Tíminn - 27.08.1968, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.08.1968, Blaðsíða 7
ÞftfÐJUBAGUR 27. ágóst 1968. TIMINN REYKVIKINGAR OG SAUDFED í sumar hefur verið ritað mik- ið í dagfalöH hér í borg um sauð hald. Flest hafa þessi skrif ein- kennzt af andúð á sauðfjárhaldi borgarbúa og jafnvel hefur skeyt um veriP beint að fjáreigendum á miður vtðeigandi hátt. í mörgum tilvikum hefur verið rætt og ritað af meira kappi en forsjá, og hafa borgaryfirvöldin átt drjúgan þátt í að breiða út nokkurs konar æsi- fregnir, sem tíðum hafa verið í ætt við óheiðarlegan áróður. Það teynist ekki þeim, er nokkuð þekkja til þessara mála að leikinn 'haifi verið ljótur leikur af hálfu ráðamanna borgarinnar, í því skyni að vinna að útrýmingu sauð fjár. Bi-rth- hafa verið úrdrættir úr álitsgerðum varðandi sauðfjár hald í borgarlandinu, og er það þeim flestum sameiginlegt að vera samdar af mönnum, sem annað hvort eru haldnir kynlegu ofstæki í garð sauðkindariynar eða búa yfir mjög takmarkaðri þekkingu til að fjalla um slík mál. Eftir því sem borgin hefur stækk að hafa ýmis vandamál varðandi búfjárhald skotið upp kollinum, og er slíkt alls ekki óeðlílegt, og enginn skyldi lá mönnum þótt þeir amist við ágengni sauðfjár og annarra óboðinna gesta í görð um sínum. Slák vandamál þarf að leysa án fordóma og stóryrða, það er vel gerlegt sé rétt á. málum haldið. Nokkurs misskilnktgs hef ur gætt varðandi þessi mál og væri ekki úr vegi að atfauga hlutina í réttu ljósi. Sauðfé í lögsagnarumdæmi Beyfcjavíkur hefur farið fækk- andi á undanfömum árum. Fyrir áratug vor hér á 5. þúsund vetrar foðraðar fcindur, en í vetur sem keið voru þær um 2,500. Flestir eru fjáreigendur hér eldri menn, og befur þeim farið stöðugt fækk andi, en nær engir nýir hafa bætzt í hópinn. Fjáreigendur líkt og hestamenn hafa yndi og ánægju af að hirða sínar skepnur, þetta er þeirra áhugamál, sem þeir sinna í frístundum. Fénu er gefið inni frá haustnóttum til vors, en þá er það flutt á afrétt, þar sem það gengur til rétta. Fyrir kemur að fé sæki niður í þéttbýlið, þama er um að ræða tiltölulega fáar kind ur, þar eð mestur hluti fjárins er hagvanur á afrétti. Sumir hafa haldið því fram að sauðfé sæki í garða vegna ónógra haga. Engin skynsamleg rök benda þó til að svo sé. Garðarollurnar svokölluðu eru í rauninni um flest líkar því fé, sem sækir í tún í sveitum og lítur ekki' við gróðri í úthaga, þótt nægur sé. Fjáreigendum þyk ir mjög miður, ef kindur þeirra valda skemmdum, og markir þeirra hafa það fyrir reglu að lóga slíku vandræðafé á haustin. Um mörg undanfarin ár hefur stórum fjárhæðum verið vai-ið til vörzlu borgarlandsins fyrir ágengi búfjár. Nam sú upphæð rúmlega hálfri milljón króna á síðasta ári Engu að síður er vörzlunni mjög ábótavant og hefur það greinilega komið í ljós á síðari árum sam- fara útþenslu þéttbýlisjns. Fjáreig endur hér í borg hafa um árabil lagt til, að borgarlandið verði girt af með fjárheldri girðingu og boðizt til að taka gæzluna í sínar hendur. í fyrra var hafizt handa um girðingaframkvæmdir, og er það tvímælalaust spor í rétta átt, en ekki kemur þó sú girðing að fullum notum, þar eð hún lokar ekki af borgarlandinu. Ósk Fjáreigendafélags Reykjavík ur um að þvi verði fengin gæzlan í hendur hefur ekki verið tekin til greina. Nú hafa borgaryfirvöldin látið þau boð út ganga, að útrýma eigi sauðfé Reykvíkinga í haust þó með þeim undantekningum, að áfram megi stunda fjárbúskap á býlun um Gufunesi, Engi, Reynisvatni og Hólmi. Þau rök er færð fram, að með þessum aðgerðum eigi að leysa vandamálið um ágang sauð fjár og þurfi fólk ékki að óttast skemmdir á blómsturgörðum af völdum kinda um ókomin ár. Fljótt á litið virðist mörgum þetta snjallt ráð, en sé betur hugað að kemur í ljós að málið er ekki svo einfalt. Það er óvé fengjanleg staðreynd, að mikill hluti þess fjár er veldur tjóni á garðlöndum borgarbúa, er ekki eign Reykvíkinga. Hingað sækja kindur víða að, svo sem af Suð urnesjum, Grafningi og úr öðrum sveitafélögum í nágrenni borgar- innar. Með útrýmingu sauðifjár í Reykja vík væri því enginn vandi leyst ur og enn yrði að verja stórum fjárhæðum til vörzlu borgarlands ins, eins og verið hefur. Mjög virð ist skorta á að forráðamenn borg árinnar skilji eðli málsins og skal engan undra, þótt fátt sé að gert, er megi leiða til farsællar lausn ar vandans. Ekki er þó svo, að eigi sé þar að finna menn er vilja ráða fram úr málinu á friðsam legan hátt, heldur mun það sann ast, að þeir eru kveðnir í kútinn af þeim, er sækja málið af ofur kappi og yfirgangi. Þar ræður ekki sanngirni heldur ómerkur áróður og hótanir um valdbeit- ingu. Hefur jafnvel gengið svo langt, að alið hefur verið á ó- vild og úlfúð í garð fjáreigenda. Sá tími mun koma, er slíkir ráða menn verða að taka afleiðingum orða sinna og gerða. Með víðsýni og góðum vilja má leysa þessi mál á þann hátt að allir' megi vel vdð una. Um 1960 fengu reykvískir fjár- Ólafur R. Dýrmundsson í fjárhúsi sínu f Reykjavik eigendur landskika undir fjártoúsa byggingar við Breiðholtsveg. Á land þetta fluttust margir þeir, er urðu að víkja úr borginni vegna útþenslu hennar; Þelta er hin svo- nefnda Fjárborg. Árið 1964 ákváðu borgaryfirvöld að úthluta fjáreig endum landi til afnota í Ilólms- heiði og skyldu þeir flytja þangað með starfsemi sína. Forr^ðamenn Fjáreigendafélags Reykjavíkur áttu sammngaviðræður við Borgar verkfræðing og aðra þá er fjölluðu um þessi mál og árangur þessa samstarfs var samningur uih leigu á landi í Hólmsheiði, sem sam- þykktur var af fulltrúum beggja aðila árið 1966. Gerður var skipu lagsuppdráttur af landinu og sett ar reglur varðandi not þess og varð það m. a. að samkomulagi að fjáreigendur flyttu aðstöðu sína í Fjárborg á þetta nýja land og virtist þá sem þarna væri merkum áfanga náð í samskiptum borgaryfirvalda og fjáreigenda í Reykjavik. Skömmu éftir undirritun samn ings dró þó ský fyrir sólu, því að borgaryfirvöld töldu sig ekki geta staðið við gerðan samning og mundu fjáreigendur ekki fá land í Hólmsheiði. Þar sarnningsrofið réttlætt með því, að orðið gæti hætta á mengun vatnsbóla, ef fjár hald yrði leyft í Hólmsheiði, og LJÚSASAMLOKURNAR Heimsfrægu 6 og 12 v. 7” og 53A” Mishverf H-framljós, Viðurkennd tegund. BÍ1.APERUR — Fiölbreytt úrval — Sendum gegn póstkröfu um land allt. SMYRILL Ármúla 7 — sími 12260. málinu til stuðnings var birt jarð fræðileg álifsgerð. Að margra áliti er samningsrofið byggt á toæpnum forsendum. Nú er það alkunna að hestamönnum var um svipað leyti úthlutað landi fyrir starfsemi sína á landi, sem samkvæmt hinni jarð fræðilegu álitsgerð telst til hins svonefnda vatnasvæðis boi'garinn ar. Mætti því álykta svo, að meiri hætta stafaði af mengun vatns- bóla, þar sem sauöfé ætti í hlut. Engin skynsamleg rök mæla þó með að svo sé málum farið, enda ekki vitað til þess að meiri hætta stafi af úrgangsefnum sauðfjár en annarra lifandi vera. Vitað er og að hrosstað og annar búfjáráburður er víða borinn í garða á þessu svæði og ótalin eru þau bílhlöss af hrossataði, sem flutt eru í Heið mörk og notuð þar til áburðar við ræktun trjágróðurs. Þarna er greinilega ekfci allt á hreinu og ýmislegt stangast á. Mörgum er það ráðgáta, hvernig það getur staðizt með tilliti til þessa, að hrossahald og búfjárhald yfirleitt er leyft á þessu svæði óátalið, og einnig veldur það furðu, hvernig það getur samrýmzt heilbrigðri skynsemi, að sauðfjárhald er leyft á Hólmi, en Fjáreigendafélag Reykjavíkur er samt svipt rétti til að nota land þessarar sömu jarðar, þar sem slikt er talið brjóta í bága við almeningsheill. Á þessu og öðru má sjá að ekki eru öll rök fyrir af námi sauðfjárhalds byggt á traust um grunni og hin öfgafulla bar átta borgaryfirvalda gegn sauðfé og eigendum þess er í hæsta máta ódrengileg og sæmir lítt þeim er hana heyja. Á ýmsu hefur gengið um sam- skipti fjáreigenda við borgaryfir- völdin. Samstarfið var ágætt með- an verið var að leggja drög að samningi um landið í Hólmsheiði, en svo brá við eftir samningsrofið, að vægast sagt hefur verið komið mjög ilia fram við fjáreigendur. Er framkoma borgaryfirvalda öll með endemum og er þar beitt eilífum hótunum og reynt að láta í það skína, að fjáreigendur séu óalandi og óferjandi og vart tald- ir til manna. Væri ráðamönnum hollara að hafa í hug, að fjár- eigendur eru fullgildir borgarar Reykjavíkur ekki síður en þeir og eiga þá réttmætu kröfu, að um mál þeirra sé fjallað með skiiningi og án öfga. Fjáreigendur eru og hafa alltaf verið fúsir til að fara samningaleiðina í þessu máli og telja, að með því megi leysa þessi mál á viðunandi hátt. Þeir leggja til, að borgarlandið sé varið á- gangi búfjár mefð tryggri girðingu og þeim sé úthlutaður landskiki fyrir fjárhús sín utan þéttbýlis- ins. Ef vilji ráðam. er fyrir hendi væri því hægt að ráða fram úr þessum málum á friðsamlegan hátt eins og horfur voru á, er samið var um landið í Hólmsheiði. Það hefur vakið undrun manna, hve ólíkt afstaða borgaryfirvalda er gagnvart hestamönnum annars veg r en fjáreigendum hins vegr. Hestamönpum er veitt framtíðar aðstaða fyrir starfsemi sína, en fjáreigendur eru ekki aðeins hund eltir og sviknir heldur einnig synj að um alla fyrirgreiðslu. Hvers eiga fjáreigendur að gjalda? Fjáreigendur í Reykjavík sætta sig alls ekki við þann ójöfnuð og hótanir um lögregluvald, sem þeir hafa orðið að þola af hendi borg- aryfirvalda. Sú fullyrðing, að lausn vanda- málsins um ágang búfjár útheimti niðurskurð fjárins er ekki á rök- um reist og munu fjáreigendur spyrna við fótum gegn slíkum ó- rétti. Niðurskurður sauðfjár í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur mundi ekki leysa neitt vandamál og er það eindregin krafa fjár- eigenda svo og ýmissa ann^rra borgara, að mál þetta sé tekið til endurskoðunar, því að aldrei er of seint að láta skynsemi-na ráða. Svo virðist, sem borgaryfirvöldin hafi hingað til ekki verið vanda sínum vaxin, hvað viðvíkur lausn þessa vandamáls, heldur gert það mun flóknara en nauðsynlegt er. Hvers má þá vænta frá hendi slíkra manna, þegar þprf er á lausn hinna stærri mála? Ólíklegt er að þá dugi alltaf ti.1 hótanir og ofbeldi. Ólafur R. Dýrmundsson. A /H/W-'NNfrW fr^íl SKARTGRIPIR Modelskartgripur er giöt sem ekkl gleymist. — • SIGMAR & PÁLMI • Bverfisgötn 16 a. Siml 21355 og Laugav. 70. Simi 24910

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.