Vísir - 01.04.1977, Side 17
vism Föstudagur 1. april 1977
17
Rlkisútgáfan hefur vörugeymslu viö Brautarholt I Reykjavik, þar sem
þessi mynd var tekin.
jafnframt þeim skólum, sem
gæta sparnaöar, möguleika á að
fá ýmsar hjálparbækur ókeypis.
Kjörbækur af
ýmsu tagi
i meginatriöum er kerfiö þann-
ig, aö hver skóli fær ákveöna f jár-
hæð á nemanda, og er hún reikn-
uö út á grundvelli framleiðslu-
kostnaðar. Ef skóli sparar notk-
un grunnskólabóka þá getur
hann fengið kjörbækur fyrir þá
fjárhæð, sem hann sparar á
grunnskólabókunum.
Þessar kjörbækur eru af ýmsu
tagi. M.a. er þar um að ræða
bókaflokkinn „Land og Saga”, en
i honum er m.a. komin út saga
Reykjavikur. Verður gefin út i
þessum flokki sérstök bók um
sögu hvers landfjórðungs.
Aö sögn forráðamanna útgáf-
unnar er reynt að gefa skólunum
kost á sem fjölbreyttustu bóka-
vali auk sjálfra grunnskólabók-
anna.
Einnig er reynt aö hafa sem
besteftirlit með notkun námsbók-
anna, og ef nemándi glatar bók
eða skemmir er honum skylt að
kaupa nýja i staðinn.
Sérstakar bækur
fyrir vangefna
Það kom fram, að meðal aö-
kallándi verkefna útgáfunnar á
næstunni væri útgáfa sérstakra
bóka og hjálpargagna fyrir van-
gefna nemendur, og meira af
hjálpargögnum og bókum, sem
miðaðar væru viö að sjálfstæöari
vinnubrögð og meiri fjölbreytni i
námi en nú tiökast. Handbækur
fyrir kennara væri eftir að gefa út
iýmsum námsgreinum, þótt þeg-
ar hafi allmargar slikar verið
gefnar út i samstarfi við Skóla-
rannsóknadeild menntamála-
ráöuneytisins.
Samstarf útgáfunnar við skóla-
rannsóknadeildina, sem hófst
1969, markar annars þáttaskil i
sögu útgáfunnar. Þetta samstarf
er i þvi fólgið, að skólarannsókna-
deildin sér um samantekt, samn-
ingu og prófin nýrra skólabóka og
hjálpargagna, en útgáfan annast
framleiðslu þeirra og dreifingu.
Þetta sama ár, 1969, var útgáf-
unni skipt i tvær sjálfstæðar
deildir: útgáfudeild og afgreiöslu-
og söludeild, en Skólavörubúðin
er veigamestur starfsþáttur sið-
arnefndu deildarinnar. Sú versl-
un hefur verið rekin i 20 ár. Hlut-
verk hennar er einkum að greiða
fyrir skólunum við útvegun á ým-
iss konar skólavörum og kennslu-
tækjum.
Aðstoða skólabókasöf nin
Frá árinu 1970 hefur Rikisút-
gáfan unnið sérstaklega að þvi aö
veita aðstoð til að koma upp
skólabókasöfnun með þvi að
bjóða skólum forlagsbækur út-
gáfunnar á hagstæðu verði, og
hafa margir skólar notfært sér
þetta.
Þá hefur útgáfan unnið að þvi
siðan 1957 að koma upp eins konar
skólasafni. Þetta safn nær til inn-
lendra og erlendra kennslubóka,
handbóka fyrir kennara, ásamt
Bragi Guðjónsson, framkvæmdastjóri afgreiðslu- og söludeildar,
f Skólavörubúðinni.
ýmsum fleiri kennslugögnum.
Illa hefur gengið aö ná i margar
gamlar kennslubækur, t.d. gömul
stafrófskver.
150-200 höfundar
Það kom fram hjá forráða-
mönnum fyrirtækisins, að gifur-
lega margir höfundar og lista-
menn hefðu unnið aö gerð þeirra
bóka, sem útgáfan hefur i timans
rás gefiö út.
Höfundar munu þannig vera
150-200 talsins. Það hefur einnig
farið mjög vaxandi að islenskir
listamenn séu fengnir til þess að
skreyta námsbækurnar, og hafa
þar fjölmargir komið við sögu á
undanförnum árum, enda er það
áhugamál útgáfunnar að ná með
þeim hætti til sem flestra lista-
manna.
Framkvæmdastjóri
í tvo áratugi
Eins og áður sagði er Jón Emil
Guðjónsáon framkvæmdastjóri
útgáfunnar, en Bragi Guðjónsson
framkvæmdastjóri afgreiðslu- og
söludeildar.
Jón hefur starfað hjá útgáfunni
i tvo áratugi. A undan honum var
Steingrimur Guðmundsson,
prentsmiöjustjóri, umsjónar-
maður útgáfunnar fyrstu tuttugu
árin.
Fyrsti formaður námsbóka-
nefndar var Vilmundur Jónsson,
landlæknir, en nú er i þeirri stööu
Kristján J. Gunnarsson, fræðslu-
stjóri i Reykjavik. —ESJ.
ÞAL) TÁST í ÖLLLM VTRSLLJNI M.
AUGLÝSIÐ í VÍSI
Þægilegur staður
til að staldra við -
notalegt umhverfi
til að eyða kvöldstund.
Við köllum hann Skálafell
Athvarf í alfaraleið þar sem hægt er að spjalla
D
n
Skálafell, 9. hæð Hótel Esju.