Tíminn - 26.07.1968, Side 11
FÖSTUDAGUR 26. jnlí 1968.
TIMINN
11
Meö
morgun
kaffinu
Sigur'ður í Seli var búmaður
góður og átti mifelar heyfyrning
ar. Einu sinni var hann í kirkju.
Presturinn hélt langa þreytandi
stólraeðu, og hafði Sigurður
gani'li sofnað undir ræðunni.
Þetta var á útmánuðum, og
hafði vetur verið harður. í
ræðulok minntist prestur á
harðindin og búraunir bænda,
en sagði síðan.
— Þeir þurfa ekki að bera
kvíðboga fyrir framtíðinni, sem
treysta guði.
Þá rumskaði Sigurður og
sagði.
— Já, og hafa heyin.
Guðmundur Hannesson próf
essor var í tíma með lœkna-
nemurn og sagði við þá.
— Það er tvennt, sem ég
ætla að brýna fyrir ykkur: Að
vera athugulir á allt og sigr-
ast á viðbjóði á öllu, sem
lýtur að sjúkdómum.
Hér er ég nú með þvag
úr sykursjúkri konu í glasi.
Nú sting ég fingri í glasið og
sleiki af fingrinum. Gerið þið
nú eins og ég.
Þeir gerðu það.
Þá sagði Guðmundur.
— Það er nú allt í lagi hjá
ykkur að sigrast á viðbjóðinum,
en það er verra með athyglina.
Ég stakk vísifingri í gilasið, en
sleikti löngutöng.
Gamall bóndi í Borgarfirði
kvaddi vin sinn, sem var að
fara tiil Reykjavikur, með þess-
um orðum.
— Þú ættir að líta inn til
hans Jóns gamla. Hann er orð-
inn steinblindur, karlauming-
inn, og hefur gaman af að
sjá kunningja sína.
FIÆTTUR
OG MÁT
Þessi skennmfilega staða hér
á eftir kom upp í skák þeirra
N. Rossolimo og J. Cukierman
á skákmóti í París 1937.
imakj...
fH * 11 JM H i
ili
— Loksins er ég hoíin að
finna parið sem mér iíkar,
vinstri fótar skóinn úr kassan
um þama og hægri fótar skó
inn úr þessum kassa héma.
Rossolimo hafði hvítt og lék
í 18. leik Bxpt, sem svartur
svaráði með Rxp þvl annars er
svarti kóngurinn mát. Rossol-
imo lék þá Rg6 og þá er
drottningin af. Svartur gaf því.
r~;
I1
7 n
11
*!
_ B
18
Lárétt: 1 Hugsuaarsöm 5 Stuldur
7 Þvertré 9,Dr.asl 11 Slæm 13
Miðdegi 14 Hálfunnið land 16
Tónn 17 Maskað í mél 19 Tregar.
Krossgáta
Nr. 78 -
Lóðrétt: 1 Rita 2 Numer 3
Lík 4 Sæla 6 Versnaði 8
Fis'kur 10 Sólar 12 Dýr 15
Op 18 Trall.
Ráðning á gátu nr. 77.
Lárétt: 1 Feldar 5 Lús 7 Et
9 Skör 11 Lak 13 Asa 14
Skor 16 KM 17 Fánum 19
Linari.
Lóðrétt: 1 Frelsi 2 LL 3
Dús 4 Aska 6 Prammi 8 Tak
10 Öskur 12 Kofi 15 Rán 18
Na. v
39
tímanum leið. Bréfið var aðeins
þrjár línur og það voru jafn-
mörg orð í hverri línu.
— Ég elska þig. Ég elska þig.
Ég elska þig.
Hún kyssti kortið og hélt því
upp að brjósti sínu. Ótti og skelf-
ing næturinnar virtust ekki eins
yfirþyrmandi núna, þegar sólin
skein fyrir utan gluggann.
Alloa mataðist og klæddi sig
hægt og rólega. Þjónustustúlkan
kom með blómavasa og kom blóm
unum fyrir á snyrtiborðinu.
— Þær eru dásamlegar, ung-
frú, — sagði hún. — Attu unn-
usta? Það er gott. — Alloa gat
ekki varist brosi. Það var svo
dæmigert fyrir Frakka að snúa
sér beint að hlutunum og að vera
sannfærða um, að blóm gætu að-
eins þýtt eitt — umhyggjusaman
og ákafan elskhuga.
Hún las kortið aftur og stakk
þvx síðan niður í hálsmálið. Hún
fann að hún var óskaplega gamal-
dags og rómantísk, en gat ekki
að því gert. Hún vildi, að kortið
lægi við hjarta hennar og hún
vildi heyra skrjáfið í því, þegar
hún hreyfði sig.
Hún velti því fyrir sér, hvað
hann væri að gera. Hvert fór,
hann? Hafði hann komið með
þessi blóm sjálfur á leið sinni
eitthvað eða hafði hann sent ein
hvern annan með þau?
Hún hugsaði með sér, hvort
hann hefði hugsað um hana ag
legið vakandi, hvort hann hefði
þráð öryggi eins og hún til þess
að þeirra á milli þyrftu ekki að
vera nein leyndarmál eða laxxn-
ung.
Að síðustu var hún tilbúin og
sneri sér frá snyrtiborðinu, tók
upp minnisbókina og fór til svefn
herbergis frú Derange. Hún barði
að dyrum og heyrði nefmælta
rödd frú Derange kalla: — Kom
inn.
Hún opnaði. — Ó, þarna ertu
Alloa, — sagði frú Derange
hressilega. — Ég ætlaði einmitt
að fara að hringja eftir þér. Þú
ert seint á ferli. — Mér þykir
fyrir því, — sagði Alloa afsakandi.
— Ég svaf yfir mig.
— Þú ert lánsöm — sagði frú
Derange meinlega. — Mér kom
ekki dúr á auga í alla nótt. En
ég hef nú líka alltaf átt bágt
með svefn.
Hún leit á bréfin og sneri við
því, sem lá efst í bunkanum og
Allou fannst líkast því, sem hún
gerði gælur við það.
__Eg fékk bréf frá hertoga-1
ynjxmni í morgun, — sagði hún.
— Það kom rétt áðan. Hún bið-|
ur okkur að koma allar og dvelj-'
ast f kastalanum. Við eigum að
koma ekki á morgun heldur hinn.
Er það ekki stórkostlegt?
— Á ég að fara líka? —
spurði Alloa.
— Já, þú átt að koma líka, —
sagði frú Derange. — Mér finnst
það nú alveg sérstaklega elsku-
legt af henni. En hún esr nú líka
alveg einstaklega töfrandi' og sér-
stök á allan hátt.
Allou fannst eins og hjartað
Hvernig- atti hún nú að fara að
því að hitta Dix? Hvað mundi
gerast, ef hún byggi í Pougy
kastalanum og hann langaði til
að hitta hana?
— Fyrst svona stendur á för-
um við Lou auðvitað ekki að ó-
maka okkur við að fara til San
Sebastian í kvöld Okkar á milli
sagt, er ég fegin að hafa afsök-
un fyrir að fara ekki.
— Það er bezt, að ég hringi
til frú Derange. — Um leið og
þú gerir það geturðu hringt í
þennan lista af fólki og boðið
því f kokteilboð hingað í kvöld.
Við höldum boð í kvöld i staðin
fyrir að fara. Þetta eru allt inn-
anbæjarsímtöl, svo það tekur þig
ekki langan tíma að hringja.
— Það er sjálfsagt að gera
það, — sagði Alloa.
Frú Derange leit á hana. — Ég
er sannarlega mjög ánægð með (
þig Alloa, — sagði hún. — Ég
ætla að nota tækifærið og segja
þér, að þú hefur staðið þig með
prýði, bæði sem eiknaritari hjá
mér, og sem félagi fyrir Lou.
Alloa svaraði einhverju, en það
var svo ógreinilegt, að það heyrð-
ist ekki. — Ég læt mér í léttu
rxxmi liggja, þó ég játi það fyrir
þér, að ég hafði dálitlar áhyggj-
ur af því, hvernig Lou mundi |
taka þessu hjónabandi sem henni
er ætlað með hertoganum. Ég
bjóst auðvitað ekki við, að kast-
alinn væri svona stórkostlegur
og þó er ég ekki að segja, að
það hafi verið hann, sem réði úr-
slitum. En við Lou töluðum dá-
lítið saiHan í gærkvöldi og hún
sagði, að henni fyndist, að ég
hefði haft rétt fyrir mér, að láta
hana ekki giftast Steve. Hún
sagði mér, að hann hefði reynt
að hitta hana f London og þú
hefðir sent hann í burtu. Það var
alveg rétt af þér, þó mér fyndist
nú reyndar. að þú hefðir átt að
láta mig vita.
— Ég vissi ekki, hvað var rétt-
ast að gera, — sagði Alloa. —
Hann bað sérstaklega um að fá
að sjá Lou eina.
— Jæja, ég held, að þú hafir
átt þátt í því á einn eða annan j
hátt að henni var forðað frá að
gera eitthvað, sem mér kynni að
hafa verið á mót’ skapi, — sagði
frú Derange rausnarlega.
Allou fannst þetta hrós nú held
ur óverðskuldað, en áður en hún
gat sagt nokkuð hélt frú Derange
áfram:
— Mér er sama þó ég segi þér
það Alloa, en ég er mjög ham-
ingjusöm kona þessa stundina.
Ég hef unnið að þessu lengi og
þetta er draumur. sem ég hélt
stundum að mundi aldrei rætast.
Mig langaði ailtaf til að Lou bæri
aðalstitil. Mig langaði til að hún
yrði valdamikil og gæti skipað sér
á sess með fólki af tignum ætt-
um í Evrópu. En þessi kastali-
Hann gerði mig orðlausa af hrifn
ingu. Hertogaynjan sagði mér
lika í einrúmi að ættargimstein-
arnir séu með þeim stórkostleg-
ustu í Evrópu. Hún hefur* lofað
að sýna Lou þá, þegar við kom-
um.
— Ég vona, að Lou verði ham-
ingjusöm, — sagði Alloa lágt
Um leið og hún sagði þetta,
fann hún til djúprar meðaumkun
ar með Lou, sem mundi aldrei
líða eins og henni sjálfri leið nú,
mundi aldrei vita. hvað það væri
að elska, og vera tilbúin að fórna
öllu fyrir einn mann, sem gæti
ekkert gefið í staðinn uema sjálf-
an sig.
— O, jæja, — sagði frú Ðer-
ange. — Enn er heilmikið eftir
ógert og það á eftir að gera
niargar áætlanir Hlauptu nú til
Lou og spurðu hana, hvort hún
vilji láta bjóða einhverjum fleir-
um í veizluna og svo skal ég láta
þig fá öað sem eftir er af bréf-
unum.
Alloa hlýddi. Hún fór út úr
herbergi frú Derange og barði
að dyrum hjá Lou.
— Kom inn.
Lou sat uppi í rúmi með morg-
unverðinn við hlið sér. Hún var í
litlum morgunjakka brydduðum,
fölbleikum dúnfjöðrum og dökk-
ir hárlokkarnir þyrluðust óstýri-
látir um höfuðið. Hún var mjög
falleg og brosti til Allou um leið
og hún kom inn. — Góðan dag-
inn, Alloa. Hvað er spennandi að
gerast í dag? - sagði hún með
fullan munninn. — Móðir þís
vill, að þið hættið við að fara í
kvöldverðarboðið í San Sebastian
— byrjaði Alloa.
— Gott — greíp Lou fram í. —
Cartwright hjónin eru hræðilega
leiðinleg. Ég mundi _borga fyrir
að þurfa ekki að eyða kvöldi hjá
þeim.
— Þess í stað. — hélt Alloa
áfram, — stingur hún upp á að
hafa boð hér í kvöld. Hún lét
mig hafa lista yfir fólk, sem hún
ætlar að bjóða og bað mig að
spyrja þig, hvort það séu nokkr-
ir fleiri, sem þú vilt láta bjóða.
— Ég man ekki eftir nokkurri
hræðu, — sagði Lou áhugalaus.
Hún lauk við morgunverðinn,
ÚTVARPIÐ
Föstudagur 26. |úli
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg
isútvarp
13.15 Lesin
dagskrá
næstu viku. 13,30 Við vinnuna:
Tónleikar. 14.40 Við, sem heima
sitjum Inga Blandon ies söguna:
„Einn dag rís sólin hæst*. 15.00
Miðdegisútvarp. 16.15 Veðurfregn
ir. íslenzk tónlist. 17,00 Fréttir.
Klassísk tónlist. 17,15 Lestrar-
stund fyrir litlu börnin 18.00
Þjóðlög. 18.45 Veðurfregnir. Dag
skrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Til
kynningar 19.30 Efst á baugi.
Björgvin Guðmundsson og Tóm
as Karlsson fjálla um erlend mál
efni. 20.00 Lög eftir Noel Cow
ard. Joan Sutherland syngur. 20.
00 Sumarvaka: a Ungmennafé-
lagshreyfingin f upphafi aldar.
b) Söguijóð Ævar R. Kvaran les.
e) Liljukórinn syngur 21.30 Gest
ur f útvarpssal: Ferry Gebhardt
frá Hamborg leikur á píanó, 22.
00 Fréttir og veðurfregnir. 22.16
Kvöldsagan: „Viðsjár á vestur-
slóðum, Kristinn Freyr les (4).
22.35 Oktett op 7 f C-dúr eftir
Georges Enesco Félagar úr
strengjakvartett rúmenska Tón
skáldafélagsins og Ríkisfflharmon
lunnar leika 23.15 Fréttir í stuttu
máli. Dagskrárlok.
I DAG
Laugardagur 27. júlí
7.00 Morgunútvarp, 12.00 Há-
degisútvarp. TP^*lígHBTiTTIfl
i3.oo óskaiög QQnmmH
sjuklinga.
Kristín Sveinbjörnsdóttir kynn-
ir. 15.00 Fréttir. 15.15 Á
grænu ljósi. Pétur Sveinbjarn
arson stjórnar umferðarþætti.
15.25 Laugardagssyrpa í um sjá
Hallgríms Snorrasonar. 17.15
Á nótum æskunnar. Dóra Ingva
dóttir og Pétur Steingrímsson
kynna nýjustu dægurlögin. 17.
45 Lestrarstund fyrir litlu
börnin. 18.00 Söngvar í léttum
tón. 18.20 Tilk. 18.45 Veður
fregnir. Dagskrá kvöldsins. 10
00 Fréttir. 19.30 Daglegt líf
Valdimar Jóhannesson rit
stjórnarfulltrúi sér um þátt
inn. 20.00 Landsdowne-sterngja
kvartettinn leikur 20.30 Leik
rit; „Manntaifl“ 21.45 Amerísk
tóg Felicia Weathers syngur.
22.00 Fréttir og veðurfregnirí
22.15 Danslög. 23.55 Fréttir i
stuttu miáli. Dagskrárlok.