Vísir - 08.01.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 08.01.1977, Blaðsíða 1
FENGU MILLJÓN FYRIR 100 TONN AF UNDANRENNUDUFTI: Fá greidd sölulaun af útflutningsbótum Allt bendir til þess, að Bú- vörudeildSÍSfáium hálfa millj- ón króna i sölulaun fyrir að selja 100 lestir af undanrennudufti til útlanda fyrir eina milljón' króna. Þessi háu sölulaun koma til af þvi, að þóknunin er reiknið af margfalt hærra verði en kaupandi vörunnar greiðir. Sú regla gildir almennt varð- andi landbúnaðarvörur, að seljandinn, i þessu tilviki Bú- vörudeild SIS, fái 2% af þvi heildsöluverði, sem sexmanna- nefnd kann að samþykkja, á hverjum tima, i sölulaun án til- lits til þess, á hvaða verði varan er raunverulega seld. Þegar landbúnaðarvörur eru seldar til útlanda, fæst alltaf lægra verð fyrir þær heldur en hið umsamda heildsöluverð, sem gildir hér innanlands. 1 flestum tilfellum er verðmunur- inn greiddur með svonefndum útflutningsbótum, sem veittar eru úr rikissjóði. í slikum tilfell- um fá söluaðilar 1 reynd greidd sölulaun af útflutningsbótunum lika. 50% af söluverði fara i sölulaunin I sambandi við söluna á undanrennuduftinu, sem skýrt var frá i VIsi i siðasta mánuði, kom fram, að nettóverðið, sem hinn erlendi kaupandi greiddi fyrir vöruna, var 10 krónur á kiló, eða ein milljón fyrir alla sendinguna. Skráð heildsöluverð hér - heima er hins vegar um 270 krónur á kiló, eða um 27 milljón- irfyrir það magn, sem selt var. Muninn á þvi verði, sem kaupandinn greiddi, og heildsöluverðinu, verður að greiða með framlagi úr verð- jöfnunarsjóði og hugsanlega með einhverjum útflutningsbót- um. Búvörudeild SÍS, sem sá um söluna, fær þvi I reynd greidd sölulaun ekki aðeins af hinu eiginlega verði, heldur einnig af verðjöfnunarframlaginu og út- flutningsbótunum. Þess vegna fara um 50% af nettósöluverð- mæti vörunnar I sölulaun. —ESJ Útvarpsstöðvar á Akureyri þagnaðar FYRIRMÆLI KOMU FRA POSTI OG SIMA Einkaútvarpsstöðvarnar sem starfræktar hafa verið á Akur- eyri í haust og vetur eru nú end- anlega þagnaðar að því er virö- ist. Þegar mest var voru starf- andi þrjár stöðvar i einu, og út- vörpuðu þær einkum léttri tón- list frá þvi siðari hluta dags og fram eftir nóttu. Að sögn forráöamanna einnar útvarpsstöðvarinnar, §em Visir hafði tal af, komust forráða- menn Pósts og sima að þvi hverjir það voru sem að þessum útvarpsrekstri stóðu, og voru þeir allir boðaðir á fund hjá um- dæmisstjóranum á Akureyri. Var þeim þar tilkynnt, að gripið yrði til viðeigandi aðgerða ef rekstri hinna ólöglegu útvarps- stöðva yrði ekki þegar i stað hætt. Var fariö aö þessum til- mælum, en þó mun hafa verið útvarpað eitthvað eftir það, en nú eru stöövarnar þó endanlega þagnaðar. Akureyringar verða þvi eins og aðrir landsmenn að láta sér nægja gamla „góða” tJtvarp Reykjavik enn um sinn, eða á meðan lög um einkaleyfi þeirr- ar stofnunar eru i gildi. —AH, Akureyri FYRSTA NELGARBLAÐIÐ Á ÁRINU FYLGIR í DAG % ............... ' ' " .. H Ofrískum konum ekki hœttara við tannskemmdum en öðrum Þátturinn Kostur og þjóðþrif, sem birtist á blaðsiðu 15 fjallar að þessu sinni um tannátu, og kemur þar fram, að mataræði hefur úrslitaáhrif varðandi tannskemmdir. Þá kemur fram, að barnshafandi konum er ekki hættara við tannskemmdum en öðrum. ÚTVARPS OG SJÓNVARPSDAGSKRÁ HELGARINNAR OG NÆSTU VIKU FYLGIR MEÐ í HANDHÆGU SÉRBLAÐI - Hreinn kjörinn W Ipróttamaður órsins 1976 Hreinn Halldórsson er tþróttamaður ársins 1976. — t gær var lýst kjöri Saintaka iþróttafréttainanna, sem nú fór fram i 21. skipti, og I þvi kjöri nú var „Strandamaðurinn sterki” Hreinn Haildórsson úr KR kjörinn með iniklum yfir- burðum. Alls hlaut Hreinn 79 stig af 80 mögulegum, og hefur varla áður verið svo mikil eining um val iþróttamanns ársins. Hreinn vann mörg góö afrek á árinu. Hann byrjaði á þvi að bæta islandsmetið ikúluvarpi úr 19,46 m i I9,53m og stuttu siðar flaug kúlan 19,97 metra. Loksins var það 14. júli aö 20 inetra múrinn var rofinn. Hreinn gerði sér þá litið fyrir og varpaöi kúlunni 20,24 m og skipaði sér um leið i hóp bestu kúluvarpara heimsins. Ilreinn bætti þvi islandsmetiö i kúluvarpi á árinu um hvorki meira cða minna en 78 cm sem er frábært. Alls hlutu 19 iþróttamenn at- kvæöi i kosningunni nú, en nánar er fjallað um kosninguna á bls. 4 I dag. Hreinn Halldórsson var að vonum kátur, eftir að hafa veitt við- töku farandbikar þeim sem fylgir sæmdarheitinu „tþróttamaður ársins”. Þessi fagri bikar var nú veittur I 21. skipti. Ljósmynd Einar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.