Vísir - 06.02.1977, Blaðsíða 11

Vísir - 06.02.1977, Blaðsíða 11
11 vism Sunnudagur 6. febrúar 1977 iBMHHMpMNMHM Hin ágæta auglýsingastofa Gisla B. Björnsonar hélt upp á 15 e&a 20 ára afmæli sitt um daginn og þarkom fram, að þeir væru hinir fyrstu á þessu sviöi. Rétt er hinsvegar aö þeir Atli og Asgeir höföu rekiö auglýsinga- stofuá nákvæmlega sama máta i ein 5-6 ár áöur en GIsli byrjaöi. Rétt skal vera rétt. Starf mitt hjá þeim félögum leiddi til þess aö ég varö auglýsingastjóri á Visi og var þar i 2-3 ár. Annað sem ég hef gert er svo smávægi- legt að þaö tekur þvi ekki aö ti- unda það.” Lítið um góða skemmtikrafta. „Þeir héldu að viö myndum eyöileggja klassikina hjá Magnúsi....’’ Ein sérstök skemmtun á ári. „Þú hefur semsagt ekki sagt alveg skiliö viö þitt gamla lif?” „Nei, ekki algerlega. Þaö er aö minnsta kosti ein skemmtun á ári sem ég hlakka alltaf til. Og ég hlakka alltaf mjög mikiö til hennar. Þaö er þegar ég fer ásamt félögum minum I Lions- klúbbnum Ægi, aö Sólheimum i Grimsnesi til að skemmta þar um 40 þroskaheftum vistmönn- um, sem allir eru góöir vinir minir.” „Ég sá haft eftir einni starfs- konunni þar um daginn, aö þar hlakkaði menn til þessarar skemmtunar i 365 daga.” „Hiö sama gildir um mig — og ekki nóg meö þaö, ég tel dag- ana.” —ÓT „...þaó er alltat ein sKemmtun a ári sem ég hlakka mikiö til....” Svavar virðist hafa lagt dálit- iðmeira en smávægilega krafta i SG-hljómplötur, þvi um ára- mótin sendi hann frá sér hundruðustu breiöskifuna, sem hlýtur að teljast mjög gott, miðað viö markaösstæröina. Þaö er þvi ekki hægt að segja aö hann sé úr sambandi viö „skemmtanabransann.” En hann er litið hrifinn af honum, eins og hann er idag. Hann telur sig sjá fáa hæfileikamenn. „Þaö hefur nánast ekkert bæst viö af skemmtikröftum. Þetta eru alltaf sömu mennirnir. Ómar er náttúrlega snillingur og hátt yfir aðra haf- inn á þessu sviði. En þaö hafa engir komið I viöbót.” „Þaö sama er aö segja um hljóöfæraleikarana. Þaö hafa komið fram á sjónarsviöiö und- anfarin ár einir 250-300 ungir menn. En þaö eru innan viö tfu þeirra i sama gæöaflokki og 30- 40 voru fyrir tuttugu árum. Þetta stafar bæöi af hæfileika- skorti og af þvi menn nenna ekki að leggja á sig mikla vinnu viö æfingar. Af þessum yngri mönnum eru ekki nema örfáir góöir.” „Vildu nefna þá sem þér finnst góöir?” ,,Já þaö get ég, þaö er ekki langur listi. Þeir eru Gurinar Þórðarson, gitarleikari Björg- vin Gislason, gitarleikari, Magnús Kjartansson hljóm- borðsleikari og Asgeir Óskars- son trommuleikari.” „Þessir drengir gætu allir kláraösig erlendis, ef þeir flyttu út. Þeir gætu staöist sam- keppnina. En stærri er þessi hópur ekki. Jú, ekki má gleyma Sigurði Rúnari Jónssyni.” Fyrir einum þremur sumrum heyrðu menn — eftir langa þögn — mjög svo kunnuglega rödd I útvarpsþætti. Þátturinn hét „Alltaf á sunnudögum” og um- sjónarmaður var Svavar Gests. „Já, ég hef veriö meö þennan þátt undanfarin þrjú sumur. Þetta er engin popp-skemmtun, heldur er ég með efni og tónlist sem ég gjörþekki. Þessi þáttur er frekar fyrir fólk á minum aldri. Ég spila islenskar plötur og jazz og kem við á gömlum slóöum.” .....þaö eru ekki fleiri en þessir fjórir sem eru góöir...” „Þeir voru margir ham- borgararnir sem viö borðuðum ekki....” ...þaö baö mig aldrei neinn um aö fella oröaskipti úr útvarps- bætti....” . VINDLARNIR HANS CASTROS Undir rauöum fánum og port- rettum af byltingarhetjum rúllar verkalýöurinn i Havana þá frægu vindia sem kenndir eru viö höfuöborg Kúbu. Vindla- iönaöurinn i Havana á aö baki aldarlanga frægöarsögu og af- uröirnar eru fluttar út um allan heim. Mcöal stærstu viðskipta- landa Kúbumanna á Vestur- löndum hvaö varöar vindia- verslun eru bretar, spánverjar svisslendngar og frakkar. Og þótt vindlaiönaöurinn heföi ver- iö þjóönýttur strax á fyrstu ár- um byltingarinnar undir forystu Fidel Castro, sem sjálfur er eins og gangandi auglýsing fyrir Havanavindia, hafa flestir vindlaverksmiöjurnar haldiö nöfnum þeirra yfirstéttarfjöl- skyldna sem eitt sinn áttu þær. A hverjum morgni koma aö verksmiöjuhliöunum sömu ilm- andi búntin af þurrkuöum tó- baksblööum sem vafin eru i höndunum og veröa aö vindlum sem heita nöfnum eins og Montecristo, Partagas, Punch, H. Upman, Romeo og Júlia. Og þótt nú séu gerðar árs- áætlanir yfir vindlaframleiösl- una eru verkamennirnir sem viö hana starfa margir hverjir þeir sömu og þaö geröu fyrir byltinguna áriö 1959. Hlutur kvenna i -framleiöslunni hefur þó vaxiö. Vinnslan 80% tóbaksins koma enn þann dag i dag frá smábændum sem þar af leiöandi eru siöasta vlgi einkaframtaksins á Kúbu. Blöö- in eru týnd meö höndunum, og aöeins fá i einu frá hverju tóbaksbýli. Þau sæta hinni var- færnustu meöferö á hverju framleiðslustigi. 1 verksmiðj- unni er sáldraö vatni yfir þurr tóbaksbúntin og þau eru slöan látin þorna i einn sólarhring til þess aö hinn upprunalegi sveigj- anieiki fáist aftur. Sföan eru þau flokkuö niöur samkvæmt lit og áferö. Bestu blööin, sem fást neöst af tóbaks- plöntunnieru notuö sem umbúö- ir, — hin fara i sjálfan stofn vindilsins. Verkamennirnir böggla saman nokkrum blööum og setja þau I pressu i hálftíma tilaðþjappa þeim samani grófa lögun vindils. Slöan rúlla þeir umbúöablaöinu snarlega utan um, snitta þaö til og laga aö stærö vindisins, og útkoman er svipuöaö þyngd og lögun og vél- unnir vindlar. Samkeppni kastróista Fyrir nokkrum árum voru sett viss lágmörk til aö auka framleiönina. Verkamaður viö t.d. Partagaverksmiöjuna i miðborg Havana sem rúllar „Lúsitaniuvindla”, sem eru digrir vindlar 15 sm langir, veröuraöafkasta tólf og hálfum vindii á klukkustund til aö ná daglaunum sinum sem jafn- gilda um 1600 isl. krónum. Sum- um tekst aö tvöfalda tekjur sin- armeö þvi aö framleiöa tvöfalt fleiri vindla en lágmarkiö kveö- ur á um. Ef verkamanni auön- ast ekki i lengri tima aö ná lág- markinu er hann settur i læri hjá einhverjum þeirra sem skara fram úr. Vindlar og sigarettur eru skömmtuö á Kúbu, en vindla- verkamaðurinn nýtur þeirra forréttinda aö hann má reykja eins marga vindla og hann vill I vinnunni og taka meö sér fimm stykki heim aö kvöldi. Aöur en vindlarnir eru pakk- aöir niöur og sendir til rikisút- flutningsstofnurnarinnar eru þeir flokkaöireftir litog geymd- ir í a.m.k. 10 daga i skápum. Erlendir feröamenn á Kúbu spyrja einatt þeirrar spurning- ar hvers konar vindlar þaö séu sem Castro reykir. Castro sem er kunnur sem vindlasérfræö- iugi#r er alltaf meö um tiu stykki af 15 sm löngum vindlum i brjóstvasa sinum. Sumir segja aö þeir séu af geröinni „Coibas”, en aö opinberri hálfu er tegundin rikisleyndarmái.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.