Tíminn - 23.07.1968, Blaðsíða 13

Tíminn - 23.07.1968, Blaðsíða 13
PRteJUDAGUR 23. júh' 1968. ÍÞRÓTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Mark úr hornspyrnu kom íslenzka liðinu á sporið! „B“-landslið íslands sigraði Færeyinga, 3:0. Staðan í hálfleik var jöfn, 0:0. B-landslið íslands í knatt- spyrnu, sem sumir telja þó réttara að kalla „BA-landslið" þar sem nokkrir a-liðsmenn voru innanborðs, átti í nokkr- um erfiðleikum gegn Færey- ingum í Þórshöfn á sunnu- daginn. Eftir markalausan fyrri hálfleik komst íslenzka liðið loks á sporið í síðari URDU VEÐURTEPPT- IR IFÆREYJUM! Alf-Reykjavík. — fslenzku lands liðin í knattspyrnu og handknatt- leik, sem kepptu í Færeyjum um helgina, áttu að koma heim á sunnudagskvöldið. En þá var veð- urútlit óhagstætt í Færeyjum og komst flugvélin, sem átti að sækja Þorsteinn Björnsson varöi vel í Færeyjum. liðin, ekki þangað. í gær, mánudag, biðu landsliðs- mennirnir í Færeyjum eftir vél og var ef til vill búizt við, að flogið yrði þangað síðdegis. Er því ekki loku skotið fyrir, að landsliðs- mennirnir hafi komizt heim í nótt. hálflelk, þegar hinn knái KR- útherji, Hörður Markan, skor- aði beint úr hornspyrnu, 1:0. Fram að þeim tíma hafði leik- urinn verið mjög þófkenndur og fátt um fína drætti. En þetta mark Harðar gaf íslenzka liðinu byr undir báða vængi. Og þess var ekki langt að bíða, að öðru marki væri bætt við. Björn Lár- usson skoraði 2:0 eftir góðan und- irbúning Hreins Elliðasonar. Og þriðja og síðasta markið skoraði Gunnar Felixson eftir að hafa leik ið á færeyska markvörðinn. Urðu lokatölur því 3:0. fslenzka liðið sýndi ekki eins góðan leik og búizt hafði verið við og var sigurinn stærri en efni stóðu til. Færeyingum hefur farið mikið fram í knattspyrnu á s. 1. 2—3 árum og er skemmst að minn ast, að síðast sigraði ísland að- Mótherjar KR í Evrópubikarkeppninni: Unnu á útivelli, en töp- uðu 0:1 á heimavelli! eins 2:1 hér heima á Laugardals- vellinum. Færeyingar virðast eiga nokkuð sterka varnarleikmenn, en sóknarmenn þeirra voru ekki beittir. í þau fáu skipti, sem þeir sköpuðu sér marktækifæri, notuðu þeir þau illa. Miðað við, hve sterku b-lands- liði ísland tefldi fram, er þessi sigur í það minnsta. Það er t. d. ekki hægt að ganga fram hjá þeirri staðreynd, að þrír af leik- mönnunum léku með a-landsliði fyrir örfáum dögum, Jóhannes Atlason, Magnús Jónatansson og Guðni Kjartansson. Aðrir leik- menn í liðinu hafa margir hverjir leikið með a-landsliði, t. d. Magnús Torfason, Guðmundur Pétursson og Gunnar Felixson. Þess má geta, að tveir leikmenn yfirgáfu völlinn vegna meiðsla, Gunnar Fel. skoraði þriðja og síð- asta markið. Guðmundur Pétursson, markvörð- ur, en Kjartan Sigtryggsson tók við stöðu hans, og Magnús Jóna- tansson, en Björn Árnason — bak vörður í unglingalandsliðinu — kom inn á fyrir hann. Áhorfendur voru nokkuð marg- ir, en keppnisveður ekki sem bezt. Slovan Bratislava, sama liðið og KR mætir í Evrópubikarkeppni bikarhafa, lék nýlega gegn sænsku meisturunum Malmö í svokallaðri Toto-keppni. Fyrri leikinn, sem fram fór í Svíþjóð, unnu Tékkarn- ir 2:1, en blöð í Svíþjóð voru sammála um, að leikurinn hefði alveg eins getað endað 6:1 Tékk- unum í vil. Hins vegar brá svo við, þegar liðin mættust í síðari leiknum í Tékkóslóvakíu, að sænska liðið sigraði 1:0. Áttu fæstir von á þeim úrslitum. En þetta sýnir, að tékkneska getur átt misjafna leiki. liðið Breiðablik vann Breiðablik sigraði ísafjörð með 2:1 í b-riðli 2. deildar á sunnudag- inn og er Breiðablik því ekki leng nr í fallhættu í 2. deild. Fallbar- áttan stendur á milli ísafjarðar og Selfoss annars vegar og Víldnga hins vegar. ísl. landslið í handknattleik hafði yfirburði gegn Færeyjum Eftir frekar jafnan fyrri hálfleik sem lauk 11:8 íslandi í vil, hafði íslenzka handknattleikslandsliðið mikla yfirburði gegn Færeyingum í síðari hálfleik og sigraði að lok- um með 10 marka mun, 27:17. Svo miklir voru yfirburðir íslenzka liðsins í síðari hálfleik, að aldrei var um spennandi leik að ræða. Bergur Guðnason úr Val, sem þarna lék sinn fyrsta „landsleik" sýndi mjög góðan leik. Sérstaklega var hann öruggur í vítaköstunum í síðari hálfleik, þegar stærri stjörnum hafði brugðizt bogalist- in. Bergur er einhver mesti víta- kastasérfræðingur okkar og kem- ur sjaldan fyrir, að hann misnoti vítakast. Slíkir menn eru nauðsyn legir hverju liði, því að það er dýrt að missa vítaköst — sérstak- lega í jöfnum leikjum. Aðeins einu sinni í leiknum höfðu Færeyingar yfirhöndina. Það var í byrjun leiksins, þegar þeir komust yfir 3:2. íslenzka lið- ið jafnaði rétt strax og náði síðan forystu. En Færeyingar voru I tveimur frambærilegum landslið- aldrei langt á eftir og hafði ísland ] um á að skipa i handknattleik. aðeins þrjú mörk yfir í hálfleik, eins og fyrr segir. Strax í síðari hálfleik náði fs- land góðum kafla og náði 5 marka forskoti, 14:9. Misíókst þó Geir Hallsteinssyni að skora úr v£ta- kasti. Enn átti munurinn eftir að aukast. íslendingar fengu þrjú vítaköst með stuttu millibili og skoraði Bergur úr þeim öllum. Á sama tíma varði Þorsteinn Björnsson mjög vel og m. a. v£ta- kast. Mörk íslands skoruðu: Bergur 9, Jón H.. Einar M. og Ágúst 4 hver, Geir 8, Sigurður J., Hilm- ar B. og Örn H. 1 hver. Þess má að lokum geta, að marg ir sterkir landsliðsmenn sátu heima, þar á meðal fyrirliði ís- lands í siðustu leikjum, Ingólfur Óskarsson, en þeir áttu ekki heim ángengt. Sýnir þetta, hve breidd- in í handknattleiknum er mikil hjá okkur. Hefur ísland örugglega Pele hlnn brazilíski. Honum var stungið í steininn ásamt öðrum leik. mönnum Santos. PELE OG FÉLOGUM STUNGIÐ í STEININN! Gerðu aðsúg að dómara og særðu hann í andliti. Sá atburður varð i Columbiu í Suður-Ameríku í síðustu viku, að öllum leikmönnum hins fræga braziliska knattspyrnu- liðs, Santos, var stungið í stein inn að afloknum leik Santos og úrvalsliðs Columbíu. Meðal þeirra, sem látnir voru dúsa í fangelsi, var átrúnaðargoð Brazilíumanna, Pele. Nánari atvik voru þau, að í miðjum leik mótmæltu leik- menn Santos marki, sem Col- umbíu-liðið skoraði. Var Pele þar fremstur i flokki. Ætlaði þá dómarinn að vísa honum út af. Skipti engum togum, að leik menn Santos umkringdu dómar- ann og gerðu aðsúg að honum. Særðist hann í andliti og varð að yfirgefa völlinn. Annar dóm- ari kom í hans stað og lauk leiknum með sigri Santos 4:2. Dómarinn, sem varð fyrir árásinni, kærði Santos-leikmenn ina umsvifalaust — og þegar leiknum lauk, voru þeir hand- teknir og settir í varðhald. Úr því sluppu þeir ekki fyrr en eft ir þrjá klukkutíma og ekki fyrr en þeir höfðu allir undirritað afsökunarbeiðni til dómarans og áhorfenda.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.