- mögnun innlendra fram- kvæmda,” segir i ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna samþykkti á fundi sinum i gær. í ályktuninni er itrekuð fyrri stefna Sjálfstæðisflokksins um að öryggishagsmunir einir veröi látnir ráða þvi hvort hér dvelst varnarlið. „Bandariska varnarliöið er hér i þágu islenskra öryggishags- muna auk þess sem her- stöðvarnar eru framlag okkar til sameiginlegs öryggiskerfis Atlantshafsbandaiagsins,” segir i ályktun SUS stjórnar. —EKG Sjúkraiiöar flytja ökumann vélhjólsins á slysa deild Borgarspitalans eftir slysiö í gær. ljósm: LÁ. UMFCRDARSIYSAALDA VÍÐA UM LANDIÐ Alvarleg umferðaslys verða nú dag eftir dag viða um land og kemur mörgum það á óvart, þar sem akstursskilyrði ættu nú að vera með besta móti á bjartasta tíma sumarsins. Er ástæða til að hvetja ökumenn og aðra vegfarendur til þess I að fara varlega og sýna fyllstu aðgát í umferð- i inni. Piltur ú vélhjóli slasaðist í Reykjavík Piltur á vélhjóli slasaöist tals- verterbifreiö var ekiö í veg fyr- ir hann á Langholtsvegi um há- degisbiliö i gær. Slysiö varð með þeim hætti að pilturinn ók norður Langholts- veg þegar sendiferðabil var skyndilega ekið inn á götuna úr bílastæöi. Kveöst ökumaður sendiferðabilsins ekki hafa orð- ið vélhjólsins var fyrr en það skall á bilnum. Meiðsl piltsins eru ekki full- könnuð, en hann mun m.a. hafa skorist á fæti. Hann haföi hlífðarhjálm á höfði. Þrír ú slysadeild eftir úrekstur í Hafnarfirði Þrir voru fiuttir á slysadeild eftir allharöan árekstur á mót- um Suöurgötu og Strandgötu i Hafnarfiröi I gær. Bifreiðarnar voru fólksbili úr Hafnarfirði og sendiferðabill frá Reykjavik, og skemmdust þær talsvert. Kona slasaðist ú Akureyri Kona slasaðist nokkuð er tvær bif reiðar rákust á á mótum Hamarstigs og Helga-magra-strætis á Akureyri í gær. Bifreiðarnar voru af Skoda- gerð og Volvo Amason, og skemmdust þær töluvert. Kon- an, sem slasaðist var farþegi i annarri bifreiðinni. r SAMÞYKKI ALLRA ÞARF TIL NYRRA ÞVINGANA, SEGIR EINAR ÁGÚSTSSON „Bókunin er gengin I gildi og þaö þarf nýja samþykkt til aö hnekkja henni. t þvi tilfelli vcröur ekki um aö ræöa aö ein þjóö geti beittt neitunarvaldi, heldur þarf samþykkt allra meölimarikja bandalagsins til aö fefla þessa samninga úr gildi og ég hef ekki trú á, aö til slDts muni koma.” Þetta er túlkun Einars Agústs- sonar, utanrikisráðherra, á gildistöku samninga Islands við Efnahagsbandalag Evrópu en honum var kynnt gildistakan i bréfi frá forseta ráöherranefndar Efnahagsbandalagsins, dagsettu i fyrradag. Þ jóðviljinn túlkar bréf EBE á þá lund, að haldiö sé op- inni leið til þvingana ef samning- ar um áframhaldandi veiðar bandalagsþjóöa i landhelgi okkar islendinga nást ekki. „Það sem ráðherranefndin á vafalaust við er. að þeir vilja samningaviðræð- ur um gagnkvæmar veiðar i land- helgi Islands og efnahagsbanda- lagsþjóðanna. Þaö er svo okkar mál, hvort við vUjum slika samn- inga,”sagði utanrikisráðherra að lokum. —JOH Tekst þeim að sanna að framhaldslff sé til? íslenskir og bandarískir vísindamenn vinna að rannsóknum ó miðils - hœfileikum Hafsteins Björnssonqr Mjög athyglisveröar rann- sóknir á miöilshæfileikum Hafsteins Björnssonar fara nú fram i húsi sálarrannsóknar- félagsins viö Garöastræti. Rannsóknirnar eru aö nokkru leyti framhald svipaöra rann- sókna er áöur hafa veriö geröar á Hafsteini i Bandarlkjunum. Þeir sem að þessari rannsokn standa eru dr. Erlendur Har- aldsson og dr. J.C. Pratt frá New York. Niöurstööur þeirra rannsókna sem nú standa yfir liggja eðli- lega ekki fyrir enn sem komið er, en margt mjög athyglisvert hefur þó þegar komið fram, og tók einn þátttakendanna jafnvel svo sterkt til oröa 1 samtali við Vísi, að þarna heföi tekist að sanna að framhaldsUf væri til. 1 Morgni, timariti Sálarrann- sóknarfélags Islands janúar-júli hefti 1974 er að finna grein eftir Erlend Haraldsson og Ian- Stevensson sem áöur hafði birst i timariti bandariska sálarrann- sóknarfélagsins. 1 grein þessari er m.a. að finna lýsingu á þvi hvernig rannsóknin fer fram, en svipuöum aöferöum er beitt I rannsókninni er nú stendur yfir. 1 hverri rannsókn taka þátt tiu einstaklingar auk Hafsteins sjálfs. MiöiUinn fær ekki að vita hverjir þátttakendurnir eru, og hann fær ekki að sjá þá. Þátt- takendur eru siðan leiddir fram einn og einn, raðaö af handa- hófi, og milli þeirra og miðUsins er ógagnsætt tjald. MiðiUinn lýsir siðan þvi sem hann sér eða finnur umhverfis hvern einstak- an, og les það inn á segulband. Þær tiu skýrslur sem þannig fásterusiðan vélritaöarupp, og eiga þátttakendur siðan að reyna aö finna þá skýrslu sem átt gæti við þá. Stundum hefur reynst erfitt aö finna rétta skýrslu, en með hjálp eldri ætt- menna þátttakenda er þó und- antekningalaust hægt að finna viöeigandi skýrslu. Mun þetta stafa af þvi að oft eru þaö fjar- skyldari ættingjar en t.d. for- eldrar og systkyni þátttakenda sem koma fram. Ekki er þó tU viöhlitandi skýring á þvi. Þaö, aö fram koma fjarskyldir ætt- ingjar, er þátttakandi jafnvel aldrei sá eöa þekkti viröist hins vegar geta útilokað að um hugs- anaflutning sé að ræða. Ekki hefur reynst unnt að hafa tali af dr. Erlendi eöa J.C. Pratt.en skýrt verður frá niður- stöðum rannsóknarinnar hér i blaöinu strax og þær liggja fyr- ir. —AH V

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.