Tíminn - 31.07.1968, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 31. júlí 1968.
TiMINN
15
HÖTEL
GAfíDVR
1 m. herb. kr. 300.-
2 m. herb. kr. 400.-
Veitingasalurinn op-
inn alla daga frá
7.00 — 23.30
HÓTEL GARÐUR* HRINGBRAUT* SÍM115918
FISKIRÆKT
Framhald af bls. 1
smágerðari fisk er að ræða.
Þó að Unilever taki nú til
við framleiðslu á þessum sjó
ræktaða regnlbogasilungi í stór
um stíl, hefur það efl’aust lítil
áhrif fyrst um sinn tiér uppi
á íslandi. Við flytjum þó alltaf
töluvert út af laxi, og munum
við. eflaiust fljótlega verða var
ir við breytinguna, hvað þann
útflutning snertir.
Hins vegar er þvi ekki ?ð
neita, að þessar tilraunir og
jákvæð niðurstaða þeirra mun
hafa mikil áhrif hér á landi,
þar sem fiskeldi er ofarlega á
baugi. Mjög virðingarverður til
raunir hafa þegar verið gerðar
hér á landi með sjórækt, og
stendur ein slík yfir í Lárósi á
Snæfellsnesi, en áður höfðu
framikvæmdir verið hafnar í
Búðaósi.
Nú þegar Unilever hefur tek
izt þetta, hlýtur athyglin að
beinast meira en áður að
möguleikum ræktunar á silungi
og laxfiski við líkar aðstæður.
Hér hagar þannig til í fjarðar
botnum, að saman fer nægt
ferskt vatn og aðstaða til bygg
ingar á fyriirstöðum í firðinum
sjálfum, þannig að hægt er að
loka fiskinn imni, eftir að hann
hefur samið sig að sjóblönd-
unni. Tilraunir Unilever sýna,
að fiskurinn dafnar sérstaklega
vel í sjónum, og nær skjótum
og miklum þroska. Við hlrjót-
um líka að geta tileinkað okk
ur notkun lagarbúra i líkingu
við þau, sem Unilever hefur
látið gera, þannig að stunda
mó þessa nýstárlegu en þýð-
ingarmiklu fiskirækt í öllum
fjörðum á íslandi, þar sem
ferskt vatn fellur til sjávar, og
hvar mundi sá fjörður vera,
sem ekki leggur sér til lækjar
sitru?
FORSTJÓRI
Framhald af bls. 16
fossverksmiðjan út í miklar
framkvæmdir og var þá meðal
annars byggt nýtt verksmiðju-
hús og keyptar nýjar, stórvirk-
ar og hraðvirkar vélar Var
þetta gert me'ó það fyrir augum
að verksmiðjan hafði gert hag-
kvæman samning við danskt
teppafyrirtæki um að hún legði
danska fyrirtækinu til ullar-
garn í teppi og var þar um tölu
vert magn að ræða Alaíossverk
smiðjan komst við þessar fram
kvæmdir í töluverða skuld við
Framkvæmdasjóð íslands. Nú
hefur framboð aukizt mjög af
teppagarni á heimsmarkaðnum
og verð þess lækkað að miklum
mun, svo að viðskipti Álafoss
við danska fyrirtækið urðu ekki
arðbær. Þess vegna hefur Ála-
fossverksmiðjan ekki getað
staðið í skilum við Fram-
kvæmdasjóð nú upp á síðkastið.
Framkvæmdasjóður fór því
fram á við forráðamenn Álafoss,
að ráðinn yrði forstjóri til verk-
smiðjunnar samkvæmt tilmælum
sjóðsins um stundarsakir. Vill
sjóðurinn með þessu fylgjast nán-
ar með starfrækslu fyrirtækisins,
þar sem hann hefur mikilla hags-
muna að gæta vegna skulda fyrir-
tækisins við sjóðinn.
Talsmaður Framkvæmdasjóðs-
ins sagði blaðinu í dag, að erfið-
leikar Álafossverksmiðjunnar
væru á margan hátt eðlilegir, iðn-
aðurinn ætti erfitt uppdráttar um
þessar mundir. Hins vegar hefðu
forráðamenn Framkvæmdasjóðs
mikla trú á hespulopa útflutningi
Álafoss til Bandaríkjanna (um
hann er rætt á öðrum stað í blað-
inu) og von þeirra væri sú, að
með þessum arðbæra útflutningi
batni rekstrargrundvöllur verk-
smiðjunnar á næstunni.
Pétur Pétursson er viðskipta-
fræðingur, menntaður frá Banda-
ríkjunum, og hann hefur getið sér
gott orð við uppbyggingu Kísil-
verksmiðjunnar við Mývatn.
JÓN LEIFS
Framhald af bls. 16
Jónsson, bóndi og alþingismaður
og síðar póstmeistari í Reykjavík
og Ragnheiður Bjarnadóttir frá
Reykhólum. Jón stundaði nám við
Menntaskólann í Reykjavík og á
árunum 1916 til 1922 stundaði
hann tónlistarnám í Leipzig. Hann
var búsettur í Þýzkalandi.að meira
eða minna leyti í 30 ár, en annars
í Reykjavík. Jón var stofnandi
Bandalags íslenzkra listamanna,
Tónskáldafélags íslands og Stefs.
Hefur hann verið formaður allra
þessara samtaka og forstjóri Stefs.
Jón var kjörinn forseti Norræna
tónskáldaráðsins 1951 til tveggja
ára og aftur 1964. Jón hefur stjórn
að hljómsveitum víða um Evrópu
og safnað íslenzkum þjóðlögum og
ritað mikið um tónlist. Eftirlif-
andi kona Jóns er Þorbjörg Leifs.
HESTAMÓT
Framhald af bls. 7.
en kom samt annar í mark eftir
mjög harða keppni, aðeins um
hestlengd á eftir Reyk, sem vann
hlaupið.
Þegar þulur kynnti knapa
Reyks, hélt hann fyrst fram þeirri
skoðun að hann héti Sigurbjörn.
Þá var hlegið.
Svo leiðrétti hann sig og hvað
augljóst að ekki myndi knapinn
heita Sigurbjörn. Þá var hlegið.
Svo sagði hann: Knapinn er
dama, — nú eða frú, nema hvoru
tveggja sé og þá hló Kolbrún og
allir aðrir.
Eftir drykklanga stund, kom
sú yfirlýsing um hátalarakerfið,
sem vel á minnst var stórum
betra en maður hefur átt að venj-
ast á útiskemmtunum, að knap-
inn héti Kolbrún Kristjánsdóttir.
Og enn hló Kolbrún og áhoi’fend-
ur.
Enn leið drykklöng stund og
þulurinn tilkynnti loks, að knap-
inn héti Kolbrún Kristjánsdóttir
úr Reykjavík, ,en hún er víst
þekkt hestakona".
Fleira gott sagði maðurinn. T.d.
kalla’ði hann eitt sinn upp, að
þeir sem ætluðu að taka þátt í
unghestasýningunni, ættu að hafa
„hestana klara tafarlaust“
Er ieið að mótsslitum, var
klukkan tarin að halla í 10 um
kvöldið. Það var tæpast myndljóst
lengur.
Eitt vakti sérstaka athygli mína
og samferðafólks míns, það var
prúðmennska áhorfenda og merki-
lega lítið fyllirí. Eiginlega má segja
með tiltólulega góðri samvizku að
ekki hafi sézt vín á nokkrum
manni, fyrr en undir lokin, að
einn strákur tók upp fleyg og
rétti sínum samferðamanni.
Þáttur þulsins í skemmtunum
dagsins er ógleymanlegur þó
kannski hafi ekki verið ætlazt til
þess beinlínis. Hafi hann þökk fyr
ir sitt krydd í tilveru vora á Rang
árbökkum sl. sunnudag og vona
ég lengzt allra orða að hann taki
ekki illa upp, þó að kynningum
hans hafi verið gerð hæfileg skii.
Ég bið lesendur afsökunar á því
hve lítið er um tölulegar stað-
reyndir í þessu skrifi. Hvoru-
tveggja kemur til, að tölulegar
staðreyndir fara ægilega í taug-
arnar á mér og eins hitt, að mað-
ur með þrjár myndavélar í tveim-
ur höndum, á alls ekki gott með
að skrifa slíkt niður hjá sér.
En ályktunarorð mín um þessa
ferð á hestamannamót á Rangár-
bökkum verða tvimælalaust svo-
hljóðandi:
Mót og kappreiðar Hestamanna
félagsins Geysis á Rangárbökkum
hjá Hellu, fór fram með glæsi- og
fyrirmyndarbrag.
Það má nú segja.
Á VlÐAVANGI
Framhald af þls. 5
kerfið leggur á þaun rekstur,
heldur er sama farganið allt
látið standa óbreytt og sama
ráðleysisfálmið og handahófið
ræður ríkjum í opinberum pen
inga- og stjórnsýslustofnunum.
I Þ R Ó T T I R
Framhald af bls 13.
þar sem E1 Cordebes hafði
verið að fást við naut. Lét
þessi keppinautur hans öllum
illum látum fyrir framan naut
ið, sem hreyfði hvorki legg né
lið — oig virtist dauðhrætt.
Með þessu þóttist hann sanna,
að E1 Cardobes mætti aðeins
tömdum nautum.
NIXON
Eramhalri af bls 9.
þegna ekki boðið upp á neitt
sérstakt annað en fyrir
heitið um getu einkaframtaks-
ins til þess að leysa vanda
þeirra í tæka tíð, auk þess
göfuglyndis, að gefa ekki ó-
raunhæf loforð.
Hér er ef til vill við hæfi
að láta Robert Ellsworth, hinn
fáláta, gáfaða fyrrverandi
þingmann frá Kansas, sem
stjórnar aðalskrifstofu Nixons
í Washington. hafa síðasta orð
ið:
„Bandaríska þjóðin er íhalds
söm þjóð“ segir hann. „Hún
girnist að vísu breytingar. en
hún vill ekki leggja í neina ■
áhættu". i
I Mikio 'Jrval Hljömsveita
20 Ara REYIMSLA
I
Ponic og Einár, Ernir,
Astro og Helga. Bendix,
Solo, Sextett Jóns Sig.,
Tríó. Kátir félagar —
Stuðlar. Tönar og A.sa
Mono Stereo Hljóm-
sveit Hauks Ilortens. —
Geislar frá Akureyri
Pétur GuSjónsson.
Umboð Hljómsveiia í
Simi-16786.
Skartgripaþjófarnir
(Marco 7)
Sérstök m'ynd, tekin í East
manlitum og Panavisioion.
Kvikmynda'handrit eftir Dav-
id Osborn.
Aðal-hlutverk:
Gene Barry
Elsa Martinelli
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Bönnuð inna 14 ára.
Sími 50249.
Elsku Jón
sænsk m.ynd með ísl. texta
Jarl Kulle
Sýnd kl. 9.
Slmi 11544
Uppvakningar
(The Plauge Of The Zombies)
Æsispennan'di ensk litmynd
um galdra og hrollvekjandi
afturgöngur.
Diane Clerke
Andre Morell
Bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
Tónabíó
Slm 3118*
Hættuleg sendiför
(Ambuch Bay)
HörtoispennancU ný amerísk
mynd i Utum
Islenzkui textl
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum ínnan 16 ára
IUBMB89
Leyniför til Hong
Kong
Spennandi og viðburðarfk ný
Cinemascope Utmynd með
Stewart Granger
og Rossana Schiaffino.
ísl. texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
Gudjón Stybkársson
hæstaríttaklöcmaðuk
AUSTUKSTKÆTI 6 SÍMl 18354
Mannrán á
Nóbelshtíð
(The Prize)
með Paul Newman
Elke Sommer
Endursýnd kl. 5 og 9
fslenakur fexti
Bönnúð innan 12 ára -
Síðasta sinn.
laugaras
Slmar 32075 09 38150
Ævintýramaðurinn
Eddy Chapman
(The Triple Cross)
íslenzkur textl.
Endursýnd fcL 5 og 9.
Bönnuð börnum tnnan 12 ára.
^ÆJARBÍ
Slm) 50184
Beyzkur ávöxtur
Frábær amerísk verðlaunakvii
mynd með Cannes verðlaunahaf
anum
Ann Bancroft
1 aðalhlutverki,
ísl. texti. Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
1 m i
Firebali 500
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi, ný amerlsk
kappakstursmynd í Utum og
Panavlsion.
Sýnd kl- 5,15 og 9
Bönnuð börnum innan 12 ára.
18936
Dæmdur saklaus
(The Chase).
íslenzkur texti.
■ .
Hörkuspennandi og viðburða-
rík ný amerisk stórmynd •
Panavision og lltum með úrvals
leikurunum
Marlon Brando,
Jane Fonda o. fl.
Sýnd kl. 5 óg 9.
Bönnuð innan 14 ára.