Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 2

Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 17. ágúst 1976 vism SVISIR* spyr Siguröur Sörensen, hafnsiigu- maður: — Við höfum nú verið að velta fyrir okkur, hvort það veröi ekki breyting til batnaðar á veðr- inu upp úr höfuðdeginum 29. ágúst. Birna Pétursdóttir, afgreiðslu- stúlka: — Ég álit það eiginlega alveg vonlaust, þvi að það er svo stutt eftir af sumrinu samkvæmt almanakinu. Annars er ég yfir- leitt bjartsýn. Gunnar Svanlaugsson, Iþrótta- kennari: — Ég held nú að allir séu að gefast upp á þessari endalausu rigningu hér um slóðir, og helst dettur manni i hug aö flytjast norður I sólina. Ég hef ekki mikla trú að þaö rætist úr fyrir haustiö. Heldurðu að það sé von á sólskini og sumarbliðu fyr- ir haustið? Vfkingur Jóhannsson, skólastjóri tónlistarskólans: — Verður maö- ur ekki að vona þaö? Annars væri maður orðinn einum of svart- sýnn. Höskuldur Pálsson, sjómaður: — Ég legg mitt traust á 25. ágúst þvi aö þá er sumartungl i norðri og um leið held ég aö hann breyti til hins betra. [ í Stykkishélmi ] „FINNST ÍG HAFA ÖÐLAST NÝTT LÍF" Vísir rœðir við siúklinaa sem aenaist hafa undir þarmaskurðaðgerð ó Akureyri Visir hafði samband við nokkra sem hafa gengist undir þessa að- gerð og bað þá að segja dálitið frá reynslu sinni. „Fyrst þegar ég kom norður var mér gerö grein fýrir þeim eftirköstum sem aðgerðin gæti haft i för með sér,” sagöi Sigrún Valdimarsdóttir, en húnbýr hér fyrir sunnan. „Ég þurfti aö fara oftar á salerni i byrjun en þetta jafnaði sig allt fljótlega. Sá fyrirvari var haföur á, aö ef eitthvað færi úrskeiöis yrði aö setja allt i samband aftur. Eftir uppskurðinn lá ég á gjörgæslu- deild i tvo sólarhringa. Heimilislæknirinn minn hefur siöan eftirlit með mér og skoðar mig á tveggja mánaða fresti. Það á að taka um þaö bil tvö ár aö jafna sig eftir aðgeröina.” Sigrún sagðist hafa lést um 27 klló siöan i nóvember þegar að- geröin var framkvæmd, og enn væri hún að léttast. „Ég mundi ráðleggja öllum sem eiga viðof- fitu að striða að gangast undir þessa aögerð. Þessu fylgdu mjög litlar áhyggjur eða örðug- leikar og Gauti Arnþórsson þótti mér einstaklega traustvekjandi læknir,” sagði Sigrún að lokum. „Léttur eins og andi” Þá ræddum viö viö mann nokkurn á Egilsstööum sem fór til Akureyrar i aðgerð fyrir tæpu hálfu ári. „Mér liöur vel og er léttur eins og andi, enda hef ég lagt af 35 kiló á f jórum mán- uöum,” sagði hann. „Ég léttist aö visu meira en gert var ráð fyrir vegna annars sjúkdóms sem þjakaði mig svo að það er ekki alveg að marka þessa tölu.” Hann sagði að uppskurðinum fylgdu þrátt fyrir allt dálitil ó- þægindi, og til dæmis væri ekki gott að borða mikla fitu eða grænmeti. Það virðist þó, að hans sögn, ekki skipta neinu máli hvort fólk borðar sæt- indi og kaffibrauð eða annað þess háttar. „Ég tel að þetta sé mjög áhrifarik aögerð og tvi- mælalausttilmikilla bóta, svo framarlega sem menn hafa áöur reynt allar aðrar leiðir til að megra sig,” sagöi hann. ,,Hef aldrei borðað meira” „Mér fannst alveg óbærilegt að vera svona þung og var búin að reyna allt til að megra mig,” sagöi 27 ára gömul kona sem við ræddum við, en hún býr fyrir noröan. „Ég hafði heyrt um þetta i Kaupmannahöfn og dreif mig svo til Gauta þegar hann byrjaði á þessu. Fyrir aðgerð- ina var ég 99 kiló en eftir 6—7 mánuði haföi ég lést um 37 kiló. Til að byrja með var ég látin borða eggjahviturikt og fitu- snautt fæði, en núna boröa ég meira en nokkurn tima áöur. Mér finnst það bæöi ótrúlegt og dásamlegt að þetta skuli vera hægt. Ég hef oröiö vör við aö ut- anaökomandi fólk litur þessa aðgerð hálfgerðu hornauga, en þetta er liklega bara framtiðin. Ég er ó skaplega án ægð m eð 1 if ið og mundi hiklaust ganga I gegn- um þessa aögerð aftur — ekki þarf annað en að lita i mynda- albúm til að sannfærast um það. „Finnst éghafa öðlast nýtt líf” „Ég er miklu hressari á lik- ama og sál eftir aögeröina,” sagði Marta Aðalsteinsdóttir i Múlasýslunni. ,,Það er ótrúleg raun að vera svona feitur og mér finnst ég næstum hafa ööl- ast nýtt lif.” Marta vó áður 106 kiló en fór niður I 79 á fjórum mánúöum. Eftir tvö ár er búist við að fólk hætti að léttast og siðan á að vera auðvelt að halda i horfinu. „Ég heföi auðvitað ekki farið i þessa aðgerð nema af þ vi að ég var orðin alveg von- laus um aö mér tækist að megra mig hjálparlaust,” hélt Marta áfram. „Þá eygði ég leið á Akureyri og á sjúkrahúsinu mætti ég miklum skilningi. Þar var komið fram við mig eins og manneskju, en ekki viöundur.” —AHO i 1 1 Tf ■'wBI I y***0 > PP8|»8» ^ ' *—p/p mm* : JB, : Hjúkrunarfrœðingar af- létta yfirvinnubanni Hjúkrunarfræðingar á Borgarspitalanum hafa aflétt yfirvinnu- banni þvi sem staðið hefur yfir i um það bil hálfan mánuð. Sem kunnugt er hafa hjúkrun- arfræöingar á gjörgæsludeild Borgarspitalans ekki unnið yfir- vinnu siðan 28. júli til að mót- mæla þvi mikla vinnuálagi sem rikt hefur á stofnuninni i sumar. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar hefur nú sent trúnaöarmönnum hjúkrun- arfræðinga á Borgarspítalanum yfirlýsingu þess efnis, aö allt verði gert sem unnt er til að draga úr vinnuálaginu á yfir- standandi orlofstimabili. Jafn- framter þvi heitið að framvegis verði gerðar ákveðnar ráðstaf- anir, og þá i náinni samvinnu við hjúkrunarfræöinga, til að koma I veg fýrir að svona á- stand skapist aftur. Hjúkrunarfræðingarnir hafa þvi aflétt yfirvinnubanninu i trausti þess að spitalastjórnin efni gefin heit. —SE wmm—mm^^mm—mJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.