Vísir - 23.03.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 23.03.1977, Blaðsíða 6
Miðvikudagur 23. mars 1977 vism Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 24. mars 1977 £3 Ilrúturinn 21. mars—20. apríl: -II: Farðu mjög gætilega i flestu ser þú tekur þér fyrir hendur i dag Kvöldið er vel til alls konar tii breytinga fallið. Nautið 21. aprll—21. mai: Þér hættir til að vera eigingjórn/ gjarn i dag. Gættu eigna þinna vel, þeim gæti verið stolið eða glatast á annan hátt. m Tviburarnir 22. mai—21. júni: Fljótfærnislegar ályktanir gera ekkert nema vekja andúð á þér. Reyndu að fara gætilega i við- skiptum við aðra undir kvöldið. Krabbinn 21. júni—23. júli: Reyndu að komast hjá öllum þrætum eða rifrildi i dag. Farðu varlega i umferðinni og aktu hæg- ar en þú átt vanda til. Nt Ljónift 24. júli—23. ágúst: Þér hættir til að kaupa þér ástúð og vináttu, en eins og þú veist er það ekki leiðin til að afla sér sliks. Leitaðu vináttu sem varir. Meyjan 24. áfiúst— 23. sept.: Þú skalt hafa samband við fjar- staddan vin eða ættingja i dag. Þér veröur gerður mjög mikill greiði, sem hefur áhrif i náinni framtið. Vogin 24. sept.—23. okt.: Kimnigáfa þin hjálpar-til að létta á henni. Bjóddu ekki neinum i mat i kvöld. Vertu ekki að flika skoðunum þinum. Drekinn 24. okt.—22. nóv.: Vertu ekki aö flika skoðunum þin- 1 um, þvi þeim hættir til að vera gjörólikar annarra skoðunum og misskiljast þvi gjarnan. Notaðu kvöldið til hvildar. RogmaAurinn 23. nóv.—21. des.: Forðastu allt baknag og leggðu litinn trúnað á kjaftasögur sem kunna aö berast þér til eyrna. Ef þú ferö ekki varlega, aflar þú þér óvinsælda. Steingeitin 22. des.—20. jan.: Þér hættir til að vera meinhæð- 'in/n og ókurteis. Þú þarft liklega að flýta þér til að haida áætlun, en gættu þin á of hrööum akstri i um- ferðinni. Vatnsberinn 21. jan.—10. febr. Skildu ekkert eftir á glámbekk i i dag. Þér hættir til að vera mjög kærulaus, reyndu samt að hafa hemil á þessari tilhneigingu. Fiskarnir 20. febr.—20. mars: Þú átt til að sýna óþolinmæði og nöldurgirni i dag. Gefðu öðrum tækifæri til að segja sitt álit. Kvöldið getur orðið hið skemmti- legasta, ef þú sérð að þér.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.