Tíminn - 31.07.1968, Qupperneq 6

Tíminn - 31.07.1968, Qupperneq 6
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 31. júlí 1968. Þar sem hesturinn hossar Suddinn á Kambabrún Iofaði ekki góðu um veðurskilyrði á þess um sunnudegi, 21. degi júlímán- aðar. Nokkrir bílar höfðu numið staðar og farþegar rýndu niður í gegnum þokumistrið í von um að sjá, þó ekki væri nema skák af hinu frjósama og búsældarlega Ölfusi, en það mátti grilla í lág og lítillát húsin í Hveragerði. Menn ypptu öxlum og glottu hver framan.í annan. Ætli maður á annað borð að ferðast, er löng reynsla fyrir því, að menn eru til neyddir að taka því sem verða vill í veðurlegu tilliti og reyna að gera gott úr öllu saman. Við Sunn lendingar höfum andlega reynslu af ferðalögum í rigningu, áreiðan lega miklu meiri en þeir í öðr- um landshlutum. Þessvegna erum við hættir að vera uppnæmir. Að vísu er hæpið að innifela kven- þjóðina, vegna þess að í þess aug um er fátt verra en rigning í ferðalagi. Það væri þá helzt dauða- drukkinn eiginmaður. En í miðjum Kömbum greidd- ist nokkuð úr þokusuddanum og niður við flötina, þar sem fram- takssamir einstaklingar ætluðu að reisa „Mótel“ og gefa almenningi kost á að njóta með sér einhvers skerfs af væntanlegum gróða, var orðið bjart og hlýtt og gufumekk irnir í Hveragerði stóðu beint upp í loftið, þangað til allt rann sam- an, ský og gufa í þungan mökk yfir þorpinu og næsta nágrenni þess. Rigning var við lágmark, þrátt fyrir þá fullyrðingu margra að sé á annað borð rigning á Suð- urlandi, megi gera ráð fyrir að Hveragerði sé blautast. Og undir Ingólfsfjalli ökum við í rykmekki. Þar hefur auðsjáan lega ekki rignt og það sem eftir er leiðarinnar austur að Hellu á Rangárvöllum, er þurrt, hlýtt og elskulegt veður. Hella er þrifalegt og vingjarn- legt pláss. Húsin eru í hinum klassíska valmastíl, sem var alls- ráðandi á landinu eftir styrjöld- ina. Þau eru yfirleitt máluð í björtum litum og garðar eru yndi auganu. Þessvegna stingur veitinga og samkomuhús íbúanna átakan- lega í stúf við umhverfið. Það er líkast niðurníddu frystihúsi í ver stöð. En það var engan veginn ætlun in að skoða Hellu, eða yfirleitt að koma með neinar vangaveltur um það pláss. Leiðin liggur' enn í austur og spölkorn utan við Hópreið Geysismanna f upphafi mótsins þorpið er beygt inn á troðning, sem liggur í suðurátt niður á Rangárbakka, en klukkan 3 eft- ir hádegi þennan dag hefjast þar kappreiðar og góðhestasýning á vegum Hestamannafélagsins Geys is, þar í sýslunni. Borið saman við hina alþekktu Skógahóla undir Ármannsfelli, eru Rangárbakkar líkastir þeim víðu, fögru völlum sem kerling keifaði um í himna- ríki, þegar hún örvænti um sál- ina hans Jóns. Ofan við háan rofabakka er útsýn yfir mótssvæðið, sem er dóm pallur, og afmörkuð hlaupabraut þar sem hægt er að hleypa hest- um 800 metra. Allt er sílgrænt og örléttur rigningarúði vætir grasið sem ilmar þægilega við borgarbú- anum og vekur honum einhvern eðlislægan dapurleik, eða súrsæta tilfinningu til uppruna síns. Þó að klukkan sé ekki nema 2 og klukkustund þangað til mótið verður sett samkvæmt mótsskrá og auglýsingum, er kom inn talsverður fjöldi manna og bíla og stundum bregður fyrir illsku- legum útblásturseim úr díseljepp um. Rómantíkin getur hreint rok- ið út í veður og vind, þegar mað- ur finnur þann fjanda í nösunum. Ekki má svo gleyma hestunum. Þeir eru allir í einni girðingu sunn an við dómhringinn og þaðan má heyra ys og frís og hróp og köll og ekki allt, sem blíðast. Ekki klukkan langt gengin í þrjú, þegar hinn venjulegi forleik ur allra útimóta hefst. Af dóm- palli gengur maður og dregur á eftir sér snúru, sem hann teng- ir í heljarstóran hátalara rétt fyr- ir utan. Ég sé að menn skorða sig af og eru viðbúnir hinu ó- missandi: einn — tveir — þrír fram með þeim hætti, að hver og einn ríður sínu hrossi tvo hringi um dómhringinn og sýnir hestinn og kosti hans með ýmsum tilþrif- um, en dómarar standa innan í hringnum og metur hver og einn hestinn og gefur honum einkunn. Áður mun siðurinn hafa verið sá, að dómarar komu saman eft- Samkvæmt þvf sem þulur sagði, er hér um að ræða aígerlega nýtt fyrirkomulag hér á landi. Þetta átti að koma í veg fyrir hugsan- leg ,;hrossakaup“ dómenda í eink unnagjöfum. Glæsilegan sigur í þessari góð- hestasýningu vann Peningur 8 vetra, eigandi Eysfeinn Einars Myndir og texti: Grétar Odds$on — fjórir — fimm — Heyriði til min. En maðurinn við magnarann telur ekki. Hann segir einfald- lega: „Halló, heyriði til mín“. í tvígang. Nú strax fer að koma ið á fólk- ið og eftir því sem stundin nálg- ast fjölgar bílum og hestum. Og að lokum er orðið svo mannmargt að ekki myndi verða öllu meira á venjulegu innanhéraðsmóti. Mótið hefst á þeirri grein, sem ef til vill er dregur að sér mesta athygli almennra mótsgesta: 800 metra stökki, undanúrslitum. 9 hestar keppa um réttinn til að komast i úrslit og fimm fara á- fram. Svo hefst langdregnasti dag skrárliðurinn. Hvorki meira né minna en 18 hestar taka þátt í keppni alhliða gæðinga. Hún fer ir sýningu á hverjum hesti og báru saman bækur sínar, þar til þeir komust að niðurstöðu um heildareinkunn. Nú gaf hver og einn hinna fjögurra dómara hest- unum einkunn að eigin mati. Einkunnirnar allar fjórar voru síð an birtar almenningi á spjöldum framan á dómpallinum, og var spjöldunum raðað í stöðuröð dóm enda. Síðan var reiknuð meðal- einkunn hvers hest út frá þessum stigum. - oq iwv, i' -i son verkstjóri. Hann fékk að laun um farandgrip, borðfána, sem gefinn er til kepprénnar af hesta mannafélaginu. 1 Að þessu loknu voru sýndir klárhestar með töiti, 24 talsins. Sú keppni fór öllu greiðar fram, þar sem aðeins var farinn einn hringur með hestena. Verðlaun sigurvegara, sem ég man ekki lengur nafn á, var fallegur bikar, farandgripur, sem Kaupfélagið Þór á Hellu hefur gefið til keppninn- Komið í mark Reisn og tíguiieiki.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.