Tíminn - 10.08.1968, Side 1

Tíminn - 10.08.1968, Side 1
Svetlana Íjjltifiá ms. 166. tbl. — Laugardagur 10. ágúst 1968. — 52.árg. Landbúnaðar- sýningin: Fjölmenni 1. daginn Hafrún kastaði á síldartorfu út af ísafjarðardjúpi: EN MARGLITTA FYLLTI OG SPRENGDI NÓTINA OÓ-Reykjavík, föstudag. Mjög góð aðsókn var að landbúnaðansýn ingu n ni í dag, en hún var opnuð al- menningi kl. 5. Þá þegar komu fjöldi sýningargesta og eftir því sem á kvöldið leið fjölgaði þeim. Var á gestum að heyra, að þeim þætti sýningin bæði fróðleg og skemmtileg og kom þeim yfirleitt á óvart hve fjölbreytt hún er. Landbúnaðarsýningin 68 var opnuð kl. 14 að við- stöddum 500 boðsgestum, sem gengu um sýningar- svæðið að lokinni setningar athöfn, og skoðuðu það sem þar er að sjá. Áður en lokað var kl. 22 höfðu 1200 gestir komið á sýninguna. Daglega meðan sýningin stendur yfir fara fram sér- stök kynningaratriði. Fastir liðir alla daga eru þessir. Kl. 13 vélkynning. Kl. 14 sýnikennsla á áihorfendapöll um. Kl. 16 kvikmyndasýn- ing. Kl. 17 sýnikemnsla á áhorfendapöllum. Kl. 20 er enn sýnikennsla og á sama tíma hefst einnig kvikmynda sýning í kvikmyndasalnum og milli kl. 20 og 22 vinna konur í Heimilisiðnaðarfé- lagimiu að tóvinnu. Framihald á bis. 14 Svetlana kveikti í sovézka vegabréfinu NTB-New York, föstudagur. í 15.000 orða bréfi sem' birt var í heimsblaðinu New York Tim- es í dag segir Svetlana, dóttir rússneska einræðisherrans Josef Stalins, að hún muni aldrei snúa aftur til Sovétríkjanna, og hún hafi brennt hinu rússneska vegabréfi sínu. Hún lýsti því einnig yfir í bréfinu, að hún hlakkaði til þess að verða amerískur ríkis borgari. Blaðið bætti við að Svetiana hygðist sækja um full borgararéttindi að loknum hin um 5 ára nauðsynlega dvalar- tíma í Ameríku. Þó bréfið birtist ekki opin- berlega fyrr en nú, mun Svet- lana hafa skrifað það á heim- ili sínu í Princeton í maí s.l. í bréfinu kemur fram að hún hyggst taka sér fyrir hendur að ferðast umhverfis hnöttinn á næstunni. Bréfið er stílað til rússneskrar konu, sem býr í París. Bréf Svetlönu hafði áður verið birt í rússnesku „útlegðartímariti", rómversk- kaþólsku blaði í París, og í rússnesku blaði sem gefið er út í New York. En það er fyrst nú að það kemst i heims pressuna. Svetlana mun hafa beðið um að vakin yrði athygli á þessu bréfi og það skoðað sem svar við grein, sem birtist í hinu hægri sinnaða Parísarblaði „Aurore“. Þar var því haldið fram, að Svetlana væri ein- mana og viidi ekkert fremur en flytjast aftur til Rússlands. „Ég er ekki kvalin af ein- manakennd og ég mun aldrel fara aftur til Rússlands", skrif ar Svetlana. Síðar í bréfinu segir: „Síðastliðið sumar, þeg- ar Moskva byrjaði að gera árás ir á mig, kastaði ég rússneska Framhald á bls. 15. GS-ísafirði, föstudag. í gær lóðaði Hafrún frá Bol- ungavík á síldartorfur út af ísafjarðardjúpi, og kastaði á torfuna. Nótin sprakk hins vegar í kastinu vegna þess hve mikið af marglittu kom í hana, og fór Hafrún jiví inn til Bolungavíkur. Benedikt skipstjóri á Hafrúnu sagði að þarna hefði lóðað á góð- ar torfur, og befði virzt svo sem töluverð síld væri þarna í sjón- um. Til marks um það má líka geta þéss, að menn sem hafa ver- ið á handfæraveiðum á sömu slóð um og Hafrún lóðaði á síldina, hafa meira að segja fengið síld á færi, svo eitfihvað hlýtur að vera • af henni í sjónum. Höfgrungur II frá Akranesi var þarna á miðunum í síldarleit, en ekki hafði hann fengið neina síld er síðast fréttist. Er fi éttin um síldarlóðninguna barst til ísafjarðar, höfðu menn við orð, a5 það væri nú betur ef síldin færi að veiðast þarna, en ekki þyrfti að sækja hana margra sólarhringa siglingu norður í haf. Þótt hrafnar séu ekki taldir til búpenings eSa atifugla eru tveir slíkir á landbúnaðarsýningunni f Laugardal og vekja óskipta athygli sýningargesta, einkum þeirra yngri. Eru hrafn- arnir tamdir og ófeimnir viS að grípa í gogginn hvaS eina sem aS þeim er rétt. f fjósinu á sýningunni eru eingöngu margverSlaunaSar kýr og kynbótanaut os dvelst sveitafólki lengur f þessu húsi en annars staSar á sýningunni. Skartklædda húsfreyjan á myndinni iét ekki fínheitin aftra sér frá aS ganga milli kúnna og þukla þær og virSa fyrir sér með kunnáttusam- legu augnaráSi. (Tímamyndir: GE) \

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.