Vísir - 10.02.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 10.02.1977, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 10. febriiar 1977 VISIR Helgi Skúlason fer úr gervi Hamm. Hann er eiginlega lfkaminn. Hann er lamaður á báðum fótum, sjónlaus, húðin tveimur númerum of stór, útlifaður. Guðbjörg Þorbjarnardóttir leikur Nell. móðurina i leiknum. Hún býr i gamalli oliutunnu. Henni er svo lýst, að hún sé með skorpna húð sem virðist vera að flagna af, vannærð, iangþjáð og slitin. Sem sagt — sveitarómantikin sjálf þegar búið er að klæða hana úr spari- fötunum. í Endatafli er byrjað á jiví % ’ '. ■ Sterkur drykkur „Við byrjuöum á sminkinu núna, þótt venjulega sé það ekki gert fyrr en rétt fyrir sýningu. Þetta er vegna þess að ég hef lagt persónulegan skilning i verkið og við þá útfærslu eru maskar mikið notaðir. Við urð- um að sjá hvort leikararnir þyldu þessa sterku maska áður en við héldum lengra. Þetta voru orð Hrafns Gunn- laugssonar, en hann leikstýrir nú leikritinu Endatafl eftir nób- Eldri en eístu menn muna Hrafn sagði að persónurnar eigi að vera mjög gamlar. Nell og Nagg, móðirin og faðirinn, eru t.d. eldri en elstu menn muna. „Við reynum nú að ná þessum ofsalega aldri i maskana og er- um ákveðin i að láta þetta tak- ast. En það þarf nokkurn undir- búning þvi húð fólks er mismun- andi sterk. Eins og sést á myndunum hér skipað sér sess meðal klassiskra verka i leikhúsinu. Nýtur sín í nálægð „Andlitin ættu að geta notið sin i þeirri nálægð sem er á Litla sviðinu”, sagði Hrafn. „Beckett er að lýsa sálarástandi ekki at- burðarás. Þetta er lýsing innan frá, ekki utan frá, i rauninni gegnumlýsing. Skilningurinn sem ég hef lagt i þetta verk er að þarna sé hin eilifa barátta milli likama og sálar. Leikritið er I -senn grát- hlægilegt, harmþrungið og fá- ránlegt. Það er gegnumgangandi I verkum Beckets að hann er að draga fram i sviðsljósið hug- myndir sem við alla jafna ýtum frá okkur. Til dæmis leggur hann áherslu á að við lifum allt- af á vitlausum timum. Þegar við erum litil dreymir okkur um að skjóta af alvöru rifflum, en þegar við erum nógu stór til þess, höfum við misst áhug- I ann.” Margrét Bogadóttir og Björn Björnsson leikiyyndateiknari flikka upp á Arna. — Myndir JA Þetta er Nagg (Arni Tryggvason). Hann er maður Nell. Eldri en elstu menn muna, eins og Nell. Hann hefur misst lappirnar og er geymdur I oliutunnu eins og Nell. elskáldið Samuel Beckett, sem verður frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins i mars. Æfingar eru nýbyrjaðar á leikritinu og var fyrst lögð áhersla á að koma réttum andlitum á leikarana. á siðunni breytast leikararnir mikið við sminkið. Hrafn sagði að efnið og leikritið sjálft væri ekki siður magnað en andlits- gerfin. Enda væri það eitt ör- fárra nútimaverka sem hefði Samuel Beckett samdi Enda- tafl á frönsku, vegna þess að honum fannst enskan taka af sér völdin, hún er honum of töm. Með þvl að semja á frönsku segist hann verða að einbeita sér að þvi að koma orð- um að hugsuninni, en ekki að koma hugsun á orðaflaum. Sið- an þýddi hann verkið á ensku. „Þetta verður til þess að hann verður knappur,” sagði Hrafn. „Það er sterkur drykkur ;sem hann serverar”. —SJ UNGLINGARNIR BERJAST GEGN TÓBAKINU „Það er ánægjulegt að fylgj- ast með þvi hvað komin er upp almenn hreyfing meðal ungl- inga að berjast gegn tóbaks- notkun,” sagði Hinrik Bjarna- son formaður Æskulýösráðs Reykjavikur I samtali við Visi. Nú hefur starfshópur ungl- inga i Breiðholtshverfi undirbú- ið útkomu bæklings um skað- semi reykinga og kemur hann út á næstu dögum. Þetta starf unnu þau i samvinnu við for- stöðumann Fellahellis, Val Þór- arinsson og Þorvarð örnólfsson hjá Krabbameinsfélagi Islands. Þessi starfshópur hefur að undanförnu unnið á ýmsan hátt gegn reykingum. Meðal annars hafði hann forgöngu um að samvinna náöist milli þeirra sem sækja Fellahelli að tak- marka meira hvar megi reykja i félagsmiðstöðinni. Bæklingurinn er 4. árgangur 4 Fellahellis, sem kemur út að minnsta kosti tvisvar á ári og hefur að geyma upplýsingar um þá starfsemi sem boðið er upp á I Fellahelli. I þetta sinn er bæklingurinn eingöngu helgaö- ur baráttunni gegn reykingum. Kemur hann út i 4.000 eintökum og verður borinn út I öil hús i Breiöholtinu. — SJ „Indlandshreyfing" stofnuð hér á landi Hópur áhugamanna um mannréttindamái hefur ákveðiö að stofna samtök sem nefnast munu „Indlandshreyfingin”. Tilgangur hreyfingarinnar er að berjast fyrir endurreisn mannréttinda á Indlandi, vekja athygli á ástandinu þar og styðja þau samtök á Indlandi sem berjast fyrir endurreisn mannréttinda þar og afnámi einræðisins. Samstarf verður haft við svipuð samtök annars staöar á norðurlöndum. Stofnfundur verður haldinn I Norræna húsinu á morgun föstudag klukkan 14.00. — GA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.