Vísir - 30.07.1976, Side 13

Vísir - 30.07.1976, Side 13
17 Útvarp í kvöld kl. 20. Skattamól í deiglunni Ólafur Nielsson fyrrverandi skattrannsóknarstjóri. Þátturinn „1 deiglunni” er á dagskrá útvarpsins I kvöld klukkan 20.40. AB sögn umsjónarmanns þátt- arms Baldurs Guðlaugssonar er ætlunin að ræða við þá Berg Guðnason lögfræðing hjá Skatt- stofunni og ólaf Nielsson fyrr- um skattrannsóknarstjóra. Munu þeir einkum ræða það sem miður fer f skattheimtu og ska ttarannsóknir. Þaö verður komiö inn á það að hve miklu leyti menn gjalda keisaranum það sem keisarans er og áreiðanleika framtala og aöferðir við skattarannsóknir. —SE Bergur Guðnason lögfræðingur Útvarp í kvöld kl. 20. AD ALAST UPP HJÁ TÓNSKÁLDI „Ég ætla að rabba við Selmu Kaldalóns um föður hennar, Sigvalda og fá hana tii að segja frá æsku sinni og uppvaxtar- árum”, sagði Pétur Pétursson þegar við spurðum hann um þáttinn ,,t fööurgarði fyrrum”, sem er á dagskrá útvarpsins I kvöld. „Sigvaldi var sennilega eitt ástsælasta og afkastamesta tón- skáld sem islendingar hafa átt og samdi hann liklega um þrjú- hundruð lög”. „Hann var héraöslæknir i ellefu ár við Isafjaröardjúp og meðan hann var þar tók hann upp nafniö Kaldalóns. Eftir þaö fluttist hann í Flatey á Bráða- firði og stóð tónlistarlif i miklum blóma meðan hann bjó þar. AB siðustu fluttist hann til Grindavikur. Hann var alla tið mikill vinur allra listamanna og hvatti hann ófáa unga listamenn til dáða og má nefna sem dæmi, að Gunnlaugur Scheving og Steinn Steinar voru tiðir gestir á heimili hans. y Eggert Stefánsson söngvari var bróðir Sigvalda og söng hann oft lög bróður sins við undirleik hans. Eflaust muna eldri reykvlk- ingar eftir hinum vinsælu „Kaldalónskvöldum”, sem telja 'má að hafi verið eins konar forverar listahátiðar. Þar spilaði Sigvaldi eigin lög og Eggert söng, voru kvöld þessi geysilega vinsæl skemmtun”. Dóttirin lika tonskáld Eggert Stefánsson sagöi eitt sinn um Selmu dóttur Sigvalda, að hún spilaði alveg eins og Pétur Pétursson ræðir við Selmu Kaldaións. Mynd: Karl Jeppesen. hann á pianó og enginn gæti túlkað lög hans betur en hún”. Selma er tónskáld sjálf og byrjaði að semja lög þegar hún bjó á Reykhólum á Baröa- strönd, þar sem maður hennar var héraðslæknir. Guðrún Tómasdóttir söng- kona hefur kynnt lög hennar en þau hafa ekki verið gefin út á plötum. Pétur sagði okkur, að það sem honum fyndist vera einkennandi fyrir lög Selm-u, er hvað lag- linan er ljúf og að mörgu leyti lik lögum Sigvalda, án þess þó að vera stæling. 1 þættinum yeröa léikin lög eftir þau feðginin Selmu og Sig- valda. Þátturinn hefst klukkan átta og stendur i fjörutiu minútur. —SE VISIR VÍSAR Á VIÐSKiPTiN - 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. . 12.25. Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Römm er sú taug” eftir Sterling Nortii Þórir Frið- geirsson þýddi. Knútur R. Magnússonles sögulok (16). 15.00 Miðdegistónleikar Rena Kyriakou leikur Pianó- sónötu i B-dúr op. 106 eftir Mendelssohn. Anneliese Rothenberger syngur lög eftir Hugo Wolf og Richard Strauss: Gerald Morre leik- ur á pianó. Josef Suk og St. Martin-in-the-Fields hljóm- svejtin leika Rómönsu nr. 2 i F-dúr op. 50 eftir Beet- hoven: Neville Marriner stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16ÞÚ20 Popphorn 17.30 „Birtan kemur með blessað strit” Jón Hjartar- son leikari flytur ferða- þanka frá Suður-Kina: — fyrri þáttur. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 íþróttir Umsjón: Bjarni Felixson. 20.00 í föðurgarði fyrrum Pétur Pétursson ræðir viö Selmu Kaldalóns um föður hennar, og flutt verða lög þeirra feðginanna. 20.40 i deigiunni. Baldur Guð- laugsson ræðir við Berg Guðnason og ÓlafNilsson um skattheimtu og skatt- rannsóknir. 21.15 „A þessari rimlausu skeggöld”, kórverk eftir Jón Asgeirssonvið ljóð eftir Jóhannes úr Kötium. Háskólakorinn syngur. Söngstjöri Rut L. Magnús- son. 21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan úr Svartaskógi” eftir Guð- mund Frimann GIsli Halldórsson leikari les (5). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Kvöldsag- an: „Litli dýrlingurinn” eftir Georges Simenon Asmundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr ies (20). 22.40 Áfangar Tónlistarþáttur I umsjá Asmundar Jóns- sonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.30 Fréttir þ.á.m. Iþrótta- fééttir frá Montreal. Dag- skráriok. Útvarp í kvöld kl. 22. Velkominn aftur Sebostian! Tónlistarþátturinn „Afang- ar” er á dagskrá útvarpsins i kvöld kl. 22.40. Að sögn Guðna Rúnars Agnarssonar, annars umsjónar- manna þáttarins, er ætlunin að spila nokkur lög af nýrri plötu John Sebastians. Fyrir þá sem ekki vita það má geta þess, að John þessi var stofnandi hljómsveitarinnar Loving Spoonfull, sem var mjög vinsæl þjóðlaga-rokkhljómsveit á sinum tima. John Sebastian fékk ungur áhuga á tónlist, enda var hann alinn upp við mikin tónlistar- áhuga. Sextán ára að aldri hljóp hann að heiman og ráfaði um lista- mannahverfi New-York borgar ásamt öðrum listamönnum i leit að frægð og frama. Eftir nokkur ár var hann „uppgötvaður” og var boðinn samningur sem hann tók. Eftir að hliómsveitin hætti hefur verið hljótt um John Sebastian, en nú geta aðdáend- ur hans tekið gleði sina aftur, þar sem hann er aftur farinn að syngja af fullum krafti. Titillagið á þessari plötu „Welcome back” hefur orðið geysilega vinsælt erlendis og platan fengið góða dóma i heild. Auk þess sem leikin verða lög Sebastians verður leikið lag með hljómsveit sem er afkvæmi Grateful Dead fjölskyldunnar. Sú hljómsveit nefnist Diga Rythm Band. Þetta eru ein- göngu áslátturshljóðfæraleikar- ar og eiga það allir sameiginlegt að vera nemendur eins frægasta Tamla (hljóðfæri) hljóðfæra- leikara Indverja. Aðalmeðlimur sveitarinnar er Micky Hart fyrrum trommari Grateful Dead. Lagið sem leikið verður i þættinum er leikið af fyrrum félaga hans úr Grateful Dead ,Jerrý Garcia á gitar. —SE

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.