Vísir - 08.01.1977, Blaðsíða 20

Vísir - 08.01.1977, Blaðsíða 20
VÍSIR Laugardagur 8. ianúar 1977 Telpa fyrir vélhjóli Litil telpa varð fyrir vélhjóli á Óðinsgötu siðia dags i gær. Telpan sem er sjö ára, hlaut litil meiðsl. Um hádegið i gær varð átt- ræð kona fyrir bil á Háaleitis- braut. Konan mun hafa verið að fara yfir götuna á gang- braut þegar slysið varð. Hún viðbeinsbrotnaði. —EA Útvarpsráð vill litasjónvarp titvarpsráð hefur beint þeim tilmælum til stjórnvalda að keypt veröi litséndingartæki fyrir Sjónvarpið og verði það fjármagnað með tolltekjum af innflutningi litsjónvarpstækja. Sérfræðingar telja að á þessu ári og þeim næstu verði að end- urnýja mestan hluta tækjabún- aðar sjónvarpsins, en vaxandi erfiðleika gætir nú við öflun varahluta til svart-hvitra út- sendinga. Otvarpsráð vekur athygli á þvi að viðast hvar eru afnota- gjöld af litsjónvarpstækjum hærri en af svart-hvitum og bendir á þann möguleika að auknum tilkostnaði verði. mætt með slikum hætti. Eins og nú er málum háttað geturSjónvarpið sent út i litþað efni sem kemur á myndsegul- böndum eriendis frá. Myndir sem teknar eru hér, svo og upp- tökur i sjónvarþssal, er hins vegar ekki hægt aö senda út i lit- um. ÓT FRYSTIHÚS INNAN S.H. j FYRRA: 1 fimm frystihúsum i Bolungar- vik, Akureyri, Reykjavik og tsafiröi voru fryst yfir þrjú þús- und tonn. <......• tonn. Hraðfrystihús Bæjarút- gerðar Reykjavikur framleiddi 3463 tonn, íshúsfélag Bolungar- vikur 3.130 tonn, Ishúsfélag Is- firðinga, 3111 tonn og Hrað- frystihúsið Norðurtanginn á Isafirði 3042. Það er vert að leggja áherslu aö siðasttöldu þrjú húsin eru öll við Isaf jaröar- djúp. Fleiri hús framleiddu ekki yfir þrjú þúsund tonn af frystum Fimm frystihús framleiddu meira en 3 þús. tonn Frystu 70 þús. t. af fiski Heildarframleiðsla frystihúsa innan Söiumiðstöövar Hrað- frystihúsanna á siðasta ári var 66.490 tonn. Inni i þessum tölum er ekki fryst loöna. En ef hún er talin með nemur heildarfryst- ingin 70.500 tonnum, þar sem 3.945 tonn af loðnu voru fryst hjá frystihúsum innan SH árið 1976. Þessar upplýsingar fékk Visir hjá Hjalta Einarssyni fram- kvæmdastjóra Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna. Sagði Hjalti að aukning hefði orðið i fram- leiðslu þorsks en samdráttur i framleiöslu frysts ufsa og ýsu, frá I fyrra. Þaö varð útgerðarfélag Akureyringa sem mest fram- leiddi á siöasta ári. Losaði framleiðsla þess fimm þúsund fiski. En næstu hús eru Fisk- vinnslan, Vinnslustöðin og ísfé- lagið, öll i Vestmannaeyjum. Þau framleiddu hvert um sig á milli 2500 og 3000 tonn. Loðnu- frysting er ekki inni i þessum tölum. —EKG Samvisku samur blað- burðar- drengur Þorsteinn Asgeirsson er með samviskusömustu blað- burðarbörnum og er þá vist' mikið sagt. Visir veitir sem kunnugt er þeim biaðburðar- börnum sinum verðiaun og viðurkenningu, sem bera blöð- in svo samviskusamlega út að enginn þurfi að kvarta. í desember kvartaði cnginn yfir biaðburðinum hans Þor- steins en hann ber út i Skafta- hiiðinni. Fyrir það fékk hann fimm þúsund krónur i viður- kenningarskyni, frá VIsi. Þorsteinn er 13 ára og hefur borið Visi út i fjögur ár. Hafa enga eld- trausta búninga — og engar teikningar af stórhýsum í Reykjavík eru til á slökkvistöðinni Slökkviliðið i Reykjavík á enga eldtrausta búninga fyrir slökkviliðsmenn sina. Súrefnis- kútar, sem notaðir eru til reyk- köfunar, þarf að hlaða i slökkvi- stöðinni við öskjuhlið, þar sem ekki er hægt að flytja hleðslu- tæki á brunastað fyrirvara- laust. A slökkvistöðinni eru eng- ar teikningar af húsum i Reykjavik, ekki einu sinni af stórhýsum, þar sem hundruð * manna búa. Þetta eru nokkur þeirra atr- iða, sem komu fram i viðtali við Rúnar Bjarnason slökkviliðs- stjóra i Kastljósi sjónvarpsins i gærkvöldi. Rúnar var þar spurður ým- issa spurninga, sem vaknað hafa vegna slökkvistarfsins við háhýsið að Æsufelli 2 i Breið- holti og brunans i Aðalstræti á nýársnótt. Slæm mæting á nýársnótt Ómar Ragnarsson, sem spurði Rúnar, spurði hvers vegna mætt hefði verið seint og illa þegar bruninn varð við Aðalstræti, en t.d. gamli stiga- billinn hefði mætt mjög seint. „Stigabillinn er varabill, sem ekki er mannaður alla jafna. Þetta var á nýársnótt og það voru ekki eins góðar mætingar hjá þeim, sem voru i frii, eins og viðeigumaðvenjast. Við urðum að koma slökkvistarfinu i gang áður en við höfðum mann til að sækja stigabilinn”, sagði Rún- ar. Aðspurður hvernig slökkvilið- ið væri statt þegar við einhvern alvarlegan eldsvoða, t.d. I oliu- stöð sagði Rúnar: „Það reynist öllum slökkviliðum erfitt að ráða við stórelda.” —-ESJ FLUGLEYFIÐ VAR SKYNDILEGA AFTURKALLAÐ UM SINN Yfirvöldf Bahrain hafa aftur- kailað leyfi það, sem gefið var út vegna flugs Loftleiða milli Keflavikur og Bahrain, og er or- sökin að þvi er virðist sú, að Loftieiðir bjóða lægri fargjöld á ieiðinni Bandarikin-Bahrain en önnur flugféiög. Flugleiðir hafa undanfarið undirbúið áætlunarflug til Bahrain sem framhald af flugi á leiðinni Bandarikin-Island-Lux- embourg, og átti að fara i fyrsta áætlunarflugið næstkomandi miðvikudag. Þvi hefur nú verið frestað um óákveðinn tima. Að sögn talsmanna Loftleiða segir i tilkynningu frá yfirvöld- um i Bahrain, að flugleyfið hafi verið afturkallað um sinn vegna þess, að málið þarfnist frekari athugunar. Svo virðist sem við- komandi yfirvöld hafi ekki get- að fellt sig við þá staðreynd, að samanlögð fargjöld Loftleiða milli Bahrain og Bandarikjanna < yrðu lægri en fargjöld annarra félaga á þessum leiðum. „Unnið er að lausn þessa máls og þess vænst að leyfið verði endurútgefið fljótlega,” segja flugleiðamenn. —ESJ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.