Vísir - 30.07.1976, Síða 10

Vísir - 30.07.1976, Síða 10
10 ’ VÍSIR Útgefandi: Keykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Dorsteinn Fálsson. ábm. ólafur Ragnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Fréttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson Blaöainenn: Anders Hansen, Anna Heiöur Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. GuÖfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriöur Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúöur G. Haraldsdóttir. íþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Símar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611.7 linur Askriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö. Blaöaprent hf. ^ Gjaldeyrissparnaður Fréttaflutningur Visis af flugskýlamálinu svo- nefnda undanfarna daga hefur vakið mikla athygli og ekki sist fréttin, sem birtist i blaðinu i gær þess efnis, að Flugleiðir greiði varnarliðinu rúmar 11 milljónir króna árlega fyrir afnot af einu flugskýla varnarliðsins á Keflavikurflugvelli. Þetta kemur mönnum að vonum spánskt fyrir sjónir, eftir að upplýst hefur verið, að islendingar eiga þrjú flugskýli á flugvellinum, sem varnarliðið hefur notað endurgjaldslaust i 25 ár. Skýli það, sem Flugleiðir greiða fyrir afnot af einu sinni i mánuði er að sögn flugvirkja hið léleg- asta, hvorki vind- né vatnshelt, enda sé þeim séð fyrir stigvélum til notkunar inni i skýlinu. í kjölfar skrifa Vísis um flugskýlin þrjú, sem nú hafa verið staðfest að eru i eigu íslenska ríkisins, — hafa verið teknar upp viðræður milli talsmanna flugvirkjafélagsins og utanrikisráðherra um hugs- anlega nýtingu skýlanna i íslenskri þágu. Eru þær að sögn flugvirkja hinar gagnlegustu en niðurstöður liggja enn ekki fyrir. 9 Þetta blað hefur skýrt frá þvi, að á siðasta ári hafi verið varið um 700 milljónum islenskra króna til viðgerða á flugvélakosti Flugleíða erlendis, og einnig hafi verið greiddar háar fjárhæðir i gjaldeyri fyrir eftirlit með flugvélum annarra innlendra aðila i útlöndum. Þá hefur einnig komið fram, að allmargir islensk- ir flugvirkjar, sem vinna erlendis, hafa sýnt áhuga á að koma heim ef hér skapast atvinnumöguleikar á næstunni. Talið er, að milli 50 og 100 manns geti haft atvinnu af viðgerðum á islenskum flugvélum ef þær fara allar fram hér á landi. Aðalatriðið i þessu máli er, að hægt verður að spara hundruð milljóna i gjaldeyri með þvi að flytja þetta eftirlit með flugvélakosti landsmanna inn i landið. Meint gjaldeyrisbrot Seðlabanki Islands og Sakadómur Reykjavikur vinna þessa dagana að þörfum rannsóknum á meintum brotum á gjaldeyrislöggjöfinni i sam- bandi við skipakaup islendinga erlendis frá. í fyrstu beindist athugunin aðallega að kaupum á flutningaskipi til landsins, en nú hafa kaup fiski- skipa verið tekin til athugunar. Hafa talsmenn Seðlabankans lýst þvi yfir i Visi, að nýjar leiðir hafi verið fundnar til þess að kanna, hvort raunverulegt kaupverð skipanna hafi verið gefið upp er kaupin voru gerð. Ljóst er þegar að um misferli hefur verið að ræða varðandi þau skipakaup, sem nú eru til meðferðar hjá Sakadómi og lengi hefur leikið grunur á, að ekki væri allt með felldu varðandi kaup fiskiskipa til landsins og raunverulegt kaupverð hafi verið lægra en islenskum banka og gjaldeyrisyfirvöldum hafi verið tjáð. Vísir fagnar þvi, að Seðlabankinn hefur nú tekið þessi mál föstum tökum og væntir þess að starfs- mönnum bankans takist að leiða sannleikann i ljós. m Föstudagur 30. júli 1976. VISIR Umsjón: 'Jón Ormur Halldórsson y...... UMBÆTUR EDA ■ Jft | l\0 — munurinn á stefnu | n#%L§yP • Fords og Corters Umbætur i Bandarikjunum og hefur þaö kerfi sætt stöðugt harðari gagn- rýni þar vestra. Ford hefur lýst þvi yfir að hann sé fýlgjandi þvi, að rikið hlaupi undir bagga með illa stæöum sjúklingum en ekki mun óalgengt að alvarleg veikindi manna setji heilu fjölskyldurnar á hausinn þar vestra. Carter er ekki fylgjandi beinni þjóðnýt- ingu allrar heilbrigðisþjónustu en styöur sem fyrr segir lögboð- in sjúkrasamlög fyrir alla þegna þjóðfélagsins. Á að hjálpa fólki eða stinga því inn? Ford, forseti hefur lýst fylgi sinu við dauðarefsingu fyrir vissa alvarlega glæpi. Carter hefur tvistigið i afstööu sinni til þessa máls en segist ekki munu berjast fyrir dauðarefsingu. Ford telur lausn glæpaöld- unnar i Bandarikjunum vera harðari refsingar fyrir alla glæpi. Hann telur að skráning á skammbyssum I einkaeign og takmörkun á sölu hvers kyns morötóla til almennings muni ekki hafa nein áhrif þar um. Carter hefur tekið aðra afstöðu til þessara mála. Hann hefur mælt með banni á sölu ódýrra skammbyssna, sem allir geta nú keypt. Hann hefur einnig lýst fylgi við hugmyndina um skrán- ingu allra skotvopna i einkaeign en þaö hefur verið deilumál þar vestra, um áraraðir. Lausn glæpavandamálsins telur Carter ekki vera að stækka fangelsi landsins heldur félags- legar umbætur. Carter heldur þvi fram að með þvi að draga úr atvinnu- leysi og örbirgð megi einnig draga úr glæpum. Hann vill samhæföa baráttu rikisins og fylkisstjórna, sem miöi að minnkun atvinnuleysis aukins stuðnings við fátæka og hvers kyns félagslegar umbætur. Carter hefur einnig lagt áherslu á umbætur i fangelsis- málum þannig að fangelsi verði aö betrunarstofnunum i stað þeirra mannskemmandi refsi- stofnana, sem flest bandarisk fangelsi eru. Flest viröist benda til þess aö Ford forseti hljóti útnefningu repúblikana á þingi flokksins i næsta mánuöi. Eftir langa og stranga baráttu viröist Ronald Reagan hafa grafiö sfna eigin gröf meö þvf aö reyna aö kaupa vinsæidir fáeinna flokksþings- fuiltrúa, sem enn hafa ekki gert upp hug sinn meö þvi aö velja sem varaforsetaefni sitt mann úr sama fylki og flestir óvissu fulltrúanna koma frá. Ýmsir telja að Ford hafi einnig grafið eigin gröf i baráttunni viö Reagan meö þvl að hlaupa á eftir honum með stefnumál og sveigja stööugt meira til hægri eftir þvf sem Reagan gekk betur. Einnig eru þeir margir, sem telja að Ford hafi staðið sig einstaklega illa I embætti og að hann hafi þess vegna litla möguleika á að sigra Jimmy Carter i kosningunum i haust. Skoðanakannanir benda til að þetta sé álit meirihluta kjósenda f Bandarikjunum og ef marka má niöurstöður siðustu kannana mun Jimmy Carter sigra með miklum yfirburðum i fo rs e t ak osningunij m i nóvember n.k. Verulegur stefnu- munur Ofter talaö um.aðlitil breidd sé I bandariskum stjórnmálum og er eflaust mikið hæft i slíkum fullyrðingum en það verður þó að segjast að umtalsverður munur er á stefnu Fords og Carters i mörgum veigamiklum málum. Þó er Ford talinn standa á miðju i repúblikana- flókknum og Carter ekki langt frá miðju demókrataflokksins. Auk verulegs munar á afstööu Fords og Reagans til ýmissa Efnahags- og atvinnumál Ford hefur lýst þvi yfir aö hann hafi meiri áhyggjur af verðbólgunnL i Bandarikjunum en þvi mikla atvinnuleysi, sem þar rikir. Hann leggur áherslu á litil rikisafskiftí af atvinnullf- inuogá hallalaus fjárlög. Ford hefur sýnt þessa stefnu sina I verki með þvi aö beita þrásinnis neitunarvaldi sinu gegn laga- frumvörpum sem gera ráöfyrir aukningu á útgjöldum hins opin- bera. Þingið hefur nokkrum sinum samþykkt lagafrumvörp tvisvar og með 2/3 atkvæöa og þannig boriö forsetann ofurliði. Þvi hefur efnahagsstefna bandarikjastjórnar oft á tiðum oröið æði sundurlaus á siðustu mánuðum. Carter hefur gjörólik viöhorf til efnahagsvandans. Hann er fylgjandi auknum útgjöldum hins opinbera til þess að draga úr atvinnuleysi og vill þannig frekar hætta á aukna verðbólgu en aö láta 7-8% þjóöarinnar ganga atvinnulausa. Carter hefur lagt til, að einkaframtak- inu verði veittur styrkur til þess að bæta við starfsfólki og telur að slikt skili sér fljótt aftur i auknum tekjum þjóðarinnar. Carter hefur hins vegar hvatt til varfærni i rlkisfjármálum á velgengnistimum. Carter hefur gengið svo langt að mæla með atvinnubótavinnu til aö draga úr hinu mikla atvinnuleysi þar vestra en'Ford telur hins vegar að frjálsa markaðskerfið muni rétta við og sjá öllum fyrir at- vinnu séu búin skilyrði til þess. Velferðarkerfið Ford er harður andstæðingur ihald. þátta utanrikis- og varnarmála en þeim þætti stefnumála fram- bjóðendanna hefur nýlega veriö gerö grein fyrir I Visi, má merkja verulegan mun á stefnu þeirra i atvinnu- og efnahags- málum, heilbrigðismálum og afstöðu til glæpa og refsinga. Einnig er verulegur munur á afstöðu þeirra til umhverfismála og orkumála. rikisrekinna sjúkrasamlaga og kveður slikar stofnanir hafa reynst illa erlendis. Carter hefur hins vegar lýst yfir að hann muni vinna aö lögbindingu rikisrekinna sjúkrasamlaga, sem einkum fái tekjur sinar frá sérstökum lánaskatti og af- ganginn beintfrá rikinu. Mestur hluti læknaþjónustu og hvers kyns heilsugæslu er einkarekinn

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.