Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 1
SEÐLAR TEKNIR AF FERÐAMÖNNUM VIÐ BROTTFÖR íslenskir peningar hirtir af ferða- mönnum við leit ó Keflavíkur- flugvelli Frá þvi aö nýju málmleitartæk- in vorusett upp á Keflavlkurflug- vellihefur löggæslan þar í nokkr- um tilvikum lagt hald á verulegt magn af islenskum eitthundraö- krónuseölum, sem fundust I vörslu farþega á leiö til útlanda. Lögreglustjórinn á Keflavlkur- flugvelli vildi ekki staöfesta I samtali viö blaöiö í gær, aö slikir seölar kæmu fram á málmleitar- tækinu sjálfu en sagöi aö siöan þaö heföi veriö sett upp heföi i nokkrum tilvikum fundist veru- legt magn af islenskri mynt i vörslu farþega. Lögreglustjórinn sagöi, aö pen- ingarnir heföu komiö fram viö venjulega málm og vopnaleit i farangri farþega en sérstök leit heföi ekki veriö gerö á farþegun- um. bó mun bera viö aö slikt sé gert ef rökstuddur grunur um fyrirhugað gjaldeyrissmygl er fyrir hendi. 1 flestum tilvikum hefur verið lagt hald á peningana og máliö sent til sakadóms en farþegum leyft að halda ferö sinni áfram en i tveimur tilvikum munu þó far- þegar hafa verið kyrrsettir en þá mun hafa verið um fjölþættari af- brotaö ræöa en gjaldeyrissmygl. Ferðamönnum er leyfilegt aö taka 1500 islenskar krónur meö sér úr landi og ekki i stærri mynt en 100 krónuseðlum. 1 nokkrum tilvikum munu feröamenn hafa verið meöi' fórum sinum tugi þús- unda króna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér mun hægt aö skipta islepskum pening- um i allflestum bönkum I ná- grannalöndunum en afföll munu töluverð. Þannig mun fást eitt sterlingspund fyrir um 380 krónur ibönkum i London, en skráö verö er um 330. A meginlandinu munu afföll enn meiri eöa allt að 50% af skráðu gengi. Stærri seölum en 100 krónum mun óviöa hægt aö skipta og þá aöeins meö gifurleg- um afföllum. JOH Tveir ráöstefnugesta koma til ráöstefnunnar I morgun. Þeir Erlendur Patursson þjóöþingismaöur i Færeyjum til vinstri og Hjalti Einarsson framkvæmdastjóri Söiumiöstöövar hraöfrystihúsanna. Ljósm. Visis: Karl. Mottfu'os gaf Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráöherra gaf strax tóninn þegar hann setti fimmtándu norrænu fiskimálaráösteöiuna á Hótel Sögu i morgun. Hann fjallaöi um verndun þorsk- stofnsins og ræddi hafréttar- mál. Það er enginn vafi á aö þessi mál veröa þau sem mest veröa rædd á ráöstefnunni, sem stend- ur fram á fimmtudag. Útfærsla Islensku fiskveiöi- landhelgi I 200 milur hefur eöli- lega vakið athygli, enda var sú útfærsla engan veginn viöburö- arsnauö. Og færeyingar hafa til- kynnt um útfærslu. Þá fara fram innan EBE umræöur um útfærslu i 200milur svo þaö mál tóninn snertir dani mjög. Og innan Noregs hafa alltaf veriö mjög sterkar raddir um 200 milna lögsögu, ekki sist vegna ollu- fundar i Noröursjó. Ekki veröur þaö sist úhuga- vert aö heyra um afstööu finna og svia sem ekki eiga land aö opnu hafi. —EKG. Þeir áttu oft i erfiðleikum með að hemja skap sitt i gærkvöldi FH-ingarnir, þegar þeir léku við Val. Hér eru þeir þó að reyna að „róa hvern annan niður”. Þeir Viðar Halldórsson, ólafur Danivals- son og Viðar Halldórsson. Sjá iþróttir í opnu blaðsins i dag. Helgi Bergs hefur stuðning meirihlutans „Egveit til þess aö 6 fulltrúar i bæjarstjórn Akureyrar munu styöja Heiga Bergs hagfræöing i bæjarstjórakjörinu i dag”, sagöi Soffia Guömundsdóttir varafor- seti bæjarstjórnar Akureyrar I samtali viö Visi i morgun. Þessir 6 bæjarstjórnarmenn eru fulltrúar Framsóknarflokks, Alþýðuflokks, Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna og Al- þýðubandalags. 1 bæjarstjórn Akureyrar eru 11 aöalfulltrúar og er Helgi Bergs þvi studdur af meirihlutanum. —SJ. Islensku Matterhornfararnir Björguðu mannslífi á Mt. Blanc tslensku fjallgöngumennirnir sem fóru utan fyrir stuttu til aö klifa Matterhorn, björguöu mannslifi á Mount Blanc á sunnu- daginn er þeir voru þar aö æf- ingum. Leiðangurinn var þar i æfinga- ferö við tindinn, sem er hæsta fjall Evrópu, og voru þeir á leiö niöur fjalliö er atburöurinn geröist. Höföu þeir ólafur Hauksson og Elias Jensson staönæmst á klettasyllu til aö taka af sér mannbrodda, er þeir heyröu skyndilega neyöaróp fyrir ofan sig, og siöan rnann velta niður skriöuna rétt hjá þeim. Staönæmdist hann augnablik og klettasnös, en nógu lengi tii að Ólafi tækist aö ná I aöra buxnaskálm mannsins og draga hann upp. Reyndist þetta vera kanadiskur fjallgöngumaöur, og er taliö fuUvIst aö hann heföi ekki orðiö til frásagnar heföi tvi- menningunum ekki tekist aö ná taki á honum. Ekki hafa annars oröiö bana- slys á Mount Blanc siöan áriö 1958. Þeir Matterhornfarar létu vel yfir sér i samtali viö Visi i morgun, en þá voru þeir komnir niöur af tindinum og héldu kyrru fyrir i frönskum bæ viö rætur fjallsins. —AH. 220 tonn ó 5 dögum Sólberg ÓF 12 fékk I fimm daga veiöiferö 220tonna afla, sem fór i frystingu og salt á ólafefiröi. Sólbergiö hefu þá aflaö frá ára- mótum um 2700 tonna . Skip- stjóri er Björn Kjartansson. Verið er aö vinna aö endur- bótum á ööru frystihúsinu á Ólafsfirði og þess vegna hefur móttaka á svona miklum afla verið dáhtiö bagaleg. RJ/GJ Ólafsfiröi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.