Vísir - 15.03.1977, Blaðsíða 11

Vísir - 15.03.1977, Blaðsíða 11
VÍSLR Þriðjudagur 15. mars 1077 11 Opinber réttorhöld og mól Hauks Þaö hefur alltaf verið talið eitt einkenna lýðræðisrikja, að þar séu réttarhöld opin. i þvf felst, að málflutningur sé munnlegur og skjöl öll lögö fram I opnu réttarhaldi. I orði kveðnu eru réttarhöld opin á islandi. Framkvæmd er hins vegar áfátt, og þvf verbur ekki neitað, að stundum gætir tregðu hjá þeim, sem að mála- rekstri standa, bæði einkamála og opinberra mála, til þess aí hafa réttarhöldin raunverulega opin. Aðferð Hæstaréttar w Þeir sem. koma inn i dómhús Hæstáréttar.taka eftir þvi, aC trétafla með gleri fyrir hangir á ^instri hönd i ganginum við úti- Jyrnar. A þessari töflu eru aug- lýst þau mál sem taka á til flutnings i réttinum. Er þar sagt frá heiti málsins og málflytj- endum og ennfremur hvaða dag flytja eigi málin. Þannig getur almenningur fylgst með flutningi mála i hæstarétti. Hvergi annars staðar. Þessi aðferð Hæstaréttar er T Har< Isknfí a Idur skrifar “V Blönda I ) hvergi notuð af héraðsdóm- stólunum. Þar getur al- menningur hvergi gengið aö auglýsingatöflu og séð hvaöa mál séu á dagskrá i hverjum dómsal. Afleiðingar þessa eru þær, aö þegar almenningur fær áhuga á einhverju máli, reynist fulltrú- um hans, m.a. fréttamönnum, ákaflega erfitt að fylgjast meö gangi málsins. Þess vegna er gripið til þess að dómarinn sé einlægt og sifellt að skýra út gang málsins fyrir fréttamönn- &*n?r9erd umb°dsrtm- Hauks Pantb°kumá! * •Sm&íæsj .... ^okkrar ath^ rð. .handtökutna 1 99J VEGNA grem»r" gunnar og sr*— um og getur hann þannig verið að dæma málið óafvitandi. Að fylgjast með Meginröksemd þess að hafa réttarhöld opin er að með þvl móti gefist almenningi, þ.e. fréttamönnum og öðrum slík- um, kostur á að fylgjast með gangi mála, gagnrýna það sem miður færi og koma þannig I veg fyrir óþarfa tortryggni. Opin réttarhöld þýða það, að fréttamaöurinn getur mætt i réttarhaldinu; hann á að geta fylgst meö öllu, sem þar fer fram, — og raunar á að lesa upp öll skjöl, sem lögð eru fram i réttarhaldinu. Fréttamaðurinn á siðan að geta af þekkingu sinni dregið saman niðurstöður réttarhalds- ins og skrifað sina frétt um það. Það heyrir til undantekninga að slikt sér gert hér á landi og það er fyrst og fremst sök blaðanna. Veita ekki aðhald Blöðin hafa aldrei gert kröfu um að réttarhöld væru auglýst opinberlega fyrirfram. Þau hafa alltaf sætt sig við einhliða frásagnir þeirra, sem aö réttar- höldunum standa. Um daginn var litilsháttar frétt um þaö I VIsi, aö frétta- manni þess blaös, hafði verið meinaður aðgangur að opnu réttarhaldi. A ég þar við yfir- heyrslur yfir Guðbjarti Pálssyni sem fram fóru i Hegningarhús- inu undir stjórn rannsóknar- dómarans Steingrims Gauts Kristjánssonar. Af frétt Visis var ekki annað aö sjá en dómar- inn hefði hent blaöamanninum út án þess að loka réttarhaldinu. Alvarlegt hneyksli, ef rétt er. Sé þessi frásögn VIsis rétt, sem ég vona að sé ekki, hefur þarna átt sér stað mjög alvar- legt brot gegn grunnreglum laga um opin réttarhöld. Svipuð brot hafa m.a. átt sér stað I . >*&(»& ***** í*« Þannig getur almenningur fylgst með flutningi mála Kœstaréttar Sovétrikjunum og þá alltaf verið fordæmd um allan heim. Frásögn Visis vakti hins veg- ar litla eftirtekt, og hvorki blaðið né samtök blaðamanna risu upp til varnar fyrir blaöa- manninn og þann rétt aö mega fylgjast með réttarhöldum. Raunar var eins og öllum þætti jafn sjálfsagt að fleygja blaöamanni út úr réttarhaldi og drukknum manni af veitingar- húsi. Frásagnir dómarans og Hauks. Framangreindar yfirheyrslur voru I frægu máli gegn Hauki Guðmundssyni. Siðan hefur þaö gerst, að dómarinn hefur birt eigin ritgerð um rannsókn sina á málinu. Jafnframt hefur Haukur skrifað athugasemdir viö dómaraskýrsluna og segir þar rangt frá skýrt. Og hvorum á almenningur aö trúa: báðir eru mennirnir þjón- ar réttvisinnar. . Mál Hauks Guðmundssonar var rannsakað fyrir dómi. Það þýddi að almenningur átti að fá aö fylgjast meö, nema dómar- inn ákvæöi sérstaklega aö loka yfirheyrslunum. Þar sem þetta mál hefur vakið mikla athygli, efa ég ekki, að blaðamenn hefðu fylgst með réttarhöldunum og reyndu það raunar, sbr. blaöa- mann Visis. Þessir blaðamenn hefðu siðan skýrt frá þvi i blöö- um sinum, hvað kom fram viö yfirheyrslur, og greinargerö dómara og Hauks hefði þar meö veriö óþörf. Ég veit að bent verður á aö blaðamenn hafi ekki nægja þekkingu á dómstólakerfinu til þess aö skrifa um það. Slik mót- bára hefur ætið veriö helsta vopn andstæðinga prentfrelsis og skoöanafrelsis I heiminum. Fleiri sundlaugar og aukin hvatning til almennings að synda Hér birtist önnur grein Jó- hannesar Sæmundssonar Iþróttakennara um sund og sænskar rannsóknir á sund- þjálfun: Framfarir f sundtækni eru þvi mjög jákvæð afleiðing af sund- trimmi. Meö reglubundinni sundþjálfun (trimmi) öölast maður aukna færni til aö bjarga sér I vatni, auk þeirra lfffræði- legu áhrifa, sem sundiö hefur. Meiðsl. Meðan á þjálfuninni stóð, áttu engin meiösl sér stað er leiddu til þess að viökomandi varð að hætta þátttöku I rannsókninni. Þetta er mjög mikilvægt þvi þaö hefur komið i ljós við athuganir á öðrum iþróttagreinum, að óþjálfuöu fólki er hætt við ýms- um smámeiðslúm þegar það hefur þjálfun, sem reynir nokk- uð á likamann. t Trygg Hansa rannsókninni áhrifum hlaups voru meiðsl nokkuö tiö, aðallega á ökkla og hnéliöum. Af hópnum er tók þátt I þeirri rannsókn voru 48%, sem áttu i einhverjum erfiðleikum að striða vegna smámeiösla. t rannsókninni á sundinu kvörtuöu tveir einstaklingar undan eymslum I hnjám. Vegna þess að viö bringusund reynir töluvert á hné geta einstakling- ar meö veik hné átt I einhverj- um erfiðleikum. En þar á móti kemur svo aö nokkrir af þátt- takendunum sögðu frá þvi aö ýmis liðamóta og vöðvaeymsl, er þeir höfðu átt við aö striða áöur, hefðu alveg horfið við sundþjálfunina. Þessi rannsókn leiðir greini- lega I ljós að viö sundþjálfun sem almenningsiþrótt er litil hætta á meiðslum. Léttleiki likamans i vatninu, gerir þaö aö verkum að sund er sérstaklega æskileg heilsuræktaaðgerö fyrir þá, sem eru of þungir og einnig fyrir fatlaða. Breytingar á likamsþyngd. Meöalþyngd hópsins var 79,8 kg áöur og 78,7 kg eftir tilraun- ina. Það bendir til svolltillar megrunar meðan á þessu 10 vikna þjálfunartfmabili stóð. Þetta eru samt fremur lítil áhrif á llkamsþyngdina. Orsökin fyrir þvl er sú, að það þarf tiltölulega lltið brennsluefni (mat) til þess að mynda mikla orku. Lauslegir reikningar á orkueyðslunni á æfingatlmanum er að meöaltali 5000kcal. fyrir hvern einstakan. Þar sem reiknað er með að 1 kg af fituvefi innihaldi u.þ.b. 6000 kcal. sést að erfitt er að megra sig með sundþjálfun eingöngu , a.m.k. á skömmum tima. En vegna þess að likamsþjálfun og hreyfing stuöla að eölilegri matarlyst og vinnur gegn ófáti, er sund eða önnur likams- áreynsla nauðsynleg til að halda eðlilegum likamsþunga. Þeir, sem neyta daglega 250-300 cal. framyfir það, sem þeir brenna, geta haldiö llkamþyngd sinni eölilegri og komið I veg fyrir að þeir fitni með þvi að stunda sund 2-3x i viku, 10-30 min. I senn. Niðurlag Þessi rannsókn staðfestir þaö, sem margir áhugamenn um sund hafa haldið fram árum Seinni grein saman. Sund er mjög æskileg iikamsþjálfun fyrir alla. Hættan á meiöslum er litil. Möguleikar á að fá heilsubæt- andi þjálfáhrif eru jafnmiklir og ef hlaupið er, hjólaö eöa gengið á skiöum, sem einnig er æski- legar aðferðir til likamsþjálfun- ar almennings. Alls staðar i tæknivæddum þjóðfélögum eykst þaö, aö' al- menningur sé hvattur til að stunda llkamsþjálfun likams rækt. Margir vinna saman að þessu markmiði og það þurfum viö íslendingar einnig að gera. Astæðan fyrir þessum áróðri er augljós þeas. menn vilja fá fólk til að vernda það, sem þvi er dýrmætast, heilsu sina og sinna. Með þetta I huga liggur beint viö að ætla aö sund geti oröið enn almennara og virkara sem liöur i fyrirbyggjandi heilsu- vernd. Að lokum má spyrja nokkurra spurninga. Eru sund- staðirnir nægjanlega margir, sérstaklega með þeirri aukn- ingu á sundiökun, er á sér staö og sem þarf aö aukast enn meir? Eru sundfélögin reiðu- búnin aö vinna meir að sundi er stefnir ekki að metum og „medalium”, og er þeim gert það fjárhagslega kleift? Eins lengi og sundstaðir eru yfirfullir á þeim tlma, sem fólk getur sótt þá og llta fremur út sem vaðandi sildartorfa, veröa engar umtalsverðar framfarir á trimmsundi, sem hefur þann til- gang að hafa liffræðilega bæt- andi áhrif á fólk. Og meðan sundfélögin hafa ekki bolmagn til aö sinna al- menningssundi, ásamt keppnis- sundi, fást engir leiöbeindendur til að standa fyrir sundþjálfun almennings, en það hlýtur að vera höfuöskilyrði, ef almenn- ingssund á aö veita meira en gott baö. Fleiri sundlaugar, aukin ivatning til almennings og synda og miklu meiri stuðning- ar við hin frjálsu Iþróttasamtök, íru þau skilyrði, er verður aö ippfylla svo að sund geti oröið ann áhrifameiri almennings- tþrótt en þaö er nú i dag.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.