Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 20

Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 20
VtSIR Þriðjudagur 17. ágúst 1976 Lá við stórslysi á Akur- eyri Það var mesta mildi að ekki varð stórslys er vörubifreið valt ofan I skurð á Akureyri I gær. Unnið hefur verið að fram- kvæmdum við Helga-magra- stræti i sumar, m.a. verið skipt þar um jarðveg, og var vöru- bifreiðin að koma þar að með sandfarm, er bakki skurðarins gaf sig með þeim afleiðingum aö bifreiðin hálf valt, og hálf seig að aftan niður i skurðinn. Tveir menn grófust að nokkru leyti i sand, en hlutu þó engin meiðsl. Var það mesta mildi að þeir skyldu ekki verða undir bifreiö- inni. —AH. Steypubíll valt á hliðina — Sex klukkustundir Steypubill úr Reykjavik valt á Alftanesvegi i gærkvöldi, og kostaði það mikið erfiði og fyrir- höfn aðkoma honum á réttan kjöl á ný. Ekki urðu slys á mönnum. BDlinn var fullur af steypu, með alls 25 tonn í tunnunni. Varö að fá kranabifreið til að koma bifreið- inni á réttan kjöl á ný, og tók verkið alls um sex klukkutima. Var þaðá mörkunum aðtækistað koma bilnum upp áður en steypan harðnaöi í tunnunni, en þaö hefði þýtt stórtjón fyrir viðkomandi steypustöð. —AH. Skortur á Uokk í Bandaríkjunum Skortur er á fiski sem frystur hefurveriö i blokkarpakkningar á Bandarikjamarkaö, aö sögn Hjalta Einarssonar fram- kvæmdastjóra hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Sérstaklega er skorturinn áber- andi á þorskblokk. Þrátt fyrir að verð á henni hafi þokast upp á við á siðustu vikum og mánuðum er munurinn enn of mikDl til þess að það sé nægileg hvatning fyrir frystihúsin, að auka blokkafram- leiðslu. Að sögn Hjalta Einarssonar er verð á blokkinni um 80 cent pundiö en á þorski i neytendaum- búðum i kring um dollar. Það þýðir að mismunurinn á veröi þessara tveggja pakkninga er um 80 krónur á kflói. —EKG. HUGSANLíGT AÐ LAN SEU SVIKIN ÚT segir Sigurður Guðmunds- son framkvœmdastjóri Húsnœðismálastjórnar ,,Það er ekki útilokað að þetta geti gerst,” sagöi Siguröur E. Guðmundsson, forstjóri Hús- næðismálastofnunar rfkisins, aðspurður um þá hugsanlegu misnotkun húsnæðismálaiána að menn byggðu hús með tveim- ur ibúöum á fölskum forsend- um, fengju tvö lán til bygg- ingarinnar, en þegar bygginga- framkvæmdum væri lokið, væru skilrúm brotin niður og húsinu breytt i eina ibúð. Sigurður sagði að trúnaðar- menn i hverju sveitarfélagi fylgdust með byggingafram- kvæmdum og ef þeir kæmust að þvi að einhver brögð væru i tafli til að svikja út lán, létu þeir Húsnæðismálastofnun vita. ,,Ef menn hafa ekki fengið lánið, en upp kemst um svik, fellur lánveiting niður. Hins vegar er erfiðara aö eiga við þá sem hafa fengið lánið. Að vísu er til heimild til að segja láninu upp, en við höfum ekki beitt henni hérna,” sagði Sigurður, „enda eru slikar aðgerðir held- ur harkalegar.” Sigurður sagði að sifellt væri verið að auka eftirlitið með byggingaframkvæmdum og leitað nýrra leiða til að menn byggi ibúðir sinar eftir sam- þykktum teikningum en fari ekki á bak við Húsnæðismála- stofnunina eða bygginganefndir. Ósamþykktar ibúðir ólöglegar ,,I sumum einbýlishúsanna i Seljahverfi er heimild til að hafa allt að 60 fermetra ibúðir,” sagði Jón G. Kristjánsson, skrifstofustjóri borgarverk- fræðings, ,,og hafa margir nýtt þessa heimild. Skilyrði fyrir þvi af okkar hálfu að fá tvö lán út á þessar ibúðir er að umsækjandi sé i fjölskyldutengslum við aðal umsækjanda. Hins vegar er það einnig algengt að geymslur og annað slikt húsnæði sé gert ibúðarhæft og þá venjulega leigt, en slikar ibúðir eru ósam- þykktar og fást ekki húsnæðis- málalán út á þær, enda eru þær raunverulega ólöglegar,” sagði Jón. „Verðum að treysta fólkinu" Er Visir bar undir Sigurð E. Guðmundsson, hvort verið gæti að menn færu á bak við heimild borgarinnar til að byggja tvær ibúðir i einbýlishúsum, sagði hann að oft væri þaö þannig að eitt fullveðja barn hjóna keypti af þeim litlu ibúðina t.d. vegna þess að það ætlaði að stofna heimili. Þá yrði að taka það trúanlegt og lánið þvi veitt. — RJ Eldur um borð í Þór Eldur kom upp um borð I varðskipinu Þór þar sem skipið lá við Ingólfsgarð i gær. Var veriðaögera viöskemmdir sem urðu á skipinu i þorskastriöinu i vetur er eldurinn kom upp. Unniö var aö þvl að logskera beyglaða plötu nálægt vistar- verum skipver ja er neisti komst i svefnbekk og einangrun í milli- vegg. Eldurinn náði aldrei að magnast og voru varöskips- menn búnir að ráöa niðuriögum hans er slökkviliðið kom á vett- vang. —AH. Framleiðslan hjá SH: JUU VERÐUR METMANUÐUR IAR 8800 tonn af frystum flski voru framieidd i frystihúsum innan Sölumiöstöðvar hraðfrystihús- anna i júli.Er fyrirsjáanlegt að ekki verður framleitt meira I neinum mánuði öðrum á árinu, að sögn Hjalta Einarssonar framkvæmdastjóra hjá Sölu- miðstöö hraöfrystihúsanna. Sagöi Hjalti að ef framleiösl- an í öðrum mánuðum væri við- lika og I júli samsvaraði það þvl aðhún næmi 105þúsund tonnum á ári, en raunverulega var hún i fyrra 75 þúsund tonn á ári. Hjalti Einarsson sagði að framleiðsla frystihúsanna á sumrin væri farin að verða um- fangsmeiri en fyrir nokkrum árum. Hefur það leitt til þess að þróunin hefur veriö frekar I þá átt að birgöasöfnun eigi sér stað hjá frystihúsunum á sumrin. 011 skip sem sigla út með frystan fisk eru full að sögn Hjalta og eru nú birgöir af fryst- um fiski I frystiklefum húsa inn- an SH minni en var fyrir tveim- ur árum. —EKG. Snarrœði versl- unarmanna leiddi til hand- töku Nóttfara Starfsmenn einnar verslunar- innar, þar sem Náttfari braust inn, brugðu skjótt við daginn eftir innbrotið. Þeir rifjuðu upp, hverjir hefðu keypt i búðinni dag- inn áður, sem þeir þekktu og höfðu samband viö þá og spurðu hvort þeir hefðu borgað með ávisunum eða i reiðufé, en i þessari verslun hafði Náttfari stoliö mikiu fé, þ.á.m. umtals- verðum peningum i ávlsunum. Þeir viðskiptavinir', sem greitt höfðu meö ávisunum voru beönir að gefa upp reikningsnúmer, við- skiptabanka, númer ávisunar- innar og upphæð og höfðu starfs- menn verslunarinnar samband við bankana og var viðkomandi reikningum lokað tafarlaust, eða sérstakar aðvaranir sendar til gjaldkeranna. Kunningi eins starfsmannanna hafði keypt i versluninni vörur og greitt með ávisunum og þegar náðist I hann, lofaði hann að hafa samband við bankann sinn svo reikningnum yrði lokað og lög- reglunni gert viðvart, ef ávlsunin yrði framseld. Náttfari kom svo með ávls- unina i bankann, framseldi hana með fullu nafni, heimilisfangi, slmanúmeri og nafnnúmeri, þannig að lögreglunni voru hæg heimatökin, þegar hún hafði upp á honum. Það er þvi engum blööum um það aö fletta að þaö var snarræði verslunarmannanna, sem leiddi til handtöku Náttfara. —RJ. ISLENDINGUR VEIKT- IST AF MALARÍU islendingur á ferð um Afriku veiktist af malariu. Hafði hann verið bólusettur áður en hann fór út og átti sú bólusetning aö verja hann gegn öllum sjúk- dómum i landinu. „Astæður fyrir þvi að þetta gerist eru þær”, sagði Skúli Johnsen borgarlæknir er Visir ræddi við hann „að upplýsingar sem við fáum frá Alþjóða heil- brigðisstofnuninni um hvar sé hætta á að smitast af malariu, eru einfaldlega ekki nógu áreiðanlegar. Við förum eftir handbók sem stofnunin gefur út um hvar sé hætta á að fólk smitist af mala- rlu.” Skúli sagði að þvi miður væri það þannig að ýmsar þjóðir skirrðust við af ýmsum ástæð- um að gefa upp hvort þar væri möguleiki á malariu. Auk þess væri góð vitneskja ekki alltaf fyrir hendi. Hann sagði að fólk sem færi á svæði þar sem hætta væri á malariu fengi malariulyf. Hins vegar hefðu þau aukaverkanir svo ekki væri gengið lengra en ástæða þætti til. Borgarlæknir sagði að malariutilfelli væru mjög óal- geng hér á landi. Þvi auk þess sem stuðst væri við upplýsingar frá Alþjóða heilbrigðisstofnun- inni veittu lönd, sem til dæmis opinberar sendinefndir færu til, oft upplýsingar um hvort þar væri hætta á malariu. — EKG Treg loðnuveíði Tveir bátar tilkynntu um afla i gær. Skirnir AK með 100 tonn sem hann fór með inn til Bol- ungarvikur og seint I gærkvöldi tilkynnti Gisli Árni RE að hann ætlaöi með 400tonn inn til Siglu- fjarðar. Fremur mun ganga vel að taka á móti loðnunni aö sögn loðnunefndar i morgun. Þau skip sem enn eru að loðnu- veiðum munu vera um 20 og eru þau að veiðum á báðum svæð- unum, þvi vestra og þvi nyröra —EKG.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.