Vísir - 01.04.1977, Side 10

Vísir - 01.04.1977, Side 10
10 VISIR (Jtgefandi:Reykjaprent hf Framkvcmdastjóri:Davfb Gu&mundsson Kitstjórar: t*orsleinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Um- sjón með helgarblaöl: Arni Þórarinsson. Blaóamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. GuMinnsson, Ellas Snæland Jónssorv Finnbogi Hermannsson, Guöjón Amgrimsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjdnsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen UtUtiteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús ólafsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Sölustjóri: Páll Stefánsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. SigurBsson. Dreifingarstjóri: SigurBur R. Pétursson. Auglýsingar: SIBumula 8. Slmar 11660, 86611. Askriftargjald kr. 1100 á mánuBi innanlands. AfgreiBsla: llverfisgata 44. Sfmi 86611. VerB I lausasölu kr. 60 eintakiB. Ritstjórn: SIBumúla 14. Sfmi 86611, 7 Ifnur. Prentun: BlaBaprent hf. Loksins Loksins er komiö fram á Alþingi frumvarp til laga/ sem gerir ráö fyrir afnámi einkaréttar Ríkisútvarps- instil útvarpsf jölmiðlunar. Þetta frumvarp markará margan hátt þáttaskil og er vottur um aukinn skilning á grundvallarreglum um frjálsræöi borgaranna. Stjórnarskráin gerir ráö fyrir óskoruðu tjáningar- frelsi. Þar af leiðir# að borgararnir eiga í því skyni að geta hagnýttsér þá f jölmiðlunarmöguleika, sem fyrir hendi eru. Tími er því vissulega kominn til að nærfellt fjörutiu ára ríkiseinokun á útvarpsf jölmiðlun verði aflétt. Það er einn af þingmönnum reykvíkinga, Guömundur H. Garðarsson, sem gengið hefur fram fyrir skjöldu með því að leggja málið fyrir Alþingi. I okkar ríkisumsvifaþjóðfélagi er hér óneitanlega um nokkuð róttæka tillögu að ræða. En kjarni málsins er sá/ að hún á stoð i meginreglum þeirrar stjórnskipun- ar, sem við byggjum á. Guðmundur H. Garðarsson segir í greinargerð með frumvarpi sínu, að á Islandi hafi beinlínis verið lagð- ar hömlur á tjáningarfrelsið vegna einokunar ríkisins á útvarpsf jölmiðlun. Hann segir þó, að ríkisreksturinn hafi ekki verið óeðlilegur á bernskuskeiði þessarar starfsemi hér á landi, og Ríkisútvarpið hafi leyst starf sitt af hendi með mikilli prýði. Þessi róttæka tillaga um frjálsan útvarpsrekstur er því ekki vantraust á Ríkisútvarpið. Hún er aðeins f lutt i Ijósi nýrra tima og reist á því grundvallarsjónarmiði, að borgararnir eigi skýlausan rétt til þess að hagnýta sér þá fjölmiðlunarmöguleika, sem tæknin leyfir hverju sinni. Flutningsmaður bendir réttilega á í greinargerð- inni, að ótrúlegar tækniframfarir hafi orðið á út- varpssviðinu. Sem dæmi nefnir hann, að án mikils tilkostnaðar megi koma upp staðbundnum útvarps- stöðvum og fullnægja þannig kröfum um aukna fræðslu og meiri f jölbreytni á þessu sviði f jölmiðlun- ar. Um meginmarkmið frumvarpsins segir Guðmundur H. Garðarsson, að með því séu lögð drög að þvi, að á islandi ríki hliðstætt tjáningarfrelsi og þekkist ivestrænum lýðræðisrikjum á sviði hljóðvarps og útvarps. Frumvarpið á þannig að vera spor i áttina að auknu frelsi fólksins frá miðstýringarvaldi embættis- og stjórnmálamanna á þessu sviði. Engum vafa er undirorpið, að á Alþingi munu f ulltrúar rikiseinokunar og f lokksræðis standa upp og haida langar ræður um hættuna, sem því sé samfara að leyfa einstaklingum og félögum að fara með mikil- væg máleinsog útvarpsf jölmiðlun. Þeir munu segja, að engum sé betur treystandi en þeim sjálfum til þess að ákveða hvað fólk megi heyra og hjá í útvarpsf jöl- miðlum. En í sjálfu sér gilda þvi sem næstsömu lögmál um útvarpsf jölmiðlun og blaðaf jölmiðlun. Helsti munur- inn er sá, að það er talsvert dýrara að gefa út dagblöð en reka litla útvarpsstöð. Allar röksemdafærslur um, að fyálsræði i þessum efnum leiði til óeðlilegrar mis- mununar hafa því enga gilda stoð í veruleikanum. Það væri eins unnt að banna blaðaf jölmiðlun. Þetta frumvarp Guðmundar H. Garðarssonar kveð- ur í sjálfu sér á um ofur eðlilegan hlut. En það er rót- tækt miðað við ríkjandi ríkisumsvifahugarfar. Fyrir þá sök er alveg Ijóst, að frumvarpið mun ekki fá skjótan framgang á Alþingi. Málið er nokkur próf- steinn á frjálshyggjumenn. Og þó að búast megi við neikvæðum viðbrögðum ríkisumsvifa- og flokksræðis- manna, kemst þingið ekki hjá því að marka nýja frjálsræðisstefnu í þessum efnum innan skamms tíma. Föstudagur 1. aprll 1977 vism Frá Einari Guðfinns- syni, blaðamanni Visis i Helsinki: „Ég tel ekki aö þessar umræöur muni hafa afleiöingar fyrir starf- semi Noröurlandaráös”, sagöi Geir Hallgrimsson, forsætisráö- herra, er blaöamaöur VIsis ræddi viö hann á þingi Noröurlandaráös i gær. Þá höföu fariö fram haröar um- ræöur milli svia, finna og norö- manna um utanrikis- og varnar- mál og um ummæli Kekkonens, finnlandsforseta um æfingar þýskra hermanna i Noregi. „Þaö var vissulega óhugnan- legt aö heyra fulltrúa á þingi Noröurlandaráös ræöa um blaöaskrif I ööru landi meö þeim hætti sem finnski fulltrúinn geröi”, sagöi Geir Hallgrimsson ennfremur. „ Hann gaf i skyn aö blaöa- skrif væru á ábyrgö rlkisstjórnar. Meö þessu er ritfrelsi I raun ekki viöurkennt.” „Þaö kom skýrt fram i máli Brattelis er hann svaraöi Saarin- en, aö þaö væri skoöun sin aö utanrikisstefnu finna beri aö á- kveöa I Helsinki. Á sama hátt ætl- aöist hann til aö viöurkennt væri aö utanrikisstefna norömanna væri aöeins ákveöin af rfkisstjórn og stórþingi þar i landi. Undir þessa skoöun vil ég eindregiö taka”, sagöi Geir Hallgrimsson. Geir Hallgrimsson og Tryggvi Brattelie. Uggur i fulltrúum Þaö má segja að loft hafi veriö lævi blandiö i almennu umræöun- um á þingi Norðurlandaráðs i gær. Menn hér, bjuggust við að kastast myndi i kekki milli norð- manna og finna og það varö raun- in. Það var finninn Saarinen sem hóf deilurnar, en hann er leiötogi kommúnista i Finnlandi. Saarin- Saga simaþjónustu á íslandi er nýlega oröin sjötiu ára. Siminn varö strax mikilsvert tæki i strjálbýlu landi, og fóik, sem áöur haföi miöaö tima sinn viö nón- fell og dagmálahæöir byrjaöi aö tala um simakiukku.þ.e. hinn rétta tima, sem var annar en hentaöi erfiöisfólki, sem þurfti snemma á fætur og gekk seint til hvilu og lét muna^svona tveimur timum á sinni klukku og simaklukkunni eins og til aö freista þess aö lengja starfsdaginn. Þótt simaklukkan væri fyrst og fremst viömiö- un, sem boöaöi nýjan tima en ekki sigur- verk i stofu, sagöi þekktur kennimaöur og skáld, þegar menn rýndu hreifir til sólar löngu eftir aö sói var runnin undir, að nú væri dimmt á simaklukku. 220 NORÐMENN FENGU HVARVETNA HRÓS Vorið 1906 hófst lagning simalinu frá Seyðisfirði norður um land og suður til Reykjavíkur. Þá voru norskir verk- fræðingar og verkstjórar komnir hingað ásamt fjölmennu liði. Munu um 220 Norð- menn hafa unnið við linulagninguna þeg- ar flest var. Fengu þeir hvarvetna hrós fyrirframkomu sina og afköst. Mikla nor- ræna ritsimafélagið lagöi jafnframt sæ- streng til iandsins og var sæsimasam- bandið opnaö 31.ágúst fyrrgreint ár. Aður en til þess kom höfðu veriö uppi stórdeilur um simann, m.a. riðu sunnlenzkir bændur hundruðum saman til Reykjavikur til að mótmæla simanum við Hannes Hafstein ráðherra. Þeir lögöust á sveif með loft- skeytunum, og raunar komst fjarskipta- samband á við landið I byrjun júni 1905, þegar fulltrúi frá Marconi lét reisa loft- skeytastöng við Rauöará. Fyrsta Mar- coni-skeytið fjallaði um tvo skipaárekstra og rolukast i bandariskum utanrikisráö- herra. Seinna varð Marconiútbúnaðurinn til að flytja lslendingum fréttir af andláti konungs sins, Kristjáns nlunda, samdæg- urs og þótti munur. Andlát fyrirrennara Kristjáns fréttu þeir ekki um fyrr en næstum ár var liöiö frá andlátinu, en þau tlöindi bárust með skipi til Skagastrand- Tekist ihendur eftir undirskrift jarðstöövar- samningsins, Poul Lausen ogHalldór E. Sig- urðsson. Ljósm. Jens. ar. norrœnaog fslenska sfmavaldið ARFLEIFÐIN FRA1906 Þaö lauk þvi langri og strangri einangr- un landsins með tilkomu Marconi-skeyt- anna fyrst og siðan sæsimans. Ot af simanum áttust viö eigi minni menn en Einar Benediktsson, skáld, sem var Mar- coni-maður, og Hannes Hafsteir sem vildi sæsima. í þá daga voru færð rök aö þvi að loftskeytasamband væri ekki eins öruggt og sæsimi, og er auðskiliö mál að sæsiminn hlaut að veröa ofan á i þeirri deilu, enda var þá enginn farinn aö sjá fyrir þróun loftskeyta eða dreyma um gervitungl. Nú kveöur orðið aftur viö ann- an róm, þegar staöhæfa má meö fullri vissu aö fjarskiptasamband um gervi- tungl séu bæði oröin öruggari og auk þess rýmri i allri notkun. Islendingar hafa eðli- lega lagt áheislu á að færa sér hina nýju

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.