Tíminn - 09.08.1968, Qupperneq 13

Tíminn - 09.08.1968, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 9. ágúst 1968. EjnGH TÍMINN ÍÞRÓTTIR Urslit kunn í 2. Islandsmótsins í og 3. deití knattspyrnu klp-Reykjavík. Keppni í 2. og 3. deild íslands- mótsins er nú íokið að mestu, og vitað er hvaða lið það eru, sem sigrað hafa í sínum riðlum, nema c-riðli 3. deildar (Austfjarðariðill- ínn) en þar er kærumál. Þróttur frá Neskaupstað er efst i þeim riðli með 6 |stig, en Leiknir frá Fáskrúðsfirði kærði leik sinn við Hrafnkel Freysgoða frá Breiðdals- vík og á eftir að dæma í því máli. Vinni Leiknir kæruna, eru þeir einnig með 6 stig og þurfa því að leika úrslitaleik við Þrótt. Næsta ár verður liðunum í 1. deild fjölgað í 7 og 1970 í 8 lið, en þannig á 1. deildin að vera í náinni framtíð. Tvö lið falla þá á hverju ári og tvö koma upp úr annarri deild í þá fyrstu. Sanrn fyrirkomulag verður á 2. deild. í ár leikur neðsta liðið í 1. deild við sigurvegarana úr báð- um riðlum 2. deildar, Akranes og Hauka, og fara 2 lið upp af þeim. Neðstu liðin í 2. deild, Víkingur og að öllum líkindum ísafjöfður, en þeir eiga 1 leik eftir við Akra- nes, leika síðan til úrslita við lið- in 3, sem sigruðu í sínum riðlum í .3. deild, þ. e. a. s. Þrótt, Nes- kaupstað, eða Leiknir, Völsunga frá Húsavík og HSH frá Snæfells- nesi. Hreinn Elliðason, sem nú leikur með Akranesi, er markahæstur landsmanna til þessa og á mögu- Hreinn Elliðason markahæsti knattspyrnumaðurinn, á leika á að bæta yið sín 11 mörk í leiknum við ÍBÍ, sem fram fer á sunnudaginn kemur. Þrir af markahæstu leikmönnun um í 1., 2. og 3. deild í ár eru allir fyrrverandi leikmenn úr Fram, Hreinn Elliðason, Erlingur Kristjánsson, sem lék lengi með 1. deildar liði Fram í handknatt- leik, og Gísli Guðmundsson, Hrönn Reykjavik, sem lék í yngri flokk- um Fram. Hér á eftir fer staðan og marka hæstu menn í öllum deildum eins og hún er í dag: 1. deild KR ÍBA Fram Valur ÍBV ÍBK Markahæstu menn: Kári Árnason, ÍBA 8 Helgi Númason. Fram 7 Hermann Gunnarsson, Val 6 Reynir Jónsson. Val 6 Ólafur Lárusson, KR 5 Gunnar Felixson, KR 4 Sævar Tryggvason, ÍBV 3 Þórólfur Beck, KR 3 Staðan í deildunum er þannig: 7421 20:11 10 7 3 4 0 12: 5 10 7 3 3 1 13:10 9 7 2 3 2 13:11 7 7 2 0 5 11:19 4 7 0 2 5 3:16 2 2. deild Haukar FH Þróttur Víkingur a-riðiil: 6 4 11 14:10 9 6 14 1 13:11 6 6 2 13 10:14 5 6 1 2 3 8:10 4 Markahæstu menn: Jóhann Lar- sen, Haukum, 6 Örn Hallsteins- son, FH, 6, Helgi Þorvaldsson, Þrótti, 5, Hafliði Pétursson, Vík.. 5, Geir Hallsteinsson, FH, 3, Gunn- ar Gunnarsson, Vík. 2, Viðar Símonarson, Haukum, 2, Herbert Kristinsson, Haukum, 2, Helgi Ragnarsson, FH, 2, Steingrímur Hálfdánarson, Haukum, 2. 2. deild — b-riðill: Akranes 5 5 0 0 25: 5 10 Breiðablik 6 2 1 3 8:20 5 Selfoss 6 12 3 11:14 4 ísafjörður 5 113 5:10 3 Markahæstu menn: Hreinn Elliða son, Akranes, 11 Matthías Hall- grímsson, Akranesi, 6, Bjarni Lár usson Akranesi, 4, Sigurður Eiríks son, Self., 4, Guðjón Guðmundss., Akranesi, 4, Guðmundur Þórðar- son, Breiðabliki, 4, Þorvarður Hjaltason, Self.. 3, Hermann Níls- son, ísafirði, 3. 3. deild — a-riðill: HSH, Snæf. 6 6 0 0 23:10 12 Víðir, Sandg. 6 3 0 3 17:13 6 I Njarðvík 6 2 0 4 13:18 4 Umf. Hrönn, R. 6 1 0 5 17:29 2 Markahæstu menn: Gísli Guð- mundsson, Hrönn, 8, Erlingur Kristjánsson, HSH, 8, Gylfi Þor- steinsson, Víði, 6 Sigurður R. Elías son, HSH, 6, Hörður Jóhannsson, Víði, 6, Jóhann Jakobsson, Hrönn, 4, Sigurður Ingvarsson, Víði, 4, Hilmar Hafsteinsson, Njarðvík, 4, Egill Ross, HSH, 3, Einar B. Jóns- son, Njarðvik, 3. 3. deild — b-riðill: Völsungar, Húsav. 4 3 0 1 11: 6 6 Siglufjörður 3 1 0 2 5: 5 2 Reynir, Sandg. 3 1 0 2 2: 7 2 Stefnir, Súgandafirði hætti keppni. Matkahæstu menn: Sigþór Sigur jónsson, Völsungum, 5, Sverrir Pálsson, Völsungum, 2, Guðmund- ur Skarphéðinsson, Siglufirði, 2, Eiður Guðjónsso-n, Völsungum, 2.. 3. deild — . c-riðill: Þróttur, Nesk. 4 3 0 1 7:3 6 Austri, Eskif. 4 2 11 5:3 5 Leiknir, Fáskr. 4 2 0 2 8:7 4 Spyrnir, Héraði 4 112 5:9 3 Hrafnkell Freysg.. Breiðdalsvík 4 10 3 4:7 2 Stöðfirðingar og-Huginn á Seyðis- firði hættu keppni í Austfjarða- riðlinum. Markahæstu menn: Guðmundur Hallgrímsson, Leikni, 4, Hörður Þorbergsson, Þrotti, 2, Ijráinn Rós- mundsson, Austra. 2, Stefán Stef- ánsson, Þrótti, 2. Hreinn Elliðason Hvenær ætlum við að velja „knattspyrnumann ársins?" Flestar knattspyrnuþj. Evrópu hafa valið sinn bezta knattspyrnumann KLP-Reykjavik. „Knattspyrnumaður ársins“ er viðurkenning, sem allar knatt- spymuþjóðir heims, nema ísland, veita sínum bezta knattspyrnu- Eusebío knattspyrnumaður ársins í Portugal. manni, að undangenginni atkvæða greiðslu, sem látin er fara fram í lok hvers leiktímabils. Það, sem aðallega er tekið til- lit til, er geta leikmannsins yfir keppnistímabilið í heild, ásamt al- mennum vinsældum, framkomu hans utan vallar sem innan, og margt ann»ð. Margar þjóðir hafa þegar kosið „Knattspyrnumamn ársins 1968“ en val rússnesiku verð launanefndarinnar hefur komið mest á ó\'art utan Rússlands. — í Rússlandi eru verðlaunin talin hafa fallið í skaut þess manns, sem átt hafi þau fyllilega skilið. Þessi maður sem fékk verðlaunin nú í fyrsta sinm, er hinn frábæri framherji Dynamo Moskva, og landsliðsins, Streltzov. Hann var þegar á árunum kringum 1960 einn bezti knattspyrnumaður Rúss lands og Evrópu, en gæfam var honum ekki hliðholl. Árið 1963 var hann dæmdur til ævilamgrar þrælkunarvinnu í Rússlandi fyrir nauðgunartilraun, en hann hafði oft áður lent í vandræðum, og átti oft í útistöðum við lögin, vegma ölvunar við akstur, ölvun ar á almanmafæri, rúðubrota og slagsmála á veitingahúsum, sem hann stundaði vel á þessum gull- árum sfnum. Knattspyrnusamiband ið og Dynamo Moskva létu sem ekkert væri þrátt fyrir margitrek- uð brot hans, en út úr síðustu vamdræðum gátu þeir ekki hjálp- að honum. Æðsti dómstóll Ráð- stjórrarrikjanna dæmdi Streltzov svo til ævilangrar þrælkumarvimnu og sagði svo í dómsorði, að hann hefði verið átrúnaðargoð milljóna ungmenna um gjörvöll Ráðstjórn arríkin, og því væri brot hans og dómur til viðvörunar þeim þús- undum ungmenna sem hugðust feta í fótspor hans í íþróttaheim- inum. En Streltzov var aðeims 3 ár í þrælkunarvinnunni, þá var honum sleppt, vegna góðrar hegð unar. Hann hóf þegar æfingar með Dynamo Moskva, og brátt var hann kominm i A-lið félagsins og síðan lá leiðin enn á ný í rússneska landsliðið. Á síðasta ári lék hann með því alla leikina, og var annar markahæsti leikmað ur Evrópu í landsleikjum á því ári. Streltzov er nú allt amnar maður en fyrir dóminn þunga; — árin þrjú hafa breytt honum úr hrokafullu ungmenni í karl- mann, sem allir dá, bæði utan vallar sem innan. í öðrum löndum hafa þegar ver ið valdir knattspyrnumeinm ársins, og er okkur kunnugt um þessa: George Best var kosinn knatt- spyrnumaður ársins í Englandi, af íþróttafréttariturum þar, en þeir einir velja í þvi landi. Best er ekki aðeins vinsæll hjá þeim, heldur er hann átrúmaðargoð þús umda ungmenna, um gjörvallt Bret land, og þó víða væri leitað. Á ftalíu var Lugí Ríva kosnnn bezti knattspyrnumaðurinn, en- hann leikur með Caglíari. Hann var eimnig kosinn íþróttamaður frsins 1967. f Frakklandi var fyrir valimu fyrirliði St. Etienne og franska landsliðsins, Bernard Bosquir. fvíca Osim, sem leikur bakvörð með Zelejnik^r frá Júgóslavíu, var kosinn bezti knattspyrnumað- urinn þar. í Svíþjóð var vinstri útherji Malmö FF, Ingvar Svahn, fyrir valinu, og hlaut „Gull-knöttimn , eins og verðlaunin eru kölluð hjá þessum frændum okkar. í Belgíu eru verðlaunin kölluð „Gull-skórinn“, ' og fékk þau að þessu sinni hinn 33 ára gamli markvörður Briiges, Fernand Boone. í Portúgal var Esubio valinn í þriðja sinn í röð. Fleiri þjóðir hafa valið sinn bezta knattspyrnumann, en okkur hefur ekki tekizt að fá fleiri nöfn til þessa. Hér hjá okkur eru engin slík verðlaun veitt, og erum við eina landið í Evrópu, sem ekki velur sinn bezta knattspyrnumamn. Hjá öðrum þjóðum er valimn íþrótta- Framhald á 12. síðu. Streltzov knattspyrnumaSur ársins í Rússlandi,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.