Vísir - 02.03.1977, Side 6
6
Miðvikudagur 2. mars 1977
vism
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
3. mars
EJ
Hrúturinn
21. mars—20. aprfl:
Dagurinn verður óvenju erfiður
og hætt við meiðslum ef þú gætir
þin ekki á beittum áhöldum. Þú
hefur móðgað einhvern og hann
eða hún situr um tækifæri til að
hefna sin.
a
Nautift
21. apríl—21. mai:
Þú hefur nýlega stofnaö til náinna
kynna viö hitt kynið og ert i sælu-
vimu, en oft er flagð undir fögru
skinni, peningarnir hafa lika að-
dráttarafl. Gættu vel að hlut sem
þú hefur lagt mikinn tima i.
M
Tviburarnir
22. mai—21. júni:
Þú mátt eiga von á gestum og lik-
legt að vandræði stafi af þeim eða
að þú stendur þig ekki sem gest-
gjafi. .. Vertu ekki of fljótur til að
dæma eða gagnrýna aðra. Lifið
tekur á sig eðlilega mynd innan
skamms svo það er engin ástæða
til að örvænta.
Krabbinn
21. júni—23. júli:
Það gæti verið óheppilegt að taka
sér vetrarfri núna, sérstaklega ef
þú ætlar aö eyða þvi á heimaslóö-
um
l.jónib
24. júlí—23. ágúst:
Aktu varlega i allri þessari hálku,
krappar beygjur eru varasamar.
Það er útlit fyrir að peningar eða
upplýsingar verði misnotaðar.
Varkárni borgar sig best.
ffl
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Þú skalt urngangast fyrirfólk
eða vfirmenn þina með varkárni
ogreyna að ttrjóta ekki lögin. Það
er ráðlegt að leggja niður leiða
siði. Litillæti getur borgár sig.
\ <>uin
sepl.—23. «kt.
Þú átt góðan dag i vændum og
ættirþvi aö nota hann vel. Það lit-
ur út fyrir að starfi þinu verði
sýndur sérstakur áhugi og það
ætti að boða þér bættan hag fram-
vegis.
Drekinn
_________ 24. «kt.—22. n«v.:
Reyndu aö missa ekki sjónar á
takmarkinu sem þú hefur sett
þér. Löngun þin til að komast inn i
félagsskap sem þér er meinaöur
aðgangur að gerir ekkert annað
en að ergja þig. Vertu ánægður
með þá vini sem þú átt fyrir.
Hogmaflurinn
23. nóv.—21. drs.:
Vertu varfærinn i samræðum og
framkomu, yfirmaður þinn hefur
tilhneigingu til að vera gagnrýn-
&
Stein^eitin
22. des —20. jiiii.:
Gerðu ekki samning við einn eöa
neinn nema að vel athuguðu máli
og láttu ekki reka á eftir þér.
Deilur leysa ekki vandann , svo
þú skalt standa fyrir utan þær ef
þess er nokkur kostur.
Yatnsbninn
21. jan.—10. h
Oðrum hættir oft til að handfjatla
hluti af kæruleysi, lánaðu ekki
það sem þér er sérstaklega annt
um. Eyddu kvöldinu i rólegheit-
um heima.
Fiskarnir
20. f<*br.—20. mars:
Þetta verður einn erfiður dagur i
viðbót. Keyndu að forðast rifrildi,
sérstaklega þegar liður á daginn.