Tíminn - 02.07.1968, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. júlí 1968.
TÍMINN
3
GAULLISTAR HAFA EINIR
HREINAN MEIRIHLUTA!
. ^ ''jt
Dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra veifa til hins mikla mannfjölda, sem sézt að hluta til á myndunum.
(Timamynd—GE)
ÞUSUNDIR HYLLTU
NÝKJÖRINN FORSETA
NTB-París, mánudag.
Með yfirburðasigri sínum í
seinni hluti frönsku þingkosn-
inganna hafa Gaullistar gersam
lega splundrað vinstri öflunum í
Frakklandi. Flokkur Gaulle-
ista fékk samtals 293 þingsæti og
er það 94 þingsæta aukning frá
því í þjóðþingskosningunum 1961.
Sigur Gaulleista er þó enn meiri,
ef reiknað er með fylgi allra
stuðningsmanna de Gaulle hers-
höfðingja. AIls er talið að þeir
hafi nú um 357 þingsæti af þeim
487, sem franska þjóðþingið er
skipað, þannig að stjórnarandstæð
ingar ráða aðeins yfir 117 þing-
sætum.
í sjónvarpsræðu, sem de Gaulle
forseti hélt á laugardag hvatti
hann frönsku þjóðina til þess að
sameinast og mynda sterkt, var-
andi, og áhrifaríkt þjóðþing. Og
hann varaði sérstaklega við á-
hrifum kommúnista og stjórnleys
ingja. Eftir úrslitunum í gær að
dæma virðist franska þjóðin enn
einu sinni hafa tekið’ hið traust-
vekjandi átrúnaðargoð og þjóðar-
hetju fram yfir stjórnmálalega ó-
vissu og fyrirsjáanlega upplausn
og byltingu fransks þjóðfélags.
f þessum kosningum hlutu
Gaulleistar og nánustu fylgis-
menn þeirra samtals 357 fulltrúa
kjöma á þing, en það mun vera
um 119 fleiri þingfulltrúar en. í
fyrra. Komúnistar fengu 35 þing
sæti, og er það 39 þingsæta tap
frá síðustu þingkosningum.
Vinstrasambandið fékk í sinn hlut
57 þingsæti og er það 64 þing-
sætum minna en við síðustu kosn-
ingar og formaður þess, Francios
Mitterand félli í sínu kjördæmi.
Fyrrverandi fjármálaráðherra í
stjórn de Gaulle, Valery Giscard
d‘ Estaing, formaður stuðnings-
flokks hershöfðingjans, hægri
Gaulleista, vann mikinn sigur í
kosningum þessum. Hlaut flokkur
hans 64 þingsæti og bætti við sig
23 þingsætum frá síðustu kosning
um.
Miðflokkur Jacques Duhamel
tapaði nokkrum þingsætum og
sjö utanflokkaþingmenn hlutu
kosningu í stað 8 áður.
Sigur Gaullista er einsdæmi í
franskri nútímasögu og nú á næst
unni mun George Pompidou hefj-
ast handa um að mynda nýja rík-
isstjórn. Á miðvikudag kveður de
Gaulle saman ráðherra hinnar
nýju stjórnar til þess að
skýra fyrir þeim þá pólitísku
yfirlýsingu, sem birt mun verða
við setningu þjóðþingsins fimmtu
daginn 11 júlí n.k.
í nótt sem leið sagði Georges
Pompidou forsætisráðherra, að
hinn glæsilegi sigur Gaulleista
væri „sigur frelsis og frjálsræðis-
ins“. Hann bætti einnig við að
slíkur yfirburðasigur hefði í för
með sér vissar skyldur, og sú
fyrsta væri sú, að ekki mætti mis-
nota meirihlutann. Pompidou hélt
því fram að óeirðirnar og tilraun-
in til þess að nota þær sem stökk-
pall til þess að grípa völdin hefðu
orðið þess valdandi að þjóðin
hefði veitt Gaulleistum brautar-
gengi í fyri'i hluta kosninganna.
Eftir úrslit seinni hlutá kosn-
inganna liti svo út sem
meirihluti kjósenda sætti sig
ekki við einstrengingslegar þving-
Framhald 4 bls. 14
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Geysilegur mannfjöldi hyllti frú
Halldóru og Kristján Eldjárn við
Pjóðminjasafnið í kvöld. Mörg
þúsundir manna og kvenna söfn
uðust saman til að fagna nýkjörn
um forseta kl. 21. Pegar hjónin
gengu út á tröppur Þjóðminjasafns
ins voru þau hyllt með langvarandi
lófataki og húrrahrópum. Lúðra
sveit lék og tók mannfjöldinn und
ir og söng fullum hálsi.
Illmögulegt er að giska á hve
margir voru þarna samankomnir
en óhætt er að fullyrða að mun
færri komust að byggingunni én
vildu, því að umferðaröngþveiti
myndaðist á öllum götum sem
liggja að safnbyggingunni og sátu
þúsundir manna í bílum sínum og
komust ekki á staðinn. Náðu bíla
Iestirnar vestur og austur Hring
braut, austur Reykjanesbraut og
Miklubraut og lögreglan varð að
loka hluta af Tjarnargötu og Sól
eyjargötu fyrir bílaumferð. Norð
an næðingur var á og sólskin. Lét
mannfjöldinn ekki kuldann á sig
fá og streymdu sífellt fleiri að.
Frú Halldóra og Kristján Eldjárn
stóðu um 20 mínútur á tröppunum
og veifuðu til mannfjöldans og
að lokum ávarpaði Kristján fólk
ið, en hætt er við að íáir hiafi
heyrt til hans því gjallarhornum
Framhald á bls. 14.
\