Vísir - 22.11.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 22.11.1976, Blaðsíða 3
VISIR Mánudagur 22. nóvember 1976 Miklu hefur verið landað af loðnu á Bolungarvfk i sumar, enda styst af miðunum. Hins vegar hefur verksmiðjan átt i erfiðleikum með að anna þessu og loðnuskipstjórar eru þess mjög hvetjandi að ráðist verði i stækkun verksmiðjunnar. Myndin er tekin þegar landað var lír Gisla Árna á Boiungarvik fyrir nokkru. — Ljósmynd ViSis EKG Aðildin að EFTA hefur ekki byggt upp íslenskan iðnað — segja iðnrekendur „Það hlýtur að vera mjög mikilvægt atriði fyrir þjoðfélagið i heild að það sé stærri verk- smiðja i Bolungarvik en nú er. Það hlýtur að borga sig á einu ári”, sagði Gunnar Her- mannsson, skipstjóri á Eldborg GK, þegar Visir ræddi við hann. Enn virðist vera ágætur loðnu- afli úti af Vestfjörðum þó að liðið sé þetta á veturinn. „Það sparar þjóðfélaginu marg ar millj i gjaldeyri að þurfa ekki að keyra norður á Siglufjörð. Það tekur sjö, átta tima að keyra i land til Bolungarvikur, en tuttugu til Siglufjarðar. Það hlýtur að sparast mikil olia. Auk þess væri þá hægt að veiða miklu meira. Þetta á ekki einungis við um súmarveiðina heldur lika á vet- urna. Þvi að það er mikill munur að keyra til Bolungarvikur frá miðunum við Snæfellsnes og Faxaflóa heldur en alla leið til Siglufjarðar. Svo er lika mikill munur þegar veður versna að vera kominn I höfn eftir sjö tima eða eiga eftir þá að baksa i tólf.” Gunnar var að þvispurður hvað hann hefði trú á að hægt væri að vera lengi að fram eftir vetri vegna veðurs. „Það er sjálfsagt misjafnt frá 7 1 Hafa snyrt í fimm ár HÓTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 Snyrtistofa Gróu Pétursdóttur aö Vesturgötu 39 hefur' um þessar ntundir starfar i fimm ár.Nokkrarbreytingar veröa á rekstri fyrir tækisins viö þessi timamótog framvegis veröa á stofunni starfandi tveir snyrtisérfræöingar, Gróa Pétursdóttir og Þórdis Björnsdóttir. . Þá hafa ný tæki veriðkeypt til aö bæta þjónustuna viö viöskiptavini. Meöfylgjandi mynd er tekin I snyrtistofunni og er af þeim Gróu Pét- ursdóttur og Þórdisi Björnsdóttur fyrir innan afgreiösiuboröiö. . Féiag islcnskra iðnrekenda hefur ritaö viöskiptaráöuneyt- inu bréf þar sem tekiö er fram, að félagiö telji óhjákvæmilegt að sótt veröi um framlengingu aðlögunartima aö EFTA og EBE. Það þurfi tima til að jafna aðstöðu islenskra iönfyrirtækja viðaðstöðu erlendra keppinauta og iðnfyrirtæki fái ráðrúm til nauðsynlegrar uppbyggingar, en til þess nægi ekki þau þrjú ár sem cftir séu aðlögunartimans. 1 bréfi félagsins segir, að út- flutningur til EFTA/EBE án áls hafi aukist um 577 milljónir króna milli áranna 1974 pg 1975, en innflutningur frá sömu rikj- um hafi hins vegar aukist um 6.053 milljónir króna. Hlutdeild þess innflutnings sem fær EFTA/EBE tollmeðferð I al- mennum vöruinnflutningi var 20,5% 1975 samanborið við 14.5% árið 1974. A sama tima jókst hlutdeild útflutnings iðnaðarvara (án áls) til EFTA og EBE i heildarútflutningi landsmanna einungis úr 3% I 3,3%. „Teljum vér þessar tölur sýna betur en mörg orð hvert stefnir og að markmið aðildar að EFTA og samnings við EBE, sem var að byggja upp iðnaö á Islandi, hefur ekki náðst. Virð- ast iðnfyrirtæki annarra aðild- arrikja EFTA og EBE á hinn bóginn hafa hagnast vel á EFTA-aðild tslands og samningi þess við EBE”, segir i bréfi Fé- lags islenskra iðnrekenda til viðskiptaráðuneytisins. Timinn hefur það eftir Ólafi Jóhannessyni viðskiptaráð- herra i gær, að við höfum haft gagn af þvi að vera i Friversl- unarbandalagi Evrópu (EFTA) „að þvi leyti til að það hefur verið hvati fyrir okkar iðnað”. Stangast þetta greinilaga á við álit Félags iðnrekenda..gG Veitingasalir, barir, hárgreiöslu-, snyrti- og rakarastofur, minjagripa- verslun, flugstöö og fleira. Og þaö er vert aö vita aö þó öll her- bergin séu vistleg og vel búin, meö síma og útvarpi, þá eru þau misstór. Og annað hvort með sturtu eöa sturtu og baði. Látiö eftir yöur aö gista á Hótel Loft- leiðum, þaö er óneitanlega svolítiö sérstakt. „Borgar sig á einu ári að stœkka verksmiðjuna" — segir Gunnar Hermannsson skipstjóri á Eldborgu GK Þaö er óneitanlega eitthvað sérstakt viö Hótel Loftleiðir. Ekki vegna þess aö þaö er eina hóteliö, þar sem hægt er aö fara í sund og sauna baö. Heldur hitt aö það tekur hreinlega nokkurn tíma aö átta sig á öllum þeim þægindum og þjónustu sem boðið er á. ári til árs. En úr þvi að við getum verið þarna núna þá getum við verið þarna alltaf. Það þarf að fara gætilega.” —EKG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.