Vísir - 30.12.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 30.12.1976, Blaðsíða 4
4 Viðvörun um aðgót vegna sprenginga o.fl. um óramót Við læknarnir, og heyrnardeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavikur, fáum til meðferðar marga, einkum börn og ungl- inga, sem orðið hafa fyrir meira eða minna heilsutjóni af völdum ýmiskonar skrautelda og sprenginga um þetta leyti árs. Það er þvi full ástæða til að vara alla við hættunni. Það er stórhættulegt og beinlinis glæpsamlegt að kasta ,,kínverj- um” og álika sprengjum að fólki. Verði sprenging nærri eyra má búast við varanlegri heyrnarskemmd, jafnvel einn- ig gati á hljóðhimnu. Flugeldar geta sprungið þegar i þeim er kveikt. Gætið þess að andlit eða hendur lendi ekki i stróknum frá eldflaug. Blinda, brunasár og varanleg örorka hef- ur þráfaldlega hlotist af óaðgætni við tendrun eldflauga, og annars þess háttar. Aldrei er of varlega farið með þessa hluti og best að hafa þá ekki um hönd. Einkum þurfa foreldrar og forráðamenn barna óg unglinga að vera vei á verði og reyna að sjá til þess að þetta unga fólk hafi ekki sprengjur um hönd, en þær valda einkum alvarlegu og varanlegu heilsutjóni. Margir hafa komið til okkar á heyrnar- deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur með skerta heyrn og sködduð eyru á undanförnum árum. Látum það ekki koma fyrir i þetta sinn. Erlingur Þorsteinsson. yfirlæknir heyrnardeildar. Viðgerðamaður Viðgerðamaður óskast til starfa i áhalda- deild veðurstofu íslands. Umsækjendur þurfa að hafa bilpróf og iðnmenntun er æskileg í einhverri grein málmsmiða. Umsóknir ásamt meðmælum og uppl. um aldur menntun og fyrri störf sendist sam- gönguráðuneytinu fyrir 6. jan. n.k. Laun skv. kjarasamningum rikisstarfs- manna. Nánari uppl. um starfið gefur deiidar- stjóri áhaldadeildar. Veðurstofa ísiands. Áramótatilboð Garðshorns Hyacintur til að endurnýja skreytingar, aðeins 200 kr. stk. Litlir túlipanar með lauk aðeins 120 kr. Hyacintuskreytingar aðeins 680 kr. Ódýrar leiðisskreytingar. Garðshorn Fossvogi Simi 40500. Þessi mynd var tckin úr flugvél og sýnir oliuslóöann sem lagt hefuriír flaki oliuskipsins, Argo Merchant, fyrir strönd Massa- chusetts. Olíu- lekinn þverr Oliuskipinu Argo Mer- chant var stýrt eftir korti sem var úrelt og sýndi ekki rétta strauma við strönd Massa- chusetts, þegar það strandaði í sandrifi við Nantucketeyju. Eins og fram hefur komið i fréttum, brotnaði skipsflakið i tvennt á sandrifinu og hafa 7,5 milljón gallon af hráoliu lekið úr skipinu mönnum til skelfingar, sem óttuðust alvarlega mengun af oliubrákinni. Skammt frá strandstaðnum eru einhver auð- ugustu fiskimið Bandarikjanna. 1 sjóprófum i gær kom fram hjá skipstjóranum, aðhann hefði far- ið eftir sjókortum frá þvi i nóv- ember. A þeim var gert ráð fyrir vestlægum straumum og skipinu þvi stýrt fjórum gráðum austan við rétta stefnu til þess að leið- rétta skekkju, sem hlytist af þvi að straumarnir bæru það af leið. En kort, sem gilda áttu fyrir desember, hefðu getað sýnt skip- stjóranum, að straumar hefðu bæði breytt um stefnu og styrk. 1 sjóprófunum hafa um leið komið fram háar skaðabótakröf- ur, sem gerðar hafa verið á hend- ur útgerðarfélagi Argo Merchant vegna tjóns af völdum oliulekans. A meðan hefur strandgæslan skýrt frá þvi, að oliubrákin úr skipinu sé nú að leysast upp, og hættan á að hún mengi sjávarlif á þessum slóðum hafi minnkað til mikilla muna. Fimmtudagur 30. desember 1976 Í/ISIR Telja sig ekki óhulta á Grœn- landsmiðum fyrir íslenskum varðskipum Walter Clegg, sem verið hefur sem skilur að lögsögu Græn- talsmaður Fleetwood-togara- lands og Islands,” sagði Clegg sjómanna i breska þinginu, þingmaður. kvaddi sér hljóðs i neðri mái- Togarar frá Fleetwood hafa stofunni i gær, og skoraði á leitað á Grænlandsmið eftir bresku stjórnina að senda her- þorski, eftir að veiðisamningur- skip til styrktar breskum togur- inn við ísland rann út og þeir um að veiðum við Grænland. — urðu að hafa sig á brott af Is- Svona tii vonar og vara ef þau landsmiðum. skyidu viliast inn í islenska fisk- „Grænlandsmið eru ægilegur veiðilögsögu. staður til að stunda veiðar á „Togaraútgerðirnar vilja fá þessum tima árs. Fiskimenn i skip til aðstoðar, eins og þeir Fleetwood eiga skilinn allan höfðu, þegar veitt var á íslands- þann stuðning, sem breska miðum. Þeir vilja ekki lenda i stjórnin getur veitt þeim, fyrir árekstrum við islensk varðskip hugrekki þeirra,” sagði Clegg. vegna ruglings um miðlinuna, U1, Ábætisostur úr Maribó-, Gouda-, Óðalsosti og rjóma. I hann er blandað ferskri papriku. Að utan er hann þakinn rauðu paprikuduftL, ostur er veizlukostur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.