Tíminn - 01.08.1968, Side 3

Tíminn - 01.08.1968, Side 3
i FIMMTUDAGUR 1. ágúst 1968. TIMINN HUNDRAÐ FARASTí ELDGOSI NTB-San Jose, Costa Rira. Á mánudag hófst mikið eld- gos á eyjunni Costa Rica í Kara- bíahafinu. Eldfjallið EI Arenal, sem álitið var iitbrunnið fyrir löngu, byrjaði skyndilega að gjósa og rann glóandi hraun- elfa niður fjallshlíðarnar. Við fjallsræturnar var þorpið Puep- lo Nuevo, en hraunstraumurinn hefur bókstaflega sópað þorp- inu burtu. Yfirvöld í Costa Rica lýstu því yfir í dag, að a. m. k. 100 manns hefðu farizt af völd- um eldgossins, en enn væri saknað fjölmargra. Fjallaþorpið Pueplo Nuevo er í aðeins 170 km. fjarlægð frá San Jose, höfuðborginni á Costa Rica, en ekki er vitað með fullri vissu, hvað margir íbúar voru í þorpinu. Eldfjall- ið E1 Arenala hefur ekki bært á sér í mörg hundruð ár, og héldu flestir að það væri út- brunnið. Á mánudag varð snarp ur jarðskjálfti á þessum slóð- um og við það er talið að einn veggur eldfjallsins félli inn í gíginn og brauzt þá fram gló- andi hraunstraumur. Hraun- straumurinn vall niður hlíðar fjallsins og grófst þorpið Puep- lo Nuevo gersamlega undir hon um. Á leið sinni varð hraun- straumurinn mörgum að bana en sjónarvottar segja, að flestir hafi látið lífið af völdum glóð- heitra vindsveipa, sem fylgdu í kjölfar þriggja mestu spreng- inganna í gosinu. Ár í fjallshlíð inni flæddu yfir bakka sína og smásprænur urðu að ægilegum foröðuip, hraun og aska hylur stórt svæði í námunda við fjall- ið og rís- og baðmullarplantekr ur eyðilögðust í tugatali. Forseti Costa Rica, Jose Joa- quin Trejos Fernandez, sagði í dag, að þegar væri fullvíst, að 100 manns hafi farizt, þar af fjöldi barna. Forsetinn sagði, að ekki væru öll kurl komin til grafar, þar eð enn væri margra saknað. Fernandez forseti hefur kallað heim landbúnaðarráð- herra sinn, Guillermo Yglesias, frá ráðherrafundi í Panama. Þess er vænzt, að forsetinn muni fljúga yfir gossvæðið í dag til þess að kynna sér ástand ið. Matvæli og lyf hafa verið send til svæðanna í kringum E1 Arenal og ástandið þar er sagt betra en áður. Einnig hafa um 4 þúsund heimilislausir þorpsbúar verið fluttir á brott frá svæðinu. Enn rýkur úr eld- fjallinu og koma öðru hvoru úr því smá öskugos, en hraun- straumurinn er hættur að renna. Hinir þrír nýju Leylandvagnar, sem Kópavogur hefur fengið. Nýir Leylandvagnar komnir til Kópavogs Hsím.-miðvikudag. — Strætis- vagnar Kópavo-gs hafa tekið í notk un þrjiá nýja strætisv-agna — hinn síðasti var afhentur í dag — af Leyland-gerð, hina fyrstu, sem aka um götur á íslandi, en Leyland- verksmiðjurnar munu þekktasti framleiðandi á þessu sviði í heim- inum. Bæjarstjórn Kópavogs boð- aði blaðamenn á sinn fund í dag af þessu tilefni og Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Strætisvagna Kópavogs, skýrði frá smíði þess- ara vagna og nýjungum í rekstri fyrirtækisins. Hann sagði m.a.: Þegar ljóst var á s.l. ári, að Strætisvagnar Kópavogs þurftu að endurnýja vagnaikost sinn, vegna setningar 1-aga um hægri umferð, skipaði bæjarráð þriggja mainna nefnd til þess að gera til- lögur um, hvaða tegund og gerð af undirvögnum og yfirbygging- um skyldi kaupa. Nefndin varð sammála um þá tillögu að kaupa undirvagna frá Leyland-verksmiðj unum í Bretlandi, en yfirbygging ar frá Sameinuðu Bílaverksmiðj- unni. Leyland-verksmiðjurnar munu vera stærsti framleiðandinn I heiminum á strætisvögnum. Þær framleiða margar gerðir undir- vagna, en sú tegund sem við tók- um, Royal Tiger Worldmaster, mun vera algengust. Undirvagn- inn vegur 5130 kg., en mesta þyngd með hlassi má vera 16 tonn. Vélin er 11,1 lítra dieselvél, 165 fiestöfl. Gírkassi er hálf sjálf- skiptur, en stjórnað með þrýsti- lofti. Rafall bílsins er 1750 w. Altermator og rafkerfið allt tvö- fallt. Kæliviftan er rafknúin og stjórnast af hitastilli í vélinni. Þá er í vagninum sérstök olíuikynd- ing af Vebastagerð, sem hitar kælivatn vélarinnar þannig, að aldrei þarf að ræsa vélina kalda og heldur síðan sama hitastigi á vatninu og þar með í vagninum, hvernig sem viðrar. Yfirbygginigu vagnann-a teiknaði Þórarinn Gunnarsson, starfsmaður Sameinuðu bílaverksmiðjunnar h.f. og er yfirbyggingin að öllu leyti smiðuð þar. Um leið og þessir nýju vagnar verða teknir í notkun verður reynd smábreyting á afgreiðslu og móttöku fargjalds í vögnunum í þeim tilgangi að flýta afgreiðslu og spara vinnu við talningu skipti myntar. Nýir kassar fyrir fargjald ið, með tveimur hólfum eru við hliðina á vagnstjóranum og er til þess ætlazt, að þeir sem þurfa að telja skiptimynt, eða kaupa kort, gangi inn fremst í dyrunum og setji peningana í fremra hólf- ið, en á meðan hann fær af- greiðslu, geta þeir sem eru með farmiða og eru að jafnaði miklu fleiri, gengið óhindrað inn um dyrnar og sett sinn farmiða í aftara hólfið í kassanu-m. Breyt- ing þessi er aðeins gerð í til- Framhald a ols 15 SVFÍ stofnar umferðardeild Samkvæmt tilmælum dómsmála ráðuneytisins hefur Slysavarnafé- lag íslands tekið að sér umferðar- fræðslu fyrir almenning í fram- haldi af fræðslustarfsemi þeirri, sem Framkvæmdanefnd hægri um- ferðar sá um að framkvæma í samvinnu við ýmsa aðila vegna umferðarbreytingarinnar. Slysavarnafélagið mun ennfrem- ur hafa umsjón með starfi um- ferðaröryggisnefndanna, sem stofn aðar voru víðs vegar um land í vetur og vor. í sambandi við umferðarbreyt- inguna var skipulögð víðtækari fræðsla um umferðarmál en dæmi eru til um nokkurt annað málefni hér á landi. Milljónum króna var varið til áróðurs- og útgáfustarf- semi og talsverður hluti ritaðs Kirkjuklukkur vígðar á Hólahátíð Fréttatilkynning frá Hólafélaginu: Eins og áður hefur verið frá sagt verður Hólahátíðin næst kom andi sunnudag, þ. 4. ágúst, verzlun armannasunnudaginn. Dagskrá há- tíðarinnar verður fjölbreytt að vanda og verður í aðalatriðum sem hér segir: Hátíðin hefst kl. 2 e. h. Þá verð- ur hinum fornu klukkum Hóladóm kirkju samhringt og biskup og prestar ganga í skrxiðgöngu frá skólahúsinu að turni kirkjunnar. Þar verður staðnæmzt Kirkjúmála ráðherra Jóhann Hafátein afhend- ir þar g;iöf íslenzka ríkisins til Hólakirkju, 3 miklar og veglegar kirkjuklukkur, sem settar hafa verið í kirkjuturninn, sem reistur var til minningar um Jón biskup Arason árið 1950. Þá vígir biskup íslands, herra Sigurbjörn Einars- son, hinar nýju klukkur, en síðan verður peim samhringt til messu, og verðui þá gengið í kirkju. Biskup íslands prédikar í mess- unni, kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju syngur, söngstjóri Magnús Magnús son, sr. Ingþór InUriðason á Ölafs- firði og sr. Sigtús J Árnason í Miklabæ þjóna fyrir altari. Eftir messu verður nokkurt hlé og geta menn þá notið þess að skoða Hólastað en öll örnefni verða þar greinilega merkt Einn- ig verða veitingar á boðstólum í sumarhótelinu á Hólum. Að hléi þessu loknu verður sam koma í kirkjunm Þar flytur sr. Kristján Róbertsson á Siglufirði erindi um „kirkjulega vakningu, kirkjulega endurreisn" Ólafur Þ. Jónsson óperusöngvari syngur ein söng við undirleik Ragnars Björns sonar organista. Ragnar leikur einn ig einleik á orgel Hóladómkirkju. Að lokum flytur sr. Jón Kr. ísfeld ritningarorð og bæn. Formaður Hólafélagsms, sr Þórir Stephen- sen á Sauðárkróki mun stjórna samkomunni. Á sama tíma og samkoman verð ur í kirkjunni, verður barnasam- Framhald á bls. 14. máls og mynda er enn í fullu gildi eftir breytinguna. Allt til þessara þáttaskila í um- ferðarmálum íslendinga hafa aldr- ei verið gerðar samræmdar áætl- anir varðandi fræðslu- og upplýs- ingastarfsemi um umferðarmál, hvorki iyrir skóla né almenning. Ymsir aðilar hafa um þessi mál fjallað, hver á sinn hátt, og oft' með drjúgum tilkostnaði gengið þar hver í annars spor Framkvæmdanefnd hægri um- ferðar lýkur störfum um næstu áramót.. í greinargerð fyrir um ferðarbreytingunni og undirbún- ingi hennar beihdi nefndin þeirri tillögu tii dómsmálaráðherra, að reynt yrði að finna grundvöll fyr- ir samræmingu umferðarfræðslu í landinu. bæði þvað snerti skóla og almenning, og lagði fram ákveðnar tillögur þar að lútandi. Dómsmálaráðuneytið hefur svar að þessum tillögum varðandi hinn almenna þátt umferðarfræðslunn- ar á þá iund. að fara þess á leit við Slysavarnafélag íslands, að það taki að sér þennan þátt sérstak- lega og hafi þá einnig umsjón með starfi dmferðaröryggisnefnda þeirra, er stofnaðar voru fyrir H-dag í vor og hafa mikilvægu hlutverki að gegna varðandi svæð isbundnar upplýsingar um umferð armál. Slysavarnafélag íslands hefur fallizt á að taka að sér það.verk- efni, sem hér um ræðir, og stofn- að til þess sérstaka umferðardeild. Guðbjartur Gunnarsson, fyrrum starfsmaður Sjónvarps, hefur ver- ið ráðinn til að veita deild þessari forstöðu. (Fréttatilkynning frá Slysavarnafélagi íslands). Deilan leyst EKH-Reykjavík, miðvikudag. Bílstjóradeildan í Kefla vík leystist í fyrradag. Sam þykkti þá meiriihluti Sérleyf isnefndar að draga til baka uppsagnir tveggja bílstjóra S'érleyfisbifreiða Keflavík- ur, en þær áttu að koma til framkvæmda 1. ágúst. Þann 29. maí s. 1. barst tveimur bifreiðarstjómm hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur bréf, þar sem þeim var s’agt upp með mánaðarfyrirvara, en engin ástæða fékkst gefin fyrir þessarri ráðstöfun. Bílstjórar þessir höfðu haft afskipti af kj'arabaráttu, og var ann ar þeirra formaður Bifreiða- stjórafélagsins Keilis í Keflavík, en hinn hafði starfað í samninganefnd fé lagsins. Urðu miklar deilur vegna uppsagna þessara og mótmæltu allir starfsmenn fyrirtækisins þeim harð- lega. Auk þess setti Bif- reiðastjórafélagið Keilir yflr vinnuibann á fyrirtækið. Hin kröftuga samstaða stéttarfé lagsins og sarastarfsmanna bílstjóranna tveggja mun hafa orðið til þess að Sér leyfisnefndin sá sér ekki annað fœrt en áð draga upp- sagnirnar til baka. Nú hef- ur yfirvinnubanninu verið aflétt og er bílstjóradeilan þar með úr sögunni. Þættir um efnahagsmál Komin er út Dók eftir Magna Guðmundsson hagfræðing, Þættir um efnahagsmái safn ritgerða og erinda, serh höfundur hefur birt í dagblöðum og flutt i útvarp á all- mörgum undanförnum árum. Hafa margoft verið bornar fraip óskir um, að ritgerðir og erindi Magna væru birt í bókarformi, og er Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.