Vísir - 10.03.1977, Síða 10

Vísir - 10.03.1977, Síða 10
10 VÍSIR Ctgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davíö Guðmundsson Ritstjórar:Dorsteinn Pálsson ábm. . ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Brági GuBmuhdsson.» Fréttastjóri erlendra frétta:Guömundur Pétursson. Umsjón meö helgarblabi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn:Edda Andrésdóttir, Einar Guöfinnsson, Eltas Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guöjón Arngrlmsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Ssmundur Guövinsson, lþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen. Ctlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús ólafsson. Ljósmyndir: Jens Aiex- andersson, Loftur Asgeirsson, Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. SigurÖsson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Siöumúla 8. Simar 11660, 86611. Askriftargjaid kr. 1100 á mánuöi innanlands. Afgreiösla: Hverfisgata 44. Simi 86611 * Verö I iausasölu kr. 60 eintakiö. Ritstjórn: Siöumúla 14. Sími 86611, 7 línur Prentun: Blaöaprent hf. Akureyri. Simi 96-19806. ) Vegamálin eru komin f brennipunkt Um það er vart deilt, að við erum vanþróað land að því er tekur til vegamála. Allir vilja umbætur á þessu sviði og ekki sist þingmenn. En um þessar mundir deila þeir i þingsölum og hliðarherbergjum Alþingis- hússins um skynsamlegustu leiðina í þeim efnum. Segja má að menn skiptist aðallega í tvær fylkingar í þessum vegaumræðum og baktjaldaátökum, sem fram fara um þessar mundir um skiptingu fram- kvæmdafjármagnsins. Annars vegar eru svonefndir bútastefnumenn og hins vegar þeir, sem vilja þegar í stað leggja grundvöll að stórframkvæmdum í varan- legri vegagerð. Að vonum skipa menn sér i fylkingar nokkuð eftir þvi, hvernig aðstæður eru í þeirra eigin kjördæmum. Er í sjálfu sér ekkert við það að athuga. En víst er, að þessar umræður eru mikilvægar og niðurstaðan getur skipt sköpum fyrir framtíðarbyggð í landinu. Bútastefnumenn, sem svo eru nefndir, vilja leggja á það höfuðáherslu að lyfta vegaspottum í hinum dreifðu byggðum upp úr snjónum eins og það er kallað áður en farið verður að hugsa fyrir varanlegri vegar- gerð. Þeir hafna þeirri skoðun, að umferðarþunginn eigi að ráða einhverju um forgangsröðun fram- kvæmda. Vist er brýnt að gera vel akfæra vegi milli byggðar- laga utan hringvegarins. En þegar á allar aðstæður er litið, má Ijóst vera að lítil von er til að vegakerfið komist i skaplegt horf í næstu framtið, ef ekki verður þegar í stað hafist handa um stórátak í varanlegri vegagerð milli helstu byggðasvæða. I athugasemdum með vegaáætlun þeirri, sem nú liggur fyrir Alþingi, kemur fram, að með varanlegri vegagerð má spara umtalsverða fjármuni. Þaðer því ekki út i hött, þegar því er haldið fram, að nægjanlegt fjármagn fáist ekki til bútastefnunnar fyrr en við- haldskostnaður minnkar í kjölfar varanlegrar vega- gerðar. Gifurlegum fjármunum er nú varið til viðhalds vega. i vegaáætlun er þannig reiknað með að verja meira fé til viðhalds en nýrra framkvæmda. En með bundnu slitlagi má hins vegar spara verulegar fjár- hæðir í viðhaldskostnaði. I athugasemdum með vegaáætlun er sýnt fram á, að þjóðhagslegur sparnaður i rekstri bifreiða er umtals- verður, þegar vegir hafa verið bundnir slitlagi. I þyí dæmi, sem þar er birt, er reiknað með 190 km vegar- kaf la og miðað við að 750 til 1000 bílar aki um hann á dag. Eftir að vegur sem þessi er lagður olíumöl yrði þjóðhagslegur sparnaður 264 milljónir króna á ári. Þar að auki myndu ökumenn spara um það bil 499 milljónir króna á sama tíma. Alls er hér um að ræða sparnað sem nemur tæpum 800 milljónum króna á ári. Þegar þessi sparnaður er orðinn að raunveruleika verður án vafa miklu mun auðveldara að afla f jár til bútastefnunnar. Stórátök í varanlegri vegagerð eru því raunverulega forsenda umbóta á fáfarnari veg- um. Bútastefnumenn tala meðnokkru yfirlæti um annað tveggja: malbik fyrir borgarbúa i sumarleyfisferðum eða fjárveitingar til að lyfta vegaköflum í dreifbýli upp úr snjónum i þágu þeirra, sem stunda arðbæra framleiðslu. Þetta er of mikil einföldun á aðstæðun- um og beinlínis villandi. Varanleg vegagerð er enginn munaður, heldur grundvöllur eðlilegrar byggðaþróun- Fimmtudagur 10. mars 1977 VI8ER Helmings hœkkun — breytt stefna Björn Þorsteinsson sagnfræðingur ritar eftirfarandi grein i fréttabréf Aðstoðar | íslands við þróunar- löndin: Þeir ánægjulegu atburöir gerOust eftir aðra umræöu um fjárlagafrumvarpiö i desember s.l., aö fjárveitinganefnd Alþingis hækkaöi fjárframlagiö tii Aöstoöar tslands viö þró- unarlöndin um hleming eöa úr 12,5 milljónum i 25 milljónir þessari stofnun. Enda hefur ei veriö hægt, vegna fjárskorts, aö sinna nema aö takmörkuðu leyti þvi hlutverki sem Aöstoö- inni er þó ætlaö meö lögum. Alþingi og rlkisstjórn skulu færöar þakkir fyrir þessa breyttu afstööu og vonandi stefnu, sem er skref i áttina aö islendingum takist aÖ fram- kvæma I raun samþykkt S.Þ. um aö aöildarrikin láti 1% þjóöartekna sinna renna til aö- stoðar viö þróunarlöndin svo og eigin viljayfirlýsingar, en I lög- um um Aöstoö Islands viö þróunarlöndin er gert ráö fyrir Viöfangsefni: 01 Aðstoö viö þróunarlöndin 25.000 02 Til Flóttamannaráös íslands 800 03 Lögberg-Heimskringla 1.500 04 Samskiptiviövestur-íslendinga 5.000 Gjöld samtals 32.300 jkróna. Var þessi fjárhæö siöan endanlega samþykkt viö af- greiöslu fjáriaganna. Þaö veröur aö segja hverja sögu eins og hún er, en i þessu tilfelli kom hækkun fjárfram- lagsins flestum á óvart, ekki sist stjórn stofnunarinnar svo og öörum þeim, sem haft hafa af- Iskipti af þessum málum. Aöal- [lega kom þetta á óvart vegna þess, að allan timann frá þvi aö lögin um Aöstoö íslands viö þró- unarlöndin voru samþykkt á 1 Alþingi 1971, hefur satt aö segja, litiö veriö fariö eftir eöa tekiö mark á fjárbeiönum, sem Alþingi hefur veriö sent frá Björn Þorsteinsson skrifar: ^............. aö Islendingar nái sem fyrst 1% | markinu. Þá er ekki siöur ástæöa til aö I benda á, aö sennilega er þaö nú 11 fyrsta sinn, sem íslendingar eru [ ekki I mlnus hvaö snertir fjár-j framlög til þróunaraöstoðar. Astæðurnar eru I fyrsta lagil hækkun til Aöstoöar Islands viöl þróunarlöndin og I ööru lagi aöl Island afþakkaöi nú í desemberj s.l. 1 millj. dollara fjárstyrk frá | þróunarstofnun S.þ., sem faral átti til ýmiskonar rannsóknal hér heima. Islendingar hafal áöur fengiö fjárstyk aö upphæö I 1 millj. dala frá þessari stofnun [ eða á árunum 1971-76 og lögÖu| Islendingar þá á móti til þess- arar sömu stofnunar aöeinsj skylduframlag sitt sem var| margfalt minna öll árin. Þá reisn Islenskra stjórnvalda | aö afþakka þennan nýja styrk hafa sumir kallaö heimsku. Hafa hinir sömu bent á, aö Islendingar ættu aö fá sem mest [ sllkra styrkja til aö geta staöiö| straum af rannsóknum sem[ annars væri ekki hægt aö fjár- magna hér innan lands. Þaö er rétt að benda þessum aöilum á, aö þaö situr slst á Islendingum | aö hiröa fé úr sjóöum þróunar- landanna „úr sjóöum fátækal fólksins I heiminum”. Betra [ væri og farsælla aö fá slíkt þar I sem meira væri til og I viöbótj ættu fslendingar ekki aö gleyma | þvl að þaö er einmitt frá fátæku Jjjóöunum sem islendingar hafa [ fengiö hvaö einaröastan stuön-| ing á alþjóöavettvangi I helsta [ llfshagsmunamáli slnu, land- helgismálinu. Þaö væri þvl| heilladrýgra aö Islendingarj reyndu aö sýna einhvern lit á[ þessum vettvangi fremur en aö| vera þiggjendur. ar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.