Tíminn - 01.08.1968, Page 15
/
FIMMTUDAGUR 1. ágúst 1968.
TÍMINN
15
HÖTEL
GARDllR
1 m. herb. kr. 300.-
2 m. herb. kr. 400.-
Veitingasalorinn op-
inn alla daga frá
7.00 — 23.30
HÓTEL GARÐUR * HRINGBHAUT* SfMI15918
Auglýsið í Tímanum
LEYLAND-VAGNAR
Framhald af bls. 3.
raunaskyni og verður ekki tekið
hart á því þó að eitthvað beri
útaf.
Þessir vagnar áttu að sjlálfsögðu
að vera tilbúnir fyrir H-daginn,
en margar ástæður voru fyrir því,
að svo gat ekki orðið og skal
ekki um það sakazt.
Strætisvagnar Kópavogs hafa
nú starfað í rúm 11 ár. Stofnun
þeirra var mikið framfaraspor fyr
ir bæjaríélagið. Fyrst voru aðeins
keyptir 3 vagnar en notkun vtagn-
anna fór ört vaxandi fyrstu árin
og um leið þjónusta þeirra við
bæjarbúa. Síðustu árin hefur far-
þegatala vagnanna lítið breytzt,
en á þessu ári er nokkuð veruleg
fækkun á tölu farþega. Rekstur
vagnanna hefur yfirleitt gengið
mjög vel, tekjur oftast nægt fyrir
gjöldum og afskriftum og aldrei
verið um verulegan hal'larekstur
að ræða. Hjá fyrirtækinu vinna
nú 10 vagnstjórar og 12 menn á
verkstæði, en það annast jafn-
framt viðhald á öðrum bílum og
tækjum bæjarins.
Á VlÐAVANGI
Framhald af bls. 5
mega ekki einu sinni hrista
klafann, án þess níssneskir leið
togar telji það sérstaklega sitt
mál. Það er því unnt að taka
undir með Halldóri Laxness er
hann segist samhryggjast þeirri
þjóð, sem á slíka leiðtoga:
„Ég samhryggist vinum mín-
um, Rússum, þessu góðlynda
fólki, sem laungum lifði undir
harðstjórn meiri en flestar þjóð
ir að verða enn einu sinni að ;
sjá hrollvekjandi afturhald end
urvakið í hótun um einskonar
nýtt trúarbragðastríð.“
SUMARHÁTÍÐIN
Framhald af bls. 16.
degi verzlunarmanna, verður
svo dansleikur í V’alaskjálf á
Egilsstöðum og hefst klukkan
tíu. Hljómsveit Magnúsar Ingi
marssonar leikur og syngur fyr
ir dansi..
Algjört áfengisbann verður
a samkomunni í Atlavík, og
verður gengið ríkt eftir því að
þvi verði framfylgt. Frá þvi
1965 hafa sumarhátíðir Fram-
sóknarmanna í Atlavík verið
áfengislausar, og hafa þessar
^samkomur verið til mikillar
fyrdimyndar.
JÓNAS OG . . . .
Framhald af 8. síðu.
samanburðinum var sömu tegund-
ar og hjá Bólu-Hjálmari, er hann
orti um sína „öldnu móður“ —
ættjörðina — 1851. Þessi sársauki
var hreyfiaflið í iífi Jónasar — og
er raunar skýringin á honum,
þessum næma, gáfaða og hugum-
stóra syni íslands. Hann sá svo
margt, sem aðrir sáu ekki, — af
því, sem gera þurfti og mátti. —
Hans háa sjónarhæð gaf honum
slíka yfirsýn, að hann varð að lok-
um að standa einn, þegar jafnvel
nánustu samþerjar hættu að geta
trúað á leiðsögn hans. — Nýr
sársauki, _en hann var köllun sinni
— fyrir ísland — trúr. Til hinztu
stundar hélt hann áfram að leitast
við að vekja og hvetja samferða-
menn sína. „Það vantar djarfa og
framsýna forystu um sæmd og
metnað . . . “ á öllum sviðum ís-
lenzks þjóðlífs — nú og ætíð.
Dirfska og framsýni, sæmd og
metnaður — fyrir ísland og allt
það sem íslenzkt er. — Það voru
einkenni hans, er við kveðjum í
dag.
25. maí s. 1. var þess minnzt,
að 100 ár voru liðin frá fæðingu
séra Friðriks Friðrikssonar leið-
toga KFUM og K. Á mestu há-
tíðarstund lífsins, er Jónas gekk
að eiga Guðrúnu Stefánsdóttur, þá
gengu þau saman á fund séra Frið-
riks, sem gaf þau saman og bless-
aði þau í lítilli kapellu í húsi
KFUM. Langt og farsælt hjóna-
band Jónasar og Guðrúnar var sönn
fyrirmynd. Ég veit, að hugur Jón-
asar til séra Friðriks var ætíð
hlýr og „drengir séra Friðriks“
voru í sérstöku uppáhaþli hjá hon-
um. Hann bar mikið traust til
þeiría.
Ég tel það til mikilla forrétt-
inda, að hafa ungur eignazt vin-
áttu þessara tveggja .Vormanna ís?
lands og að fá síðan lengi að verða
þeim samferða, mótast af þeim og
læra af þeini. Norðanmenn voru
þeir báðir, ólíkir um margt, en
áttu báðir víðfeðmar eldsálir. —
Að virða fyrir sér líf þeirra og
starf, að minnast þeirra, er slík
gleði og uppörfun, að eitthvað gott
hlýtur óhjákvæmilega af að leiða
hjá þeim, sem það gera.
Við Jónas kvöddumst við dyr
Hallgrímskirkju á hádegi 12. júlí
s. 1. Kveðjustundin var þrungin
sterkum áhrifum sumarfegurðar-
innar, sem við höfðum saman not-
ið með góðum vinum uppi í kirkju
turninum. Þar uppi sá ég að hann
horfði enn hærra og lengra en við
hin, þangað sem séra Friðrik trú-
lega benti:
„Fram á lýsandi leið,- skal þér
litið í trú, þar sem Ijómandi tak-
mark þér skín“
Að lokum: „Farðu vel, bróðir,
vinur“ og fyrirgefðu getuleysi mitt
til að búa kveðju mína í verðugan
búning. Ég bað þig eitt sinn láta
mér efittr „pennann" þinn, er þú
legðir hann frá þér að lokum. En
það var ekki svo auðvelt að koma
því í krmg. Þess vegna verður
þetta að nægja nú, en ég veit, að
þú skilur og virðir til betri vegar.
Fjölskyldu Jónasar sendi ég í
dag hlýjar og hugheilar kveðjur.
Reykjavík, 26. júlí 1968.
Hermann Þorsteinsson.
VARNARBANDALAG
Framhald af bls- 9.
námunda við Gíbraltar. Þetta
torveldar mjög lendingu flttg-
véla á flugvellinum þar.
Bandaríkjamenn hafa ávallt
tekið þá afstöðu í þessari deilu,
að þar væri um að ræða ósam-
komulag tveggja vina — og
bandalagsþjóða, sem ekki væri
ástæða til að skipta sér af.
ÞEGAR Spánverjar mót-
mæltu heimsókn sjötta flota
Bandaríkjamanna til Gíbraltar
létu þeir fylgja aðvörun um,
að höfnum Spánverja við Mið-
jarðarhaf yrði ef til vill lokað
fyrir bandarískum herskipum
ef „móðgunin" yrði endurtek-
in. í desember í vetur kom
bandarískt flúgvélamóðurskip
til Gíbraltar, ásamt tundur-
spilli, búnum eldflaugum, og
sjö öðrum tundurspillum, en
þessi heimsókn olli engum æs-
ingum á Spáni, svo furðulegt
sem það kann að virðast.
Englendingar hafa hins veg-
ar vakið athygli Bandaríkja-
manna á því, að sumar spönsku
orrustuflugvélanna, sem annast
eftirlit með aðflutningsleiðun-
um að Gíbraltar, hafi bæki-
stöðvar á flugvöllum, sem
Bandaríkjamenn og Spánverj-
ar noti sameiginlega. Brezkir
embættismenn láta þess getið
með nokkrum kulda, að veru-
lega ámælisvert sé, að sam-
eiginlegar stöðvar skuli notað-
ar til þess að vaida bandaþjóð
Bandaríkjamanna óþægindum
og áreitni.
BANDARÍKJAMENN hafa
gert þrjár stórar flugbæki-
stöðvar á Spáni, hina miklu
flotahöfn við Rota, lagt olíu-
og benzín-leiðslurnar milli
stöðvanna og reist hið umfangs
mikla radarkeríi, ásamt ýms-
um smærri mannvirkjum, og
kostnaðarverðið var samtals
um 400 mil'ljónir diollara.
Bækistöð flughersins við
Zaragoza er nú aðeins notuð
til viðhalds og sem varastöð.
Hernaðarútgjöld Bandaríkja-
manna á Spáni nema um 45
milljónum dollara á ári. Flota-
höfnin við Rota er einnig notuð
sem bækistöð Pólaris-kafbáta.
Hversu jnikilvæ^ar jeru, þá
þessar . spönsku bækistöðvár?
Bandarískir embættismenn
segja þær „nytsamar, en ekki
lífsnauðsyn!egar“. Þeir segja
þetta einnig eiga við um flota-
stöðina við Rota.
FERNANDO Oastiella, utan-
ríkisráðherra Spánar, fór í
desember í vetur til Parísar og
ræddi einslega við de Gaulle
í 50 mínútur. Að þeirri heim-
sókn lokinni var á kreiki sá
orðrómur, — sem ekki var and
mælt opinberlega, né heldur
staðfestur, — að Frakkar ætl-
uðu að bæta Spánverjum það
<upp, ef hið spánsk-bandaríska
bandalag færi út um þúfur.
Menendes Tolosa, hermála-
ráðherra Francos, viðhafði
þessi furðulegu ummæli fyrir
skömmu:
„Hlutverk Spánar í vörnum
hins vestræna heims takmarlc-
ast af því, sem ríkisstjórn
landsins ákveður, enda er stað
reynd, að yið erum hvorugum
aðilanum tengdir". .
IMik:3Úrval Hljömsveita
2QAha reynsla
L
Ponic og Einar, Ernir,.
Astro og Helga. Bendix.
Solo. Sextett Jöns Sig.,
Tríó. Kátir félagar —
Stuðlar. Tónar og Asa
Mono Stereo Hljóm-
sveit Hauks Yortens. —
Geislar frá Akureyri
Pétur Guðjónsson.
I Umbqð Hljómsveíto
Siivii-16786.
I
Skartgripaþjófarnir
(Marco 7)
Sérstök nvynd, -tekin i East
manlitum og Panavisioion.
Kvikmyndahandrit eftir Dav-
id Osborn.
Aðalhlutverk:
Gene Ban-y
Elsa Martinelii
fslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð inna 14 ára.
Sími 50249.
Elsku Jón
sænsk mynd með ísl. texta
Jarl Kulle
Sýnd kl. 9.
Slm' 11544
Uppvakningar
(The Plauge Of The Zombies)
Æsispennandi ensk litmynd
um galdra og hrollvekjandi
afturgöngur.
Diane Clerke
Andre Morell
Bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lokað vegna sumarleyfa.
T ónabíó
Slm 31182
íslenzkur texti.
Sjö hetjur koma
aftur
(Retum of the Seven)
Hörkuspennandi, ný, amerisk
mynd í litum.
Yul Brynner.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
Leyniför til Hong
Kong
Spennandi og viðburðarík ný
Cinemascope litmynd með
Stewart Granger
og Rossana Schiaffino.
ísl. texti
Bönnuð ínnan 16 ára.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
<\us[lýsið í íímanum
Mannrán á
Nóbelshtíð
(The Prize)
með Paul Newman
Elke Sommer
Endursýnd kl. 5 og 9
íslenzkur texti
Bönnuð innan 12 ára
Síðasta sinn.
LAUGARAS
Simai 32075. og 38150
Ævintýramaðurinn
Eddy Chapman
(The Triple Cross)
Islenzkur texti,
Endursýnd kL 5 og 9.
Bönnuð bömum innaa 12 ára.
mmw
Slmi 50184
Beyzkur ávöxtur
Fráhær amerísk verðlaunakvik
mynd með Cannes verðlaunahaf
anum
Ann Bancroft
i aðalhlutverki.
ísl. texti. Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
mm
41985
Fireball 500
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi, ný amerísk
kappakstursmynd i litum og
Panavision.
Sýnd ki- 5,15 og 9
Bönnuð börnum innan 12 ára.
18936
Dæmdur saklaus
(The Chase).
íslenzkur texti.
Hörkuspennandi og viðburða-
rík ný amerisk stórmynd I
Panavision og litum með úrvals
leikurunum
Marlon Brando,
Jane Fonda o- fl.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 áia.