Tíminn - 16.08.1968, Síða 1

Tíminn - 16.08.1968, Síða 1
V Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 Auglýsing i Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 171. tbl. — Föstudagur 16. ágúst 1968. — 52. árg. Vinstrivilla EKH-Eeykjavík, fimmtudag Um hádegisbilið í dag rákust tveir gríðarstórir malarflutningabflar saman rétt við beygju á Lágafells klifi í Mosfellssveit. Báðir bflarnir voru á þungu skriði og varð áreksturinn mjög harður, en meinleg „vinstri villa“ mun hafa ver ið orsök hans. Þegar ökumaður Scania Vabis bifreiðarinnar R-412 var á leið um Mosfellssveit neðan við Lágafell um há- degisbilið í dag, sá hann allt í einu til sarns konar bifreið ar X-1402, þar sem hún kom í ljós framundan hæð F'ramhalö á bis 11 FYRSTA AÐGERÐ MEÐ GERVINÝRA Á LAND- SPfTALANUM I GÆR ÉJ-Reykjavík, fimmtudag. ★ I dag fór fram á lyflækninga- deild Landsspííalans fyrsta að- gerð með gervinýra hérlendis, en aðgerð þessi er í því fólgin, að hreinsa úr bloðinu úrgangsefni, sem myndazt hafa vegna alvar- legs nýrnasjúkdóms. Hver ein- stök gervinýrameðferð stendur yf- ir í um það bii sjö klukkustundir. ★ Gervinýrað er fengið frá sjúkrahúsinu í Lundi ásamt til- heyrandi útbúnaði, en einnig hef- ur Landsspítalinn fengið hingað Þór Halldórsson. íslenzkan lækni, sem starfar 1 Lundt, og mun hann vera við Landsspítalann í tvo mánuði til að byrja með. ★ Tveir sjúklingar sem ekki fengu áframhaldandi aðgerð með gervinýra erlendis, ganga nú und- ir þessa meðferð á Landsspítal- anum, og mun hvor sjúklingur ganga undir sjö klukkustunda meðferð tvisvai í viku, en þeir dvelja neima hjá sér á milli að- gerða. Frá þessu er skýrt í fréttatil- kynningu, er biaðinu barst í kvöld Eins og mynd þessi sýnir greinilega, fór önnur vörubifreiðanna næstum út af veginum vinstra megin — en átti auðvitað að vera hægra meginn á veginum. (Tímamynd — SH) frá skrifstofu ríkisspítalanna. Seg- ir þar m.a : „Aðdragandi þessarar þjónustu Landsspítalans er heimkoma' tveggja nýrnasjúklinga, sem und- anfarið hafa dvalið á Hammerj smith sjúkrahúsmu í London, og fengið þar hliðstæða meðferð. Þegar þessir tvem sjúklingar voru sendir til sjúkrahússins í Lond- on, var þess vænzt, að þeir myndu fá áframhaldand: meðferð í Lond on eða á Norðurlöndum. Vegna mjög takmarkaðs sjúkrarýmis fyr ir þessa þjónustu og fjölda nýrna sjúklinga í þessum löndum, reynd ist ekki möguiegt að fá áfram- haldandi hjálp i þessu efni. Gervinýra frá Lundi. Þegar svo var komið máli, var óhjákvæmilegt að bregðast skjótt við og reyna að koma upp þess- ari þjónustu hér á landi. Yfir- læknir lyflækumgadeildar Land- spítalans, prófessor Sigurður Sam úelsson, sneri sér þá til eins af frumkvöðlum gervinýrameðferðar í heiminum, prófessors Nils Al- wall, við nýrnadeildina í Háskóla- sjúkrahúsinu í Lundi. Prófessor Alwall brást vel og drengilega við bessari beiðni, og gaí þau ráð, ej Landspítalinn fengi að láni frá sjúkiahúsinu í Luudi gervinýra ásamt tilheyrandi bún- aði, ennfremui aðstoð íslenzks læknis, Þórs Halldórssonar, eins tæknifræðings og sérmenntaðrar hjúkrunarkonu. Þór Halldórsson hefur starfað hiá prófessor Alwall í Lundi síðástliðið eitt og hálfc ár. Til að byrja með er gert ráð fyrir að Þór Kalldórsson verði hér í tvo mánuði og er á meðan Framhald á bls. 11. Oðrum grískum embættis monnum sýnd NTB-Aþenu, fimmtudag. Gríska öryggislögreglan lagði hald á enn fleiri menn í Aþenu í dag, auk þess sem rannsókn- um og yfirheyrslum vegna hins misheppnaða morðtilræðis við Papadopoulos s.l. þriðjudag. Af opinberri hálfu er fullyrt að aðeins hafi um 20 menn verið handteknir en orðrómur er uppi í Aþenu um að fimm falda megi þessa tölu. Við yfir heyrslur í gær kom í Ijós að tilræðismaðurinn var ekki George Panagoulis, heldur bróð ir hans, Alexandros og leitar nú gríska Iögreglan ákaft að George, fyrrverandi liðþjálfa í gríska hemum. Gríski stjórn- málamaðurinn, Andreas Papan dreau, sem nú dvelst í útlegð í Svíþjóð, sendi ýmsum al- þjóða mannúðar- og friðarstofn unum skeyti, þar sem hann full- yrti að Alexandros Panagoulis liefði sætt hinurn hroðalegustu pyntingum. Talið er að fleiri sprengingar hafi átt sér stað í Aþenu undanfarna tvo daga og fleiri embættismönnum ver- ið sýnd banatilræði, en gríska stjórnin gerir allt til þess að eyða þessum orðrómi. Þó ekki sé langt um liðið síðan morðtilraunin var gerð hefur öryggislögreglan þegar handtekið tíu þekkta blaða- menn, fyrrverandi foringja í gríska hernum og ýmsa emb- ættismenn, og bíða þeir þess ailir að verða fluttir til fang- elsisvistar út á smáeyjar í Eyjahafinu. Góðar heimildir í Aþenu herma að meðal þeirra handteknu séu George Nyonas sem var menntamálaráðfherra í stjórn Papandreous, og Gerassimos Vassiiatos, fyrrver andi forseti neðri deildar gríska þingsins. Gríska lögreglan óttast nýj- ar morðtilraunir og bústaður forsætisráðherrans er nú undir ströngu eftirliti allan sólar- hringinn. Allar víkur og vogar og hver höfn á Attila-skagan- um hafa verið þrælkembdar af lögreglumönnum í lcit að hrað bátnum, sem Panaeouiis mun hafa ætlað að flýja i, en bát- urinn siapp sem kunnugt er úr greipum lögregiunnar. Þeim handteknu er öllum gefið að sök að þeir hafi tekið Framhaíd á bls. 10.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.