Tíminn - 02.07.1968, Page 13
I
MMÐJUDAGUR 2. júlí 1968.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
13
............... ^ n^njn^n m
Hinar Guðnason
Einar vann
Coca-Cola keppninni í golfi
lauk á laugardaginn með sigri
Einars Guðnasonar eftir tvísýna
og harða keppni. Svo jöfn var
keppnin, að ekki var ljóst fyrr
en á síðustu holunni, hver myndi
sigra. Einar fór 72 holur á 324
höggum. Hans ísebarn, ungur og
mjög efnilegur golfspilari, varð
annar á 326 höggum og þriðji
varð Þorbjörn Kjærbo á 329 högg
um. Þorbjöm hafði forystu fyrir
síðustu umferðina.
2 leikir
UL-liösins
Unglingalandsliðið, skipað lelk
mönnum 18 ára og yngri, lék
gegn b-landsliðinu s. 1. föstudag
og tapaði 3:2. Var frammistaða
unglingaliðsins mjög góð. En elcki
að sama skapi á Akureyri á sunnu
daginn, þegar liðið mætti b-liði
Akureyrar, en þá tapaði liðið 6:2.
ísl. leikmennirnir verða
að berjast eins og Ijón
þegar þeir mæta þýzku „áhugamönnunum" í kvöld
Landsleikurinn í kvöld
2. deild
Tveir leikir fóru fram í 2. deild
uxn helgina. Akranes vann ísa-
fjörð fyrir vestan, 3:0, og Breiða-
blik sigraði Selfoss 3:2. Akranes
hefur nú tryggt sér örugga for-
ystu í b-riðlinum.
Um helgina voru íslenzku
landsliðsmennirnir í æfinga-
búðum að Laugarvaibni undir
stjóm landsliðsþjálfarans
Peiffhers og létu þeir vel af
dvöilinni þar, þd .prógrammið
værl strangit. Þýzku lei'kmenn
irnir toomu á lauigardaginn og
höfðii æfingu á sunnudaginn,
á kosningadaginn, á KR-vellin-
um. Þeir eru sterkle-gir og
likj-ast ekki áhugamönnum í
fjjótiu bragði.
fslenzka liðið í kvöld er skip
að þessum leikmönnum: Þor-
bergur Atlason, Fram, Ársæll
Kjarbansson, KR, Þorsteinn
Friðþjófsson, Val, Anton
Bjamason, Fram, Guðni Kjart
ansson, Keflavík, Þórólfur
Beck, KR, fyrirliði, Eyleifur
Hafstei-nsson, KR, Elmar Geirs
son, Fram, Kári Árnason, Akur
eyri, Hermann Gunnarsson,
Val, Reynir Jónsson, Val.
Framhald á bls i 5
Kári Árnason, einn af framherjum
. liðsins, í landsleik gegn Bretum.
við Vestur-Þjóðverja er
fyrsti iandsleikur íslands
eftir hinn sögulega 14:2
leik í Kaupmannahöfn á
síðasta ári. íslenzka liðið
hefur því allt að vinna. Því
miður er landsleikjasaga
okkar í knattspyrnu ekki
glæsileg, og nú er kominn
tími til að snúa blaðinu við.
Hinn fjölmenni hópur
áhugamanna um knatr-
spyrnu krefst þess af lands
liðsmönnum okkar, að þeir
berjist eins og Ijón í leikn
um í kvöld, að þeir stefni
óhikað að sigri.
Peiffher landsliðsþjálfari um þýzku leikmennina, sem mæta íslandi í kvöld:
„Þeir eru engir áhugamenn"
„Þessir þýzku leikmenn eru
að mínu áliti engir áhuga-
menn f íþróttinni. Sumir eru
það að nafninu til, aðrir ekki.“
Þetta voru orð landsliðsþjálf-
arans, Walther Peiffliers, í við-
tali, sem blaðið átti við hann
um mótherja íslenzka lands-
liðsins í landsleiknum í kvöld.
Peiffher er áreiðanlega maður,
sem veit hvað hann segir um
knattspymu og knattspyrnu-
menn og þá sérstaklega þýzka
knattspyrnu.
„Ég hef fylgzt með þýzkri
k-nattspyrnu síðan ég var smá
strákur og þekki marga af leik
mönnum þessa liðs af afspurn
og úr greinum þýzku dagblað
anna. Þýzk og ensk knatt-
spyrna er sú bezta, sem leik-
in er í heiminum í dag Knatt
spyrnumenn þessara þjóða
leika taktiskt, fast og ákveðið,
algerlega lausir við sirkus-
knattspyrnu Suður-Ameríku-
landanna og sumra Evrópu-
landa. Það er að vísu skemmti-
legri knattspyrna á að horfa,
en ekki að sama skapi eins
árangursrík og sú knattspyrna,
sem leikin er í Englandi og
Þýzkalandi.
í Þýzkalandi er deildaskipt-
ingin þannig, að 18 lið leika í
efstu deild. sem kölluð er
„Bunder-lígan“. og er hún ein
göngu skipuð atvinumönnum
Þaðan komu allir leikmenn
þýzka landsliðsins, sem léku
úrslitaleikinn gegn Englandi i
síðustu heimsmeistarakeppm.
Það lið, sem sigrar í „Bunder
lígunni" verður Þýzkalands-
meistari, en tvö. neðstu liðin
falla niður i ..Regínoal-lfguna"
sem er næsta deild fyrir neð-
an, en í henni eru um 90 lið,
sem ieika í 5 riðlum eftir því
hvaðan þau eru frá Þýzkalandi
Tvö efstu liðin í hverjum
riðli komast í úrslit, og leika
til úrslita í tveim fimmliða
riðlum, og það lið, sem sigrar
í sínum riðli, kemst upp í
„Bunder-iíguna.‘ I ár voru það
liðin BSC Hertha Berlín, og
Offenbach-Kickers
Þessi lið eru bæði atvinnu-
mannalið, en þó er einn leik-
maður Offenbach-Kickers með
í þessu þýzka liði, sem leik-
ur hér, og er sagt áhugamanna-
lið. Það er Egon Schmitt, frá-
bær leikmaður, og þarf engin
að segja mér, að hann sé á-
hugamaður, í það minnsta ekki
eins mikill áhugamaður og ís-
lenzku leikmennirnir, sem eru
þeir einu sönnu áhugamenn í
knattspyrnu sem leika í
Evrópu í dag. Alls staðar, sem
ég þekki til, fá leikmenn, á-
hugamannaliða, og þá sérlega
landsliða greitt fyrir æfingar
og leiki sína, nema hér á ís-
landi. Allir leikmenn Region-
allígunnar þýzku eru í það
minnsta hálf-atvinnuimenn, ,
eins og t.d. leikmenn SW.
Essen, sem hér var fyrir
skömmu.
Annað lið, sem lék í 10 liðá
úrslitum í Regíonallígunni í ár,
og er talið atvinnumannalið,
er SV Alsenburg, en þetta lið
á einnig einn leikmann, sem
leikur sem áhugamaður í
kvöld. Fyrir neðan „Regíonal
líguna koma svo áhugamanna-
liðin, og eru þau um 300, og
leika f mörgum riðlum Úr
þessum liðum eru flestir leik-
menn liðsins. Þar fyrir neð-
an eru svo mörg hundruð á-
hugamannalið, sem leika í tug-
um riðla, en úr þeim liðum
eru engir leikmenn sem leika
hér. Eitt frægasta knattspyrnu-
lið Þýzkalands FC KÖLN, en
það lið leikur í „Bunderlíg-
unni“ og varð þar f 3 s*eti á
síðasta ári, á mjög gott áhuga-
mannalið, sem varð Þýzka-
landsmeistari í ár, og úr því
liði leika í kvöld 3 mjög góðir
Ieikmenn. sem allir eiga það
sameiginlegt, að þeir
verða atvinnumenn í haust
þegar keppnin hefst aftur. Þeir
eru 19—20 ára gamlir, og ald-
ir upp hjá félaginu, til þess
eins, að verða atvinnumenn,
sem þeir nú þegar eru orðn-
Framháld á bls. 15.