Tíminn - 23.07.1968, Blaðsíða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 23. júlí 1968.
Settu 17
met í
ferðinni
Nú er flest af íslenzka sund-
fólkinu, sem keppti í írlandi,
Skotlandi og Norðurlöndunum,
komið heim eftir velheppnað
keppnisferðalag. Á tímabilinu
2. júlí til 16. júlí setti sundfólk
ið hvorki meira né minna en 17
íslandsmet. Og tveir af sund-
mönnum okkar, þeir Leiknir
Jónsson og Guðmundur Gísla-
son, náðu OL-lágmörkum í þess
ari ferð. Leiknir í bringusundi,
eins og áður hefur verið getið
um, en Guðmundur í 200 m.
fjórsundi, þar sem hann synti
á 2:22,0 mín. Þetta skeði á al-
þjóðlegu sundmóti í Stokkhólmi
en þátttakendur í því móti voru
frá öllum Norðurlöndunum og
einnig frá Belgíu, Ítalíu, Júgó-
slavíu, Tékkóslóvakíu, Vestur-
Þýzkalandi, Austur-Þýzkalandi
og Austurríki. Var íslenzka
sundfólkið í 3., 4. og 5. sæti í
sumum greinum og er það mjög
góð frammistaða miðað við,
hve um sterkt mót var að ræða.
Áhorfendur
3,6 millj.
Alls sáu um 3,6 millj. áhorfenda
leikina í Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu. Eru þá ótaldir allir
þeir, sem fylgdust með keppninni
í sjónvarpi. Langmest varð að-
sóknin að síðustu leikjunum, þ. e.
8-liða keppninni, en 895 þúsund
áhorfendur voru að þeim leikjum.
Að einstökum leik var aðsóknin
mest að leik Sovétríkjanna og
Ungverjalands, en þann leik sáu
103 þúsund.
Sigurmark á
síðustu mín.
B-lið KR átti í mestu erfiðleik-
um með lið Völsunga frá Húsavík
í bikarkeppni KSÍ. Léku liðin sam
an um helgina og unnu KR-ingar
2:1. Sigurmarkið skoruðu þeir
ekki fyrr en á síðustu mínútunni.
Sigþór skoraði 1:0 fyrir Völsunga,
en Baldvin Baldvinsson jafnaði fyr
ir KR. Það var svo miðvörðurinn,
Þorgeir Guðmundsson, sem skor-
aði sigurmark KR á síðustu mín-
útu leiksins.
(Timamyndir: Gunnar)
Frá keppninni í 400 m. grjndahlaupi. Sigurvegarinn, Halldór GuSbjörnsson, er þriðji frá vlnstrU
Meistaramót íslands í frjálsíþróttum hófst í gærkvöldi:
Betri árangur en náðist
á mótinu í fyrra!
Alf-Reykjavík. — Vart er hægt
að tala um, að góður árangur hafi
náðst á fyrsta degi meistaramóts
íslands í frjálsíþróttum, sem hófst
á Laugardalsvellinum í gærkvöldi,
þótt árangur í sumum greinum
hafi verið betri en á mótinu í
fyrra og nokkur ný mótsmet hafi
verið sett nú. Guðmundur Her-
mannsson, KR, vann bezta afrekið
með því að varpa kúlunni 17,70
metra, en það er 1 cm betra en
fyrra mótsmet.
Hafdís Helgadóttir, UMSE, var
nálægt því að jafna íslandsmetið
í hástökki kvenna, en hún stökk
1,50 metra. Núverandi met er 1,52
metrar. Eitt sveinamet var sett í
gærkvöldi. Ólafur Þorsteinsson,
KR, sem varð annar í 800 metra
hlaupinu — á eftir bróður sínum,
Þorsteini, — hljóp á 2,00,1 mín.
Keppnisveður var ágætt í gær-
kvöldi:
Úrslit í einstökum greinum urðu
eins og hér segir:
400 m. hlaup:
Halldór Guðbjörnsson, KR 57,1
Trausti Sveinbjörnss., UMSK 58,4
Sigurður Lárusson, Árm. 60,0
Guðmundur Hermannsson varpar kúlunni í gærkvöldi.
Hástökk (karla).
Jón Þ. Ólafsson ÍR
1,94
Þróttur vann
A-lið Þróttar átti í engum erfið
leikum með b-lið Keflavíkur í bik-
arkeppni KSÍ. Sigruðu Þróttarar
5:1. I liði Keflavíkur voru nokkur
þekkt nöfn. Má nefna Rúnar „bítil“
Júlíusson og Jón Jóhannsson.
Erlendur Valdimarsson, IR 1,84
Elías Sveinsson ÍR 1,80
Spjótkast:
Valbjörn Þorláksson KR 60,32
Kjartan Guðjónsson, ÍR 56,84
Björgvin Hólm, ÍR 54,22
Kúluvarp (karla).
Guðmundiur Hermannss. KR 17,70
Jón Pétursson, HiSiH 15.79
Erlendur Valdimarsson, ÍR 15.76
Kúluvarp (kvenna):
1. Emilía Baldursd. UMSE 10,48
2. Guðrún Óskarsd. HSK 9,67
3. Ólöf Halldórsd. HSK 9,55
Lamgstökk:
Þorvaldur Benediktsson ÍBV 6,90
Valbjörn ÞorlákssonKR 6,90
Gestur Þorsteinsson UMSS 6,44
100 m. hlaup (kvenna):
Kristín Jónsdóttir, UMiSK 13,1
Þuríður Jóhannsdóttir UMSE 13,6
Sigríður Þorsteinsd. HSK 13,6
Unnur Stefánsd., HSK 13,6
200 m. hlaup:
Valbjöm Þorlálksson, KR 22,9
Reynir Hjartarso-n, ÍBA 23,9
Trausti Sveinbjörnsson UMSK 23,9
5000 m. hlaup:
Jón H. Sigurðisson HSK 16r04,l
Gunnar Snorrason, UMSK 16:37,3
Jón Guðlaugsson, HSK 18:46,6
800 m. hlaup:
Þorsteinn Þorsteinss. KR 1:54,7
Ólafur Þorsteinsson KR 2d)0,l
Þórður Guðmundss. UMSK 2:03,1
4x100 m. boðhlaup:
Sveit KR 45,2
Sveit ÍR 46,7
Sveit Ármanns 47,6
Hástökk kvenna:
Hafdis Helgad. UMSE 1,50
Ingunn Vilhjálmsd. ÍR 1,45
Unnur Stefánsd. HSK 1,40
Mótinu verður haldið áfram í
kvöld á Laugardalsvellinum og
hefst keppnin kl. 20,00.
Aflar sér upplýsinga
um ísl. knattspyrnu
• Um þessar mundir er staddur
hér á landi portúgalskur blaða-
maður, sem sendur var gagn-
gert til íslands til að afla upp-
lýsinga um íslenzka knattspyrnu
og þá sérstaklega Vals-liðið
með tilliti til Evrópubikarkeppn
innar, en eins og kunnugt er,
leikur Valur gegn Benfica í 1.
umferð.
Hefur hinn portúgalski blaða
maður átt viðtöl við nokkra
leikmenn Vals, m. a. Hermann
Gunnarsson, Reyni Jónsson og
Gunnstein Skúlason. Einnig hef
ur hann rætt við forráðamenn
knattspyrnudeildar Vals.
Þ. Ólafsson. Honum gengur sjaldan vel í keppni á Laugardalsvelllnum.
Jón