Tíminn - 26.07.1968, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 26. júlí 1968.
TIMINN
FOR YSTUMÖNNUM BÍLSTJÓRA
IKEFLA VÍK SAGT UPP STARFH
Ástæðan: Afskipti af kjaramálum sérleyfisbifreiðastjóra
EKH-Reykjavík, fimmtudag.
Upp hefur risið alvarleg at-
vinnudeila í Keflavík milli sér-
leyfisnefndar og framkvæmda-
stjóra Sérleyfisbifreiða Kefla-
víkur annars vegar og Bifrei'ða-
stjórafélagsins Keilis hins veg-
ar. Málsatvik VQru þau, að um
síðustu mánaðamót var tveimur
vönum bifreiðarstjórum hjá Sér
leyfisbifreiðum Keflavíkur sagt
upp starfi án þess að nokkur
ástæða væri gefin upp. Nú vill
svo til, að annar þessara manna,
Skarphéðinn Njálsson, er for-
maður Keilis en hinn, Ragnar
Sigurðsson, hefur verið í samn-
inganefnd félagsins og líta þeir
svo á, að ástæðan til uppsagnar
innar sé hin virka þátttaka
þeirra í stéttarfélagi sínu. Bif-
reiðastjórafélagið Keilir hefur
mótmælt þessari uppsögn með
því að setja yfirvinnubann á
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur og
allir starfsmenn fyrirtækisins
utan yfirmenn skrifuðu undir
mótmælin. Blaðið hafði í dag
samband við nokkra málsaðila.
Við komum að máli við Skarp
héðin Njálsson í dag, þegar
hann var á milli ferða hér í
Reykjavík og fara svör hans við
nokkrum spurningum blaða-
manns hér á eftir:
„Ég hef verið formaður Bif-
reiðastjórafélagsins Keilis frá
stofnun þess 14. marz 1966, en
Keilir er stéttarfélag þeirra
manna, sem aka fólksflutninga-
bflum hjá hópferða- og sérleyf
ishöfum í Keflavík. Frá stofnun
félagsins hefur það átt í harðri
kjarabaráttu og hefur það sett
á oddinn fyrir utan almenn
kjaramál, aukin frí og að unnir
matar- og kaffitímar yrðu
greiddir í yfirvinnu. Félagið hef
ur verið skeleggt í kjarabaráttu
sinni og m. a. var Keilir eina
stéttarfélagið á Suðurnesjum,
sem tók þátt í allsherjarverk-
fallinu í vetur og hélt því meira
að segja áfram eftir að 18
manna nefndin samdi og náði
fram hagstæðari kjörum en
stéttarbræður þeirra í Reykja-
vík. Sem formaður félagsins
hef ég að sjálfsögðu þurft að
beita mér töluvert".
„Við getum ekki séð annað
en að uppsögnin eigi rætur sin-
ar að rekja til þess að við Ragn
ar höfum unnið að félagsmál-
um og átt í deilum við atvinnu-
rekanda á þeim vettvangi, en
einnig blandast inn í þetta
stjórnmála- og þjóðmálaskoðan-
ir, þó ekki vilji ég fara út í
það atriði nánar. Að okkar
dómi er uppsögnin ólögleg sam
kvæmt vinnulöggjöfinni eða
þeim ákvæðum hennar, sem
kveða á um fullt skoðanafrelsi
og að enginn atvinnurekandi
megi hafa áhrif á félagslegar
skoðanir manna eða afskipti.
„Af hálfu sérleyfisnefndar,
en hún er skipuð af bæjar-
stjórn til þess að hafa umsjón
með rekstri Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur, _sem annast fólks-
flutninga milli Reykjavíkur og
Keflavíkur, hefur ekki fengizt
nokkur önnur ástséða uppgefin
fyrir uppsögninni en sú, að ver
ið væri að stokka upp í fyrir-
tækinu. Framkvæmdastjórinn
hefur til dæmis látið hafa eftir
sér, að sem starfsmenn hefði
hann síður en svo eitthvað út
á okkur Kjartan að setja“.
„Þetta eru hreinar atvinnuof-
sóknir og til marks um það
barst Bifreiðastjórafélaginu
Keili bréf í fyrradag frá fram-
kvæmdastjóra Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur, Ragnari Friðriks-
syni, þar sem hótað er mótað-
gerðum ef til framkvæmdar
kemur yfirvinnubann það, sem
félagsmenn höfðu einróma sam
þykkt“.
Tlminn birtir hér bréfið orð-
rétt:
Skarphéðinn Njálsson.
„Bifreiðastjórafélagið Keilir.
Keflavík.
Vér höfum í dag móttekið
bréf yðar dags. 22. þ. m., þar
• sem þér tilkynnið oss þá ákvörð
un félagsfundar og trúnaðar-
mannaráðs félags yðar að stöðva
alla aukavinnu meðlima félags-
ins hjá oss frá og með 24. þ. m.
Af þessu tilefni viljum vér
tjá yður eftirfarandi;
Vér lítum á aðgerðir þessar
sem algerlega ólögmætar, og
ef til þeirra kemur, áskiljum
vér oss allan rétt til skaðabóta
o. fl. í því sambandi. Sama gild
ir, ef til framkvæmda koma hót
anir yðar um mótmælavinnu-
stöðvun.
Virðingarfyllst,
f. h. Sérleyfisbifreiðar
Keflavíkur,
Ragnar Friðriksson".
Blaðamaður spurði Skarphéð-
in að lokum, hvert þeir félagar
og Keilir ætluðu að skjóta máli
sínu.
„Ýmislegt hefur komið til
greina. Félagar okkar á vinnu-
stað hafa sýnt okkur stuðning
sinn með þvl að skrifa allir und
ir mótmælaskjal, sem var býsna
harðort og Keilir samþykkti
einróma á félagsfundi að setja
yfirvinnubann á fyrirtækið.
Næsta skref myndi svo verða
mótmælavinnustöðvun eins og
talað er um í bréfinu, en margir
góðir menn hafa reynt að koma
því til leiðar að ekki yrði haf-
izt handa um slíkar aðgerðir
strax, þar eð unnið er að því
að „sjattla" málið. Undanfarið
Framhaid a bts 15
Baldur Þórðarson
Tækifæri til aukinnar
líkamsræktar kvenna
Steinn Guðmundsson.
Tveir nýir íslenzkir
milliríkjadómarar
fá verkefni í Osló í haust.
Alf • Reykjavík. — Stjóni Knatt
spyrnusambands íslands hefur til-
nefnt tvo nýja miUiríkjadómara.
Eru það Baldur Þórðarson og
Steinn Guðmundsson, en báðir eru
þeir kunnir landsdómarar. Alls
voru tilkynntir fjórir milliríkja-
dómarar tfl FIFA (Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins) frá íslandi,
itbir Hannes Þ. Sigurðsson og Magn
ús V. Pétursson, auk Baldurs og
Steins.
í framhaldi af þessu má geta
þess, að ákveðið hcfur verið, að
Steinn Guðmundsson muni dæma
Evrópubikarleik norska liðsins Lyn
og ungverska liðsins Vasas, sem
fram fer í Osló í haust. Línuverðir
verða þeir Baldur Þórðarson og
Guðmundur Guðmundsson.
Athygli lækna og annarra líkams
fræðinga hefur á síðustu árum I
auknum mæli beinzt að mikilvœgi
líkamsnæktar fyrir fólk á öllum
aldri. Óhóf I mataræði, ófþarft fitu
magn og hreyfingarleysi eru atriði
er flýta fyrir Ihnignun og hrörnun
líkamans.
Með þessar staðreyndir I huga
var um sl. áramót hafin ný starf-
semi á vegum Júdód'eildar Ár-
manns. Þar er konum á öllum aldri
gefið tækifæri til hollra og hóf-
legra líkamsæfinga undir hand-
‘leiðslu sérþjálfaðra leiðbeinenda.
í æfingatímum þessum er aðal-
áherzlan lögð á alhliða líkamsrækt
en ekki á fimleika I venjulegum
skilningi. Sérstaklega er ástæða til
þess að benda á, að engin nauðsyn
er á, að þátttakendur hafi áður
notið íþróttaþjálfunar. Þar sem
það á við er konunum gefinn kost
ur á ráðleggingum varðandi sér-
stakt mataræði til þess að losna
við óþarfa líkamsþunga.
Vegna mjög góðra undirtekta og
mikillar aðsóknar að þeim nám-
skeiðum sem haldin hafa verið á
undanförnum mánuðum, hefur nú
verið ákveðið að fjölga námskeið-
unum. Hefjast byrjendanámskeið I
byrjun næsta mánaðar og verður
bæði um síðdegistíma og kvöld-
tíma að ræða. Er sérstök ástæða
til þess að benda á, að eitt nám-
skeiðið er verður þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 3 sd., er eingöngu
ætlað konum um og yfir fimmtugt
og konum sem myndu vilja léttast
um meira en 4—5 kg. Öll nám-
skeiðin fara fram í hinum nýju og
mjög vistlegu húsakynnum Júdó-
Framhaid á bis 15
KiúöfitmtNN *öRur,c,u!s mcmm*
h'öfn NO-RNAHROí
i«*& »»>#>*>.< n »»mV:
ÖRUGGUR AKSTUR
í Höfn gefur út
leiðarlýsingu
Klúbburinn ÖRUGGUR AKST-
UR I Höfn í Hornafirði hiefur gef
ið út leiða.rlýsingu um leiðina frá
Höfn til Skaftafells I Öræfum og
frá Höfn til Egilisstaða. Er þetta
smekklegur þrlblöðungur, og í
honum er getið helztu staða S
leiðunum, og sagt frá I hve mik-
illi fjarlægð frá Höfn þeir eru.
Framhaio a Dls 15
Athuga um
brezka sýn-
ingu í Rvík
KJ-Reykjavík, fimimtudag.
Að undanförnu hefur Torben
Friðrikisson forstjéri Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkur verið á
ferðalagi í Bretlandi, þar sem
hamn hefur rætt við ýmsa kaup-
sýslumenn, og menn sem standa
framarlega í verzlunarmálum
Bretlands. Meðal þess, sem rætt
hefur verið um, er mögulei'ki á
að setja upp brezka sýningu I
Reykjavík, en brezkar sýningar,
eða brezkar vikur, hafa verið I
mörgum Evrópuborgum, o-g veru
lega sett svip sinn á viðkomandi
borgir, t.d. með brezkum strætis-
Framhalo á bls 15
Forystumaður sænskra
samvinnumanna látinn
Carl Albert Anderson, sem
lengi var einn af forystumönnum
sa.mvinnuhreyfingari.nnar á Norð
urlönduim, lézt s.L laugardag.
Varð hann bráðkvaddur í fœðing-
a,rbæ sinum, Filipstad, þar sem
hainn var í sumarfríi. Anderson
var 69 ára að aldri.
Carl Albert Anderson lét sænsk
þjéðmál mjög til sín taka. Hann
sat í fjölmörg ár I borgarstjórn
StoVkh.álrnÆlwitg-.'' »'.g t USkIrdt-g
inum. Hann hefur mörg undanfar
i ár verið forseti borgarstjérnar-
Stokkhólms. Hann var fram-
kvæmdastjéri Konsumförenimigen
í Stökkhólmi á árumum 1942 til
1965 og stjórnarformaður sam-
bands s-ænsku samvinniufélaganna
1957 til 1965. Andersen var virk-
ur þátttakandi í norrænu sam-
starfi og kom hann oft til ís-
lands og sat fumdi sambands nor
rænu samyinufélaganma og átti
mai-ía UAvi*>